MaggiDan.com » Kvikmyndir

Avatar 3D (2009)
Ég fór á Avatar á miðvikudaginn. Eftir að hafa séð trailerinn fyrir myndina í bíó fyrir löngu, heillaðist ég ekki. Fannst þetta hálft tæp hugmynd og 3D hafði ekki bætt kvikmyndaupplifun mína (hafði séð áður Journey to the Center of the Earth, My Bloody Valentine og Fly Me to the Moon). Ég var þetta vegna mjög skeptískur á að þetta væri eitthvað sem mig langaði að sjá í bíó, upp á þrívíddina að gera.

Svo heyrði ég bara góða hluti um myndina, frá öllum. Allir lofuðu útlitið og þegar ég innti þá eftir svörum um innihaldið var það sagt gott. Spennan byrjaði að magnast upp hjá mér smám saman og þegar ég sat í stöppuðum salnum fann ég fyrir tilfinningu sem gerði síðast vart við sig þann 23. júlí 2008. Tilfinningin var eins og ég væri krakki í dótabúð, þar sem dótið væri gert úr nammi! Rosalegur spenningur.

Svo byrjaði myndin.

Augnaverkurinn gerði vart við sig strax á annarri mínútu. “Nei, fjandinn” hugsaði ég, “átti þetta ekki að vera fullkomin þrívídd?” En verkurinn fór og upp frá því gat ég notið einnar stórkostlegustu myndar sem gerð hefur verið. Myndin er svo flott. Þrívíddin svo vel unnin, umhverfið svo fullkomið, hugmyndin svo ágæt en handritið svo lélegt.

Hugmyndin að myndinni er góð. Að búa til mannhermu (e. Avatar) til einhverra hluta. Að búa til Avatar til verka eins og er gert í myndinni er hreint út sagt heimskulegt og tilgangslaust. Þetta er illa útfærð hugmynd. James Cameron er leikstjóri bakvið stórmyndirnar The Terminator, Titanic og The Abbyss en mér er sama. Terminator eru leiðinlegar myndir og Abyss sömuleiðis. Þetta er ekki einn af mínum uppáhalds mönnum.

Ég veit varla hvað annað ég á að segja. Það er aðeins tvennt sem stendur uppúr eftir að hafa horft á myndina. Annars vegar hve fullkomið útlitið er og hins vegar hve veik sagan er, sem dregur myndina niður. Eða kannski maður ætti að miða við hve góð sagan er, og svo hversu mikið formið hífir hana upp?

Það þýðir ekki að gefa Avatar 10, einungis vegna þess að hún er flott eða hún er með góða þrívídd. Hvað með þegar myndin kemur út á DVD? Eða hvað ef hún hefði upphaflega aldrei verið í 3D?

Þess vegna gef ég Avatar sjöu. Sagan er léleg og karakterar ótrúverðugir og illa skapaðir. Myndin er ekki leiðinleg, þannig séð. Hún er áhugaverð og njótanleg en hún er bara svo venjuleg.

Avatar fengi sex í einkunn hjá mér en tæknin hækkar hana upp um einn. Myndin á ekki skilið áttu, níu eða tíu, BARA vegna þess að hún er flott. Það er ekkert í myndinni sem við höfum ekki séð áður eða er byltingakennt.

[xrr rating=3.5/5]

Click (2006)
Var að horfa á Click þannig að mér datt í hug að senda inn þessa gömlu gagnrýni sem ég gerði. Betrumbætti hana töluvert enda meira en þrjú ár síðan ég skrifaði hana og greinin í því formi ekki sú besta.

Frank Coraci leikstýrði myndinni. Þetta er þriðja myndin sem hann leikstýrir með Adam Sandler í aðalhlutverki, fyrst voru það The Wedding Singer og The Waterboy. Þær tvær eru fyrir löngu orðar klassískar í sögu grínmynda.

Myndin byrjar á að Michael Newman (Adam Sandler), farsæll arkitekt, reynir að kveikja á sjónvarpinu en eftir að hafa kveikt á viftu, keyrt fjarstýrðan bíl og opnað bílskúrinn segir hann að þegar hann hafi verið ungur hafi bara verið ein fjarstýring á heimilinu – og hún hafi verið að sjónvarpinu. Hann gefst upp á að reyna að kveikja á sjónvarpinu.

Seinna, um kvöldið þegar hann gerir aðra tilraun til að horfa á sjónvarpið, brjálast hann þegar hann nær ekki, aftur, að kveikja á sjónvarpinu. Hann rýkur út til að reyna að kaupa alhliða fjarstýringu (e. universal remote) en aðeins ein vafasam búð er opin sem selur þannig. Þar selur Morty (Christopher Walken) honum fjarstýringuna.

Þegar heim er komið kemst hann að óvæntum hæfileika fjarstýringarinnar. Hún getur stjórnað lífi hans eins og DVD-mynd. Hann getur skipt um kafla, skoðað gamlar minningar og hraðspólað. Meira að segja getur hann skoðað bónusefni!

Click er dæmigerð Adam Sandler mynd. Aulabrandarar eru einkennandi og Adam-Sandler-er-reiður-og-öskrar-alveg-eins-í-öllum-myndum atriðið er þarna. Aulabrandararnir eru reyndar fyndnari í þessari mynd en öðrum myndum hans finnst mér. Brandararnir eru endurteknir nokkrum sinnum í gegnum myndina, en þeir voru alltaf jafn fyndnir. Ég skellihló oftar en einu sinni að sama brandaranum í mismunandi útfærslu.

En svo líður myndin og það sem áður var grínmynd verður skyndilega hádramamynd. Þegar ég sá hana fyrst átti ég í vandræðum með að halda aftur af mér. Svo þegar ég horfði á hana núna vissi ég hverju ég átti von á. Samt, samt, var ég með tárin í augunum seinasta hluta myndarinnar. Þessi breyting á myndinni gerði myndinni samt svo miklu betri en hún hefði annars verið.

Adam Sandler er með sinn vanalega ekki of góða, eða of lélega, leik. Ég fíla hann og myndirnar hans, en ég skil fólk sem gerir það ekki mjög vel.

Álit mitt á Christopher Walken hefur verið hátt allt frá því ég sá A Blast From The Past þegar ég var lítill. Í dag er hann einn af uppáhalds leikurunum mínum. Hann hefur bara allt sem þarf að hafa. Hann er viðkunnanlegur og þægilegur í áhorfi.

Kate Beckinsale er fín í myndinni, það reynir lítið á leik hennar en hún er sæt og fín eins og hún á að vera.

David Hasselhoff er ekkert nema flottur í þessari mynd! Hann er eins og sniðinn að hlutverkinu og því ekki annað hægt en að njóta hans í myndinni.

Click er gæða mynd. Allir ættu að geta notið hennar.

[xrr rating=4/5]

Moon (2009)
Sam Rockwell fer með einleik í myndinni Moon. Hann er einn á skjánum langmestanmeirihluta myndarinnar og þeir fáu (sjö) sem birtast yfir höfuð í myndinni eru samtals, líklega um eina og hálfa mínútu í henni. Það þýðir að Sam er einn í myndinni í yfir heilar 90 mínútur! Kevin Spacey fer með næst stærsta hlutverkið en hann talar fyrir tölvuna GERTY.

Myndin var skrifuð af Duncan Jones, sérstaklega með Sam Rockwell í huga. Duncan leikstýrði henni líka, og er þetta fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd sem hann leikstýrir eða skrifar. Sam er sannfærandi í leik sínum sem geimfarinn Sam Bell, kannski eins gott því ég myndi ekki nenna að horfa á t.d. Matt Le Blanc einan í einn og hálfan tíma. Kevin Spacey hefur náttúrulega ekkert nema röddina til að tjá sig sem GERTY. Þar sem hann talar fyrir tölvu er takmarkað hvað hann getur beitt raddsviði sínu, því tölvur hafa ekki vinalega rödd, reiða, o.s.frv.

Að söguþræðinum. Myndin gerist árið 2130. Mannkynið er komið að þrotum varðandi orku þannig að einkarekið fyrirtæki sér jarðarbúum fyrir 70% af orkunni með því að vinna helíum3 úr yfirborði tunglsins og senda til jarðar. Sam Bell vinnur á geimstöð fyrirtækisins á tunglinu, einn, við það að fylgjast með bílunum sem vinna helíumið ásamt fleiru. Vaktirnar eru þrjú ár og byrjar myndin þegar u.þ.b. tvær vikur eru eftir af vaktinni hans Sams. Hann er orðinn pirraður á einangruninni og finnst þrjú ár vera of langur tími. Á þessum tíma fer hann að sjá ofsjónir og maður fær það á tilfinninguna að hann sé orðinn geðveikur. Eini félagsskapurinn er GERTY og öll samtöl sem Sam á við jörðina taka margar klukkustundir að berast fram og til baka. Látum þetta nægja af sögunni.

GERTY merkilegur karakter að mínu mati. Á einum tímapunkti í myndinni hafði Sam verið bannað að yfirgefa stöðina og á GERTY að sjá til þess að hann geri það ekki. Í raun stjórnar GERTY því hvort Sam komist yfir höfuð útaf stöðinni, því hann stjórnar því hvort hurðirnar opnast. Sam tekst samt að telja GERTY á að hleypa sér út til að athuga hvort ekki sé í lagi með stöðina. Það finnst mér skondin umhugsun. Tölvan er kóðuð til þess að fylgja skipunum en hlutverk GERTYs er fyrst og fremst að sjá til þess að Sam líði vel. Mér finnst eitthvað svo töff við það að hann hafi fengið tölvuna til að hunsa skipanir með því að rökræða við hann.

Moon er skrítin mynd og langdregin. Hún er samt sem áður töff, skemmtileg, áhugaverð og vel þess virði að sjá.

[xrr rating=3.5/5]

À l’intérieur (Inside) (2007)
À l’intérieur er ein ógeðslegasta mynd sem ég hef séð. Ekki veit ég af hverju horfi á svona myndir. Ég veit að þær eru ljótar, vondar og láta mér líða illa. Samt hafa þær eitthvað aðdráttarafl á mig. Látum þetta vera viðvörunina ef þú ert ekki hrifin af blóði, drápum og pyntingum.

Myndin er frönsk framleidd fyrir lágmarks fjármagn og er henni leikstýrt a Alexandre Bustillo og Julien Maury. Þetta er fyrsta og eina mynd þeirra félaga þannig að að öllum líkindum hefurðu ekki heyrt um þá. Nema þú auðvitað hafir séð þessa mynd. Með aðalhlutverk fara tvær konur, Béatrice Dalle og Alysson Paradis. Þær hafa nær eingöngu leikið í frönskum myndum, en sú fyrrnefnda lék í mynd með Nick Nolte, Clean (2004). Allir aðrir fara með smáhlutverk.

Í upphafi myndarinnar lendir Sarah (Alysson Paradis) í bílslysi, komin fimm mánuði á leið. Maðurinn hennar deyr í árekstrinum ásamt farþegum hins bílsins, þannig að Sarah er eini eftirlifandi slyssins. Fjórum mánuðum seinna, eða á jóladag, á Sarah að eiga. Á aðfangadag bankar ókunnug kona á dyrnar hjá Söruh sem er ein heima, enn syrgjandi manninn sinn. Ókunnuga konan biður hana um að fá að nota síma Söruh þar sem bíllinn hennar bilaði skammt frá og síminn hennar batteríslaus. Þegar Sarah neitar að hleypa henni inn hitnar í kolunum. Konan ætlar sér að fá barnið hennar Söruh.

Antichrist vakti mikla athygli fyrir pyntingar og viðbjóð; menn ældu á frumsýningunni og gengu út. Ekki skil ég alla fjölmiðlaumfjöllunina sem sú mynd fékk. Ég er búinn að horfa á hana og hún er léleg. Kannski ekki en mér fannst það. Hún var ofbeldisfull, já. Ógeðsleg, jaaa… á köflum. Góð, nei. À l’intérieur er allt ofangreint. Af hverju fékk hún ekki umfjöllun? Nú geri ég mér grein fyrir því að það er framleitt ógrynni af hryllingsmyndum sem þessari. Oft eru þær japanskar og fara ekki út fyrir Asíumarkað. Þessi mynd er frönsk. Það á að ná athygli fjölmiðlanna. Í þokkabót vann hún þrjú verðlaun á kvikmyndahátíðum!

À l’intérieur er góð. Hún hefur allt sem svona mynd þarf. Hún er spennandi, ógeðsleg – en ekki of, hefur fínan söguþráð og öflugan endi. Leikararnir skemma ekki fyrir heldur. Alltof oft í hryllingsmyndum eru lélegir leikarar, það á ekki við hérna.

[xrr rating=3.5/5]

Óskarinn 2009
Seinustu vikurnar hefur verið í gangi “Project February”, en það gengur út á að horfa á 28 myndir á jafnmörgum dögum. Ég horfði gagngert á allar myndirnar sem tilnefndar eru til bestu myndar á Óskarnum núna (fyrir utan Slumdog Millionaire sem ég sá í janúar). Niðurstaðan er þessi, besta mynd efst, versta mynd neðst.

Hægt er að fylgjast með Project February hér.

Besta mynd:

Frost/Nixon <acronym class="dtreviewed" title="2009-02-16T23:05"></acronym><acronym class="dtreviewed" title="2009-02-16T23:05"></acronym>

Frost/Nixon er ógeðslega góð mynd. Besta myndin af þeim sem tilnefnd er til bestu myndar, en þó ekki best af öllum þeim myndum sem komu út á seinasta ári.

Myndin sýnir mannlega hlið á Nixon sem ég vissi ekki að væri til, ég hef alltaf séð hann í slæmu ljósi (sbr. Futurama) og að hann væri heilalaus maður. Það kemur í ljós að svo er ekki; hann virðist hafa átt erfiða æsku og unglingsár og að hann var virkilega, virkilega kappsamur. Anywho, besta myndin sem var tilnefnd.

The Curious Case of Benjamin Button

Ég veit ekki alveg hvað skal segja varðandi þessa mynd. Rosaleg sérstök, ruglingsleg á tíðum og full af einhverjum táknum. Fyrir mig, sem bara-aðeins-fyrir-ofan-meðal-áhuga-kvikmyndanörd, var myndin ekki jafn rosaleg og allir vilja meina. Ef ég myndi nenna að spá í öllum táknunum; m.a. kólibrífuglinn og klukkan, væri myndin eflaust miklu betri og dýpri, en ég nenni ekki að kafa ofan í það þannig að myndin fær “bara” 7. Eins og það sé ekki gott?

Milk<acronym class="dtreviewed" title="2009-02-20T22:16"></acronym>

Sko. Er þetta I Am Sam: Or, How I Traveled Back To The Future And Became A Gay Supervisor? Maðurinn var hommi, ekki þroskaheftur. Hommataktarnir hjá Penn mistókust svo svaðalega. Hann kom því alveg til skila að hann væri hommi, en fokk hvað hann stóð sig illa í því.

Eitt sem var sérstakt við myndina að mér fannst hún ekkert sérstaklega skemmtilega og hvað þá Penn sannfærandi í sínu hlutverki, en ég fékk trekk í trekk gæsahúð yfir ræðunum sem hann hélt í myndinni. Þær voru ekkert sérstaklega góðar, en þeim var komið einstaklega vel til skila.

The Reader

Þessi olli mér töluverðum vonbrigðum. Ég átti von á einhverju stórkostlegu, einhverju “mindblowing”. Það eina sem ég fékk var meðaldrama mynd, með (já, ég ætla að hætta mér út á hálan ís) engu sem ég hef ekki séð áður í leik. Kate Winslet sýndi að mínu mati ekki brilliant takta, því miður.

Ég lifði mig þó nokkuð inn í myndina og var ýmist spenntur og svekktur eftir því hvaða stefnu myndin tók.

Slumdog Millionaire <acronym class="dtreviewed" title="2009-01-28T22:16"></acronym>

Ég ætla ekki að tjá mig frekar um þessa mynd. Ég er svo svekktur að hún hafi unnið öll þessi verðlaun, og ég er svo svekktur að flestir spá henni Óskar í öllum tilnefndum flokkum! Ef þessi er nógu góð í þennan flokk af hverju er The Dark Knight ekki hér?!?!

Varðandi einkunnagjöf á myndunum, mæla stjörnurnar ekki endilega það hversu góðar þær eru. Myndir geta verið rosalega góðar, en djöfull leiðinlegar. Sbr. The Reader og Milk. Röðin á þessum myndum fer aðallega eftir hversu skemmtilegar mér fannst þær, frekar en eftir hversu góðar þær voru. Það spilar samt væntanlega stóran hluta líka.

Besti leikur:

Af hverju skiptir kynið einhverju máli í leik? Ég sameina þetta í einn flokk og tvö efstu sætin taka verðlaunin.

Angelina Jolie í Changeling

Changeling er rosa, rosa, rosaleg mynd! Að mínu mati ætti hún að vera í flokknum hér að ofan og sigra hann. Angilega sýnir frábæran leik í myndinni.

Frank Langella í Frost/Nixon

Hann sýnir svo sannfærandi leik að mér finnst hálf svekkjandi að Angelina hafi staðið sig best, svo vel stóð hann sig og svo litla virðingu ber ég fyrir Angelinu sem leikkonu.

Ekki sakar það að hann er sjúklega líkur sjálfum Nixon í útliti, og röddin er alveg eins.

Brad Pitt í The Curious Case of Benjamin Button

Brad hefur vaxið rosalega í áliti hjá mér seinasta árið. Fyrir mér var hann alltaf eitthvert módel sem villtist inn í kvikmyndir. Leikur hans í þessari mynd á þó ekkert í leik hans í Burn After Reading.

Mickey Rourke í The Wrestler

Ekkert nema rétt yfir meðalleik hjá honum. Sorglegt að hugsa sér að þessi mynd endurspeglar að ýmsi leyti líf hans, og það hefur örugglega ekki verið auðvelt að leika þetta.

Kate Winslet í The Reader

Já, svona fannst mér hún standa sig í leiknum. Af sex myndum sem ég hef séð þar sem er tilnefnt til besta leiks, lendir hún í fimmta sæti.

Sean Penn í Milk

Sjá ofar.

Ég er ekki dómhæfur á tilnefningar í hinum flokkunum.

Vanmetið:

Burn After Reading

Besta mynd.

Besti leikur. Brad Pitt. ‘Nuff said.

The Dark Knight

Besta mynd. Þarf ég virkilega að koma með rök?

Besta leikstjórn. Halló?

Changeling

Besta mynd.

Besti leikur. Angelina Jolie.

In Bruges

Besta mynd. Er reyndar mega sáttur með að handritið sé tilnefnt. Plííííís, vinntu það!

Ég geri mér grein fyrir því að þessar myndir myndu aldrei taka Óskarinn fyrir bestu mynd, en þar sem SM er á listanum er þetta frekar hugsað sem myndir sem gætu komið í stað hennar.

Ég nenni ekki að taka besta leikstjóra núna. Á morgun horfi ég á The Wrestler og mun bæta henni við inn í þar sem á við og kannski bæti ég við leikstjóra þá. Þetta er komið fínt.

Slumdog Millionaire (2008)
Þegar ég sá 28 Days Later… fyrst var það ein versta mynd sem ég hafði séð. Þá var ég tólf ára.

Hatur mitt á þessum leikstjóra, Danny Boyle, var ólýsanlegt. Ekki það að ég spáði mikið í hvað hann sendi frá sér, en eftir að ég fór að pæla í kvikmyndum og kynna mér leikstjóra, leikara o.þ.h. kom myndin Sunshine út. Mér leist ekkert smá vel á trailerinn og “IMDb-aði” myndina. Þá sé ég hvaða fífl leikstýði henni og varð neikvæður varðandi hana en lét slag engu að síður standa og fór á hana. Því sé ég alls ekki eftir. Myndin er ein af mínum uppáhalds og varð til þess að ég horfði á 28 Days Later… aftur. Shitturinn titturinn hvað sú mynd er geeeeðveik!

Allavega. Ef þið eruð ekki búin að fatta það leiksýrði Danny Boyle Slumdog Millionaire. Myndin er búin að fá þrusudóma og er núna í 35. sæti á IMDb yfir bestu myndir allra tíma. Ég var því mjög spenntur þegar ég fór hana í gær.

Myndin byrjaði og strax á fyrstu mínútunum sá ég að þetta var ekki eitthvað fyrir mig. Óstöðug og hröð myndavél þar sem það passaði ekki inn í fór mest í taugarnar á mér. Indverskar slettur öðru hverju fóru líka í mig, af hverju ekki bara að hafa alla myndina á ensku eða indversku?

Myndin fjallar um mann sem vinnur háa upphæð í indverska Viltu vinna milljón? þættinum. Þar sem hann er “slumdog” er hann grunaður um svindl. Þar sem hann situr á lögreglustöðinni að útskýra mál sitt fær hann “flashbacks” sem útskýrir hvernig hann veit svörin.

Hvernig þessi endurlit voru framkvæmd fílaði ég ekki. Ég fílaði endurlitin, en ekki hvernig þau birtust í myndinni. Fattiði? Þau pössuðu ekki alltaf inn í.

Að lokum var myndin ekkert rosalega skemmtileg. Allir sem ég þekki og höfðu lesið bókina sögðu bókina geðveikt skemmtilega. Ég átti því von á geðveikt skemmtilegri mynd. En sagan eins og hún birtist í myndinni er bara svo… ekkert sérstök.

Leikararnir voru góðir, sérstaklega þau sem léku ung Jamal og Latiku og elsta Jamal.

[xrr rating=3/5]

Reykjavík-Rotterdam (2008)
Er klárlega best af öllum íslenskum myndum sem gerðar hafa verið. (Og ég hef séð… sem eru reyndar skammarlega fáar…)

Handritið er gott; fyrirsjáanlegt á köflum en kemur þvílíkt á óvart líka. Ég veit varla hvað ég á að segja um leikstjórn, þar sem ég er ekki glöggur í að sjá mark leikstjóra á myndum. Myndin er allavega vel þétt, vinnslan, leikur og allt sem tengist myndinni er það besta sem ég hef séð hingað til. Oftast finnst mér íslenskir leikarar ekki góðir, ég veit ekki hvað það er, en mér finnst þeir alltaf ósannfærandi. Eins og þeim finnist óþægilegt að leika hlutverkið sitt. Leikurinn var framúrskarandi hjá öllum í myndinni, meira að segja Jörundur Ragnarsson (Daníel í Nætur- & Dagvaktinni) var sannfærandi í sínu hlutverki. Baltasar Kormákur og Ingvar Sigurðsson eru með betri leikurum Íslands að mínu mati (ásamt Hilmi Snæ, og jafnframt frægustu kannski). Ég hef ekkert vansagt um þá félaga.

Kjánahrollurinn gerði ekki vart við sig, eins og í Kaldri Slóð þar sem slæmur leikur var allsráðandi. Mér finnst Reykjavík-Rotterdam sýna að Íslendingar eiga heimsklassa kvikmyndagerðarmenn. Við megum vera stolt af þessari mynd.

[xrr rating=4/5]

[REC] vs Quarantine
Í gær þegar ég vaknaði horfði ég á myndina [REC] frá árinu 2007. Myndin er spænsk og hafði fengið góða dóma. Ég er búinn að eiga hana í talsverðan tíma inni á flakkaranum, en ákvað að horfa á hana í gær fyrst það var komin amerísk endurgerð af henni í bíó hérna sem ég fór á í gærkvöldi. Sú mynd þótti fín skv. dómum sem ég hafði lesið.

Að horfa á myndir á tungumáli sem ég skil ekki truflar mig ekki. Oft finnst mér það einmitt gera myndirnar meira spennandi og betri. [REC] er hrollvekja af bestu gerð. Framkvæmdin á henni var frábær, hún er á þá leið að verið er að gera heimildarþátt um slökkviliðið af tveimur manneskjum; myndatökumanninum og þáttastjórnandanum. Svipað og Cloverfield, nema þessi mynd var actually góð og vel gerð. Slökkviliðið fer í útkall vegna einhverra veikinda og þáttagerðarliðið fær að fara með í útkallið. Allan tímann sjáum við atburðina bara gerast út um þessa einu myndavél, og missum við út parta þegar myndatökumaðurinn slekkur á vélinni eða skoðar myndefni á henni. Þrátt fyrir að missa úr brot úr svona, missum við auðvitað aldrei af neinu merkilegu fyrir framvinduna. Myndin var sjúklega spennandi, og hefði ég staðið hefði ég verið á tánum allan tímann! Hún rann auðveldlega í gegn og lítið mál að fylgja atburðarásinni eftir.

Það sem kom mér mest á óvart við amerísku útgáfuna var hversu nákvæmlega hún byrjaði á að fylgja upprunalegu myndinni eftir. Fyrstu fimmtán til tuttugu mínúturnar hefði hefði verið hægt að döbba. Meira að segja hét aðalpersónan það sama!

Eftir það fór myndin örlítið að breytast, en fylgdi hinni samt alveg ótrúlega vel eftir. Helsti munurinn á framvindunni er sá að í amerísku myndinni er útskýrt hver veikin er, en í spænsku myndinni er það lítið sem ekkert útskýrt – sem mér fannst kostur og eiga betur við. [spoiler]Meira að segja endaði ameríska úgáfan illa! Það var eitthvað sem ég átti engan veginn von á, því ég bjóst við að þeir myndu einhvern veginn ná að skrifa endann upp á nýtt.[/spoiler]

[REC] var meira spennandi, reyndar gæti það verið að ég vissi oftast nákvæmlega hvað myndi gerast í Quarantine – samt brá mér nokkuð oft, og [REC] hélt mér betur við efnið. Þegar ég horfði á Quarantine hugsaði ég oft “vá, djöfull gerðist þetta hratt, átti ég að ná þessu sem var að gerast?”, en í [REC] gerðist það aldrei.

Í heildina er [REC] mjög góð mynd og betri en Quarantine, þó svo að sú síðarnefnda sé langt frá því að vera léleg. Hvorug myndin mun valda þér vonbrigðum viljir þú láta þér bregða.

[REC] [xrr rating=4/5]

Quarantine [xrr rating=3/5]

Bourne beint í æð
Geri aðrir betur. Í gærkvöldi klukkan sex setti ég The Bourne Identity í tækið, klukkutíma eftir hana setti ég Supremacy í og klukkan ellefu byrjaði ég á Ultimatum og kláraði hana. Ég myndi ekkert eftir fyrstu tveimur myndunum, en þeirri þriðju mundi ég vel eftir enda tiltölulega stutt síðan ég sá hana. Það kom mér mjög á óvart hversu lélegri myndirnar voru núna. Í minningunni voru þær Rosalegar, með stóru R-i.

Fyrsta myndin var góð, en eins og gerist stundum með framhaldsmyndir skildi hún mann eftir í lausu lofti. Allar framhaldsmyndir verða að geta staðið sjálfar, það er skilyrði sem ég set.

Önnur myndin var í allt öðrum stíl, enda annar leikstjóri kominn. Hraðari myndataka, örari klippingar og meiri hasar. Það fannst mér draga myndina mest niður.

Sami galli fannst mér á þriðju myndinni, alltof örar klippingar. Myndin er samt svo fáránlega þétt, og atriðið með blaðamanninn á Waterloo stöðinni er svo geeeðveikt!

Mér fannst geðveikt að horfa á allar myndirnar í einu. Söguþráðurinn sjúklega flókinn og oft erfitt að fylgja eftir, en að horfa á þetta allt í röð meðan fyrri myndir voru enn í fersku minni gerðu myndirnar enn betri og heilsteyptari.

The Dark Knight
Ég fór á The Dark Knight, aftur, í gær.

Skoðun mín á myndinni er sú sama, þetta er besta spennumynd sem gerð hefur verið. Helsti munurinn er að mér fannst myndin ekki jafn fyndin, og Jókerinn var ekki alveg jafn góður. Two-Face fílaði ég miklu betur í þetta skipti, eftir hálfgerð vonbrigði seinast. Núna var ég búinn að sætta mig við hvernig hann leit út og var ekkert að svekkja mig á því. Gary Oldman óx örlítið í áliti hjá mér, en af einhverjum ástæðum fer hann í taugarnar á mér. Ég vildi líka óska þess að Cillian Murphy hefði verið troðið þarna inní á einhvern annan hátt, og fá fleiri atriði með honum.

En það sem ég er að reyna að segja er… Shiiiiiit hvað þessi mynd er góð!