MaggiDan.com

"Vinstri grænir vilja frið á Gaza en ófrið á Íslandi."
  • Blogg
  • Kvikmyndir
  • Um höfund
  • Myndir
  • Uppfærslur
  • Hafa samband

Avatar 3D (2009)

2 January 2010 | 19:00

Avatar (2009)

Ég fór á Avatar á miðvikudaginn. Eftir að hafa séð trailerinn fyrir myndina í bíó fyrir löngu, heillaðist ég ekki. Fannst þetta hálft tæp hugmynd og 3D hafði ekki bætt kvikmyndaupplifun mína (hafði séð áður Journey to the Center of the Earth, My Bloody Valentine og Fly Me to the Moon). Ég var þetta vegna mjög skeptískur á að þetta væri eitthvað sem mig langaði að sjá í bíó, upp á þrívíddina að gera.

Svo heyrði ég bara góða hluti um myndina, frá öllum. Allir lofuðu útlitið og þegar ég innti þá eftir svörum um innihaldið var það sagt gott. Spennan byrjaði að magnast upp hjá mér smám saman og þegar ég sat í stöppuðum salnum fann ég fyrir tilfinningu sem gerði síðast vart við sig þann 23. júlí 2008. Tilfinningin var eins og ég væri krakki í dótabúð, þar sem dótið væri gert úr nammi! Rosalegur spenningur.

Svo byrjaði myndin.

Augnaverkurinn gerði vart við sig strax á annarri mínútu. “Nei, fjandinn” hugsaði ég, “átti þetta ekki að vera fullkomin þrívídd?” En verkurinn fór og upp frá því gat ég notið einnar stórkostlegustu myndar sem gerð hefur verið. Myndin er svo flott. Þrívíddin svo vel unnin, umhverfið svo fullkomið, hugmyndin svo ágæt en handritið svo lélegt.

Hugmyndin að myndinni er góð. Að búa til mannhermu (e. Avatar) til einhverra hluta. Að búa til Avatar til verka eins og er gert í myndinni er hreint út sagt heimskulegt og tilgangslaust. Þetta er illa útfærð hugmynd. James Cameron er leikstjóri bakvið stórmyndirnar The Terminator, Titanic og The Abbyss en mér er sama. Terminator eru leiðinlegar myndir og Abyss sömuleiðis. Þetta er ekki einn af mínum uppáhalds mönnum.

Ég veit varla hvað annað ég á að segja. Það er aðeins tvennt sem stendur uppúr eftir að hafa horft á myndina. Annars vegar hve fullkomið útlitið er og hins vegar hve veik sagan er, sem dregur myndina niður. Eða kannski maður ætti að miða við hve góð sagan er, og svo hversu mikið formið hífir hana upp?
Það þýðir ekki að gefa Avatar 10, einungis vegna þess að hún er flott eða hún er með góða þrívídd. Hvað með þegar myndin kemur út á DVD? Eða hvað ef hún hefði upphaflega aldrei verið í 3D?

Þess vegna gef ég Avatar sjöu. Sagan er léleg og karakterar ótrúverðugir og illa skapaðir. Myndin er ekki leiðinleg, þannig séð. Hún er áhugaverð og njótanleg en hún er bara svo venjuleg.

Avatar fengi sex í einkunn hjá mér en tæknin hækkar hana upp um einn. Myndin á ekki skilið áttu, níu eða tíu, BARA vegna þess að hún er flott. Það er ekkert í myndinni sem við höfum ekki séð áður eða er byltingakennt.

Rating: ★★★½☆ 

Comments
4 Comments »
Categories
Kvikmyndir
Comments rss Comments rss

Click (2006)

10 November 2009 | 15:48

Click (2006)

Var að horfa á Click þannig að mér datt í hug að senda inn þessa gömlu gagnrýni sem ég gerði. Betrumbætti hana töluvert enda meira en þrjú ár síðan ég skrifaði hana og greinin í því formi ekki sú besta.
—
Frank Coraci leikstýrði myndinni. Þetta er þriðja myndin sem hann leikstýrir með Adam Sandler í aðalhlutverki, fyrst voru það The Wedding Singer og The Waterboy. Þær tvær eru fyrir löngu orðar klassískar í sögu grínmynda.

Myndin byrjar á að Michael Newman (Adam Sandler), farsæll arkitekt, reynir að kveikja á sjónvarpinu en eftir að hafa kveikt á viftu, keyrt fjarstýrðan bíl og opnað bílskúrinn segir hann að þegar hann hafi verið ungur hafi bara verið ein fjarstýring á heimilinu – og hún hafi verið að sjónvarpinu. Hann gefst upp á að reyna að kveikja á sjónvarpinu.
Seinna, um kvöldið þegar hann gerir aðra tilraun til að horfa á sjónvarpið, brjálast hann þegar hann nær ekki, aftur, að kveikja á sjónvarpinu. Hann rýkur út til að reyna að kaupa alhliða fjarstýringu (e. universal remote) en aðeins ein vafasam búð er opin sem selur þannig. Þar selur Morty (Christopher Walken) honum fjarstýringuna.
Þegar heim er komið kemst hann að óvæntum hæfileika fjarstýringarinnar. Hún getur stjórnað lífi hans eins og DVD-mynd. Hann getur skipt um kafla, skoðað gamlar minningar og hraðspólað. Meira að segja getur hann skoðað bónusefni!

Click er dæmigerð Adam Sandler mynd. Aulabrandarar eru einkennandi og Adam-Sandler-er-reiður-og-öskrar-alveg-eins-í-öllum-myndum atriðið er þarna. Aulabrandararnir eru reyndar fyndnari í þessari mynd en öðrum myndum hans finnst mér. Brandararnir eru endurteknir nokkrum sinnum í gegnum myndina, en þeir voru alltaf jafn fyndnir. Ég skellihló oftar en einu sinni að sama brandaranum í mismunandi útfærslu.

En svo líður myndin og það sem áður var grínmynd verður skyndilega hádramamynd. Þegar ég sá hana fyrst átti ég í vandræðum með að halda aftur af mér. Svo þegar ég horfði á hana núna vissi ég hverju ég átti von á. Samt, samt, var ég með tárin í augunum seinasta hluta myndarinnar. Þessi breyting á myndinni gerði myndinni samt svo miklu betri en hún hefði annars verið.

Adam Sandler er með sinn vanalega ekki of góða, eða of lélega, leik. Ég fíla hann og myndirnar hans, en ég skil fólk sem gerir það ekki mjög vel.
Álit mitt á Christopher Walken hefur verið hátt allt frá því ég sá A Blast From The Past þegar ég var lítill. Í dag er hann einn af uppáhalds leikurunum mínum. Hann hefur bara allt sem þarf að hafa. Hann er viðkunnanlegur og þægilegur í áhorfi.
Kate Beckinsale er fín í myndinni, það reynir lítið á leik hennar en hún er sæt og fín eins og hún á að vera.
David Hasselhoff er ekkert nema flottur í þessari mynd! Hann er eins og sniðinn að hlutverkinu og því ekki annað hægt en að njóta hans í myndinni.

Click er gæða mynd. Allir ættu að geta notið hennar.

Rating: ★★★★☆ 

Comments
2 Comments »
Categories
Kvikmyndir
Tags
Adam Sandler, Christopher Walken
Comments rss Comments rss

« Previous Entries

Nýlegar athugasemdir

  • Hlynur on Avatar 3D (2009)
  • Robbi on Avatar 3D (2009)
  • Stefán Claessen on Avatar 3D (2009)
  • Arnar Gísli on Avatar 3D (2009)
  • Maggi on Click (2006)
  • Arnar Gísli on Click (2006)

Flokkar

  • Blogg (61)
  • Kvikmyndir (20)
  • sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Áhugaverðar síður

  • All Music
  • Anna og Robbi
  • ÍXS / X360
  • Facebook
  • Filman – kvikmyndasíða
  • Frank & Almar
  • Frank & Ösp
  • Gemsamyndir
  • IMDB
  • One Click Movies

Tags

60 Minutes Aaron Eckhart Batman Bourne Christian Bale Christopher Nolan Chrome Clapton Danny Boyle Death From Above 1979 Denzel Washington Dorrit Eric Clapton FB ferðalög Google Heath Ledger heimskt fólk iPod Kenny vs. Spenny Kvikmyndir Lord of the Rings MSTRKRFT mótmæli Nætur-Dagvaktin Pink Floyd podcast PSP póker Retarded Policeman Risk RÚV Samskip sci-fi Sebastien Grainger Silence of the Lambs sketch Skjár 1 Spider-Man Spánn spænska torrent tónlist Vestmannaeyjar Óskar

Lifestream

  • Listened to So Deep (Feat. Jahmal Of The Carps) - MSTRKRFT.
    — July 20th via Last.fm
  • Listened to Fist of God - MSTRKRFT.
    — July 20th via Last.fm
  • Listened to Bangla Desh - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Think for Yourself - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Something - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Taxman - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Spleen; Lucy In The Sky With Diamonds - William Shatner.
    — June 17th via Last.fm
  • Listened to Common People - William Shatner.
    — June 17th via Last.fm
  • Listened to If I Needed Someone - George Harrison.
    — June 14th via Last.fm
  • Listened to Here Comes the Sun - George Harrison.
    — June 13th via Last.fm
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox