MaggiDan.com

  • rss
  • Blogg
  • Kvikmyndir & tónlist
  • Um mig
  • Myndir
  • Hafa samband

The Dark Knight

2 október 2008 | 18:14

Ég fór á The Dark Knight, aftur, í gær.
Skoðun mín á myndinni er sú sama, þetta er besta spennumynd sem gerð hefur verið. Helsti munurinn er að mér fannst myndin ekki jafn fyndin, og Jókerinn var ekki alveg jafn góður. Two-Face fílaði ég miklu betur í þetta skipti, eftir hálfgerð vonbrigði seinast. Núna var ég búinn að sætta mig við hvernig hann leit út og var ekkert að svekkja mig á því. Gary Oldman óx örlítið í áliti hjá mér, en af einhverjum ástæðum fer hann í taugarnar á mér. Ég vildi líka óska þess að Cillian Murphy hefði verið troðið þarna inní á einhvern annan hátt, og fá fleiri atriði með honum.
En það sem ég er að reyna að segja er… Shiiiiiit hvað þessi mynd er góð!

Comments
No Comments »
Categories
Kvikmyndir
Tags
Aaron Eckhart, Batman, Christian Bale, Christopher Nolan, The Dark Knight
Comments rss Comments rss

The Dark Knight (2008)

25 júlí 2008 | 0:59

The Dark KnightÚff. Hér kemur það.
Eins og eflaust einhverjir hafa tekið eftir hef ég beðið eftir The Dark Knight með óþreyju. Ég hef talið niður dagana, síðustu 20 daga. Í gærkvöldi fór ég klukkutíma fyrr, kl. 22, úr vinnunni til að vera fremstur í röðinni; eftir að hafa talið niður mínúturnar þangað til myndin hæfist sem var klukkan 23.10. Spenningurinn hjá mér var ótrúlegur þegar ég komst í bíóið. Ég var ekki fremstur í röðinni, en hún var ekki orðin löng heldur. Skömmu eftir að ég kem, sé ég strák uppdressaðan sem Jókerinn. Það er ekki eitthvað sem dregur úr spenningi mínum.

Samt gerði kvíði vart við sig líka. Hvað ef myndin yrði ekki jafn góð og ég vonaðist eftir? Tilfinningin var svipuð og ég upplifi skömmu fyrir flug – ótti við að deyja (í þessu tilfelli að myndin ylli mér vonbrigðum) en samt tilhlökkun að komast til útlanda.

Ég hef séð, held ég, allt sem tengist myndinni. Alla trailera, alla búta sem komnir voru á netið, skoða óljósar myndir af Two-Face. Myndin sameinar í þokkabót tvo af mínum uppáhaldsleikurum, Aaron Eckhart og Christian Bale. Ef Al Pacino hefði bara verið þarna einhversstaðar…

Þá að myndinni. Myndin er góð. Söguþráðurinn er ekki nógu sterkur. Borið saman við Batman Begins er sú mynd umtalsvert skemmtilegri og söguþráðurinn betri. Myndin er á þriðja tíma, en verður aldrei langdregin. Til þess er handritið bara of gott, það er aldrei dauður punktur í myndinni eða vandræðalega asnaleg samtöl. Plottið er ófyrirsjánlegt, jafnvel flókið fyrir ungu Batman aðdáendurna – allt að þrettán ára gamlir krakkar gætu átt erfitt með að fylgja myndinni eftir; enda er þetta alls ekki barnamynd, sbr. þessa og Batman Begins við allar aðrar ofurhetjumyndir hingað til, Spider-Man þrennuna, Fantastic Four tvennuna (guð, ekki láta það verða að þrennu) og nú nýlegast Hulk. Auk þess gæti Jókerinn haldið mér uppteknum klukkutímum saman.

Ef það er eitthvað sem ég vildi breyta þá væri það Katie Holmes og Maggie Gyllenhaal, báðar sem Rachel. Það fer í taugarnar á mér að sama manneskjan leiki ekki sömu persónuna í þessum myndum, en í staðinn fyrir að hafa Katie í þessari mynd vildi ég að Maggie hefði leikið Rachel í Batman Begins í staðinn. Maggie skilaði hlutverkinu á óaðfinnanlegan hátt. Einnig fannst mér Two-Face koma of seint inn í myndina.
Christian Bale, einn svalasti maður sem gengið hefur á þessari jörð, getur varla annað en staðið sig vel sem Batman en samt talar hann með þessari pirrandi rödd. Sem Bruce Wayne stendur hann sig hins vegar vel, geðveikt svalur milljarðamæringur sem mætir alltaf með mismunandi konur hvert sem hann fer. Ef maður er ríkur og frægur á maður aldrei að láta sjá sig í sama out-fittininu tvisvar; en í hans tilfelli – konum.
Restin af leikurunum er vel reynd; Michael Caine, Morgan Freeman, Aaron Eckhart (líklega sá óreyndasti),
Gary Oldman og Heath Ledger.
Ég hef hugsað nákvæmlega það sama og allir aðrir um Heath. „Okei, hann er flottur í trailernum en strax komin Óskarsverðlauna-umræða um hlutverkið bara útaf hann dó? Kommon.“ Og ég veit hversu tilgangslaust það er að segja þetta (allavega þangað til fólk sér myndina), en mikið fokking andskoti fór hann vel með Jókerinn. Hann var, vægast, vægast, vægast sagt TRYLLTUR sem hann. Jafn geðveika, í orðsins fyllstu merkingu, frammistöðu hef ég aldrei séð. Túlkun hans á geðsjúkum glæpamanni var fullkomin og ástæða þess að myndin trónir í efsta sæti IMDB sem besta mynd allra tíma. Það eina sem þú hlærð að í myndinni eru atriði með Jókernum, og þau eru þó nokkur.

En að lokum að einkunninni. Það er það erfiðasta við myndina. Ég held ég hafi gefið það nógu sterklega í skyn að myndin er góð, en hún stóðst ekki allar mínar væntingar. Myndin var ekki nógu skemmtileg. Þessi er frekar svona… „alvöru“ mynd, í stíl við stórmyndir eins og American Gangster og Schindler‘s List, mynd sem situr í manni.
Einkunnin… 8/10 er of lítið fyrir myndina útaf hversu góð hún er en 9/10 er of hátt útaf „vonbrigðunum“ sem hún olli mér. Niðurstaðan er því 8.5, en þar sem mitt kerfi keyrir á sléttum tölum námundast þetta að 9/10.

Til hamingju Christopher Nolan fyrir að hafa sett nýjan staðal í gerð spennumynda.

Rating: ★★★★½

Comments
4 Comments »
Categories
Kvikmyndir
Tags
Aaron Eckhart, Batman, Christian Bale, Christopher Nolan, Heath Ledger, Kvikmyndir, Spider-Man, The Dark Knight
Comments rss Comments rss
Trackback Trackback

Heath Ledger látinn!

22 janúar 2008 | 23:18

Sá þetta á CNN fyrir rúmum klukkutíma, og hreinlega trúði þessu ekki. Hann dó trúlega úr ofneyslu á einhverjum pillum.
Fyrir þá sem ekki vita hver hann er, lék hann í Brokeback Mountain og nú nýlegast lék hann Jókerinn í The Dark Knight, nýjustu Batman-myndinni, og er algjörlega “nöts” í trailernum.
Frekar sorglegt, því ferill hans hefur bara farið upp á við seinustu ár. Það sem kom mér líka mjög á óvart er að hann hafi líklega dáið úr ofneyslu lyfja, því hann hefur aldrei birst í fjölmiðlum - allavega ekki sem ég veit af - öðruvísi en rosalega saklaus eitthvað. Maður á frekar von á dánarfregnum af Amy Winehouse eða Pete Doherty. Jafnvel Britney.
Tökum á nýjustu mynd hans, The Imaginarium of Doctor Parnassus, er ekki lokið en ég veit ekki hversu mikið var búið að taka upp af henni. Þó að ég haldi ekki mikið upp á þennan leikara hafði ég gaman af honum og hefði viljað sjá mun meira. Missir á miklum hæfileikum.

Comments
3 Comments »
Categories
Blogg
Tags
Batman, Heath Ledger, The Dark Knight
Comments rss Comments rss
Trackback Trackback

Dagatal

desember 2008
M Þ M F F L S
« nóv    
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031  

Nýlegar athugasemdir

  • Robbi um „[REC] vs Quarantine“
  • Stefán um „Góð tilraun“
  • Hlynur Jón Michelsen um „Góð tilraun“
  • Maggi um „Góð tilraun“
  • Frank M um „Góð tilraun“
  • Arnar Gísli um „Góð tilraun“

Flokkar

  • Blogg (50)
  • Kvikmyndir (13)
  • Sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • Tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (7)

Blogg

  • Anna og Robbi
  • Bjarki
  • Frank & Ösp
  • Frank Gabríel
  • Hekla
  • Hlynur Jón
  • Linda
  • Myndagemsablogg
  • Stebbi
  • Tinna

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Innskrá
  • RSS-veita færslna
  • RSS-veita ummæla
  • WordPress.org

Nýlega hlustað á

Mynd af handahófi

Facebook


Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox