Örrýni
12 september 2008 | 15:50Langar að skrifa um nokkrar myndir sem ég er búinn að sjá nýlega, án þess að fara of ítarlega í hverja mynd fyrir sig.
Get Smart (2008) er ógeðslega fyndin. Okkur Örnu langaði í bíó, og valið stóð milli Get Smart og X-Files: I Want To Believe. Ég tók ákvörðun um að fara á þessa mynd, búinn að heyra að hún væri betri en maður ætti von á. Það var líka raunin, myndin er alveg sjúklega fyndin. Aumingja Arna þurfti að sitja við hliðina á mér alla myndin meðan ég grét úr mér augun af hlátri. Steve Carrell er svo fyndinn gæi. Mér finnst hann bara vera að sanna sig sem einn besti grínmyndaleikarinn í Hollywood. Geðveikur í Anchorman, mistök í Bruce Almighty þó (hélt mig fjarri Evan Almighty!), Little Miss Sunshine (aðeins of… eitthvað fyrir mig), Dan In Real Life (fyndnasta mynd seinasta árs?) og svo var hann náttúrulega The 40 Year Old Virgin.

Shoot ‘Em Up (2007) er svo snargeðveik mynd! Ógeðslega fyndin, óendanlega svöl og ótrúlegahallærisleg. Full af svo geðveikum kvótum. Shit.

Solkongen (2005) er alveg eðalgóð dönsk mynd. Horfði á aftur hana í dönskum kvikmyndaáfanga í skólanum (horfði á hana áður í skólanum) og hún var umtalsvert betri núna. Grínmynd án alls grínsins.

Tropic Thunder (2008) var allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér. Robbi bró laug aðeins að mér varðandi söguþráðinn (óviljandi) þannig að ég beið alla myndin eftir ákveðnum atburðum sem svo gerðist aldrei. Ekki það að það hafi skemmt myndina eitthvað. Myndin var þó ekki alveg jafn góð og ég átti von á, en húmorinn klikkaði ekki (enda Ben Stiller og Jack Black í henni).

Ég datt alveg óvart inn í Big Nothing (2006) meðan ég beið eftir Örnu. Myndin var á Stöð 2 og ég settist niður fyrir framan imbann og ætlaði ekki að geta farið út, enda mættum við aðeins seinna en planað var í partýið. Gat þó ekki klárað myndin þannig að ég þurfti að downloada henni. Þetta er mynd sem er full af pínlegum og fyndnum atburðum sem leiða eitt af öðru og koma öllum í klípu (ég hugsa alltaf um einhverja mynd þegar ég hugsa um þessa, þær eru í sama stíl en ég bara man ekki hvað hún heitir). Myndin er með David Schwimmer, sem leikur Ross í Friends, og Simon Pegg, sem leikur í Hot Fuzz. Ógeðslega góð mynd, mæli alveg hiklaust með henni.

Death Race (2008) hefur lélegan söguþráð, virkilega, virkilega lélegt plott og klippingin er til háborinnar skammar. Í kappakstrinum sjálfum er klippingin alltof hröð og maður nær ekki að fylgja neinu eftir. Jason Statham er það eina sem stendur upp úr í myndinni.
Ágætis húmor er í myndinni, en myndin er ekkert annað en sumarmynd sem gleymist, sem betur fer, fljótt.








Nýlegar athugasemdir