MaggiDan.com » Blogg

Prufa
Halló. Yatta. Tik tok.

Michelsen 100 ára afmælisúr
Núna 1. desember síðastliðinn gaf fjölskyldufyrirtækið frá sér úr í tilefni þess að fyrirtækið varð 100 ára 1. júlí á þessu ári. Viðtökurnar sem við höfum fengið eru rosalegar! Allir eru ánægðir með þau og hafa ekkert nema jákvætt að segja um þau. Michelsenarnir eru líka ótrúlega sáttir með þau og eru stoltir af þeim.

Úrin eru hönnuð af pabba og Robba bró í samvinnu við svissneskt fyrirtæki og framleidd þar í landi fyrir okkur. Upphaflega stóð til að koma með sjö týpur en það var alltof mikið, vegna hrunsins og hreinlega er það klikkað að reyna að koma með sjö týpur í einu. Í staðinn komum við með úr sem við erum fullkomlega sáttir með!

Michelsen hafa ekki gefið út úr í 70 ár frá því afi og langafi þurftu að hætta með sín úr vegna erfiðleika að útvega hluti í þau útaf seinni heimsstyrjöldinni.

Í úrinu eiga að sjást 100 ár. Það á að líkja eftir gömlu vasaúrunum sem afi og langafi voru með, en jafnframt vera smekklegt og nýtískulegt. Útkoman er rosalega, rosalega, klassískt úr.

Fyrirtækið sem framleiðir úrin á sér langa sögu, og byrjaði afi að stunda viðskipti við fyrirtækið fyrir tæpum 60 árum síðan og hefur verið samfellt viðskiptasamband síðan! Ótrúlegt.

Úrin eru með ETA sjálftrekktu (automatic) verki, en þeir sem þekkja til, eru þeir með mjög stöðug og traust verk.   T.d. nota Breitling, Tag Heuer, Reymond Weil og fleiri þekktir, viðurkenndir úraframleiðendur verkin þeirra.

Ólarnar eru handgerðar í Slóveníu, með stimpluðu “Michelsen Watchmakers” merki innan í þær. Hægt er að fá þrjár tegundir af ólum; brúnt og svartt naut og svartan hákarl.

Í sylgjurnar er búið að grafa Michelsen logoið.

Þess utan komu aðeins 100 úr! 100 úr – 100 ár – 100 þúsund. Úrin ættu að vera umtalsvert dýrari en við ákváðum að hafa þetta táknrænt.

Í verkið er stimplað bæði M-ið okkar og Michelsen Watchmakers fyrir neðan það.Úrin komu í það takmörkuðu upplagi að við ákváðum að hafa þau merkt. Öðru megin megin við M-ið er grafið númer hvað úrið er og svo er 100 grafið hinum megin, sem sýnir númer hvað úrið er af 100. Grafið var í verkin úti í Sviss, þannig að öruggt er að aðeins eitt úr ber hvert númer. Ef einhver hefur t.d. fengið númer 7, og annar vill það og segir “Ef þú átt númer 7 tek ég eitt stykki úr”, getum við ekki sagt “Já, ekkert mál. 7 er laust.” Hvert úr er einstakt.

Þið afsakið ef þetta er leiðinleg lesning.   Langaði bara að tjá mig um þetta. Áhugasamir geta kíkt á fleiri myndir af úrinu á facebook síðunni okkar

Villandi frétt
26. nóvember síðastliðinn var fjallað um verðmerkingar í verslunum í kvöldfréttum RÚV. Talað var um að maður ætti að passa sig á að kaupa eitthvað sem auglýst er á tilboði, en er í raun dýrara en eitthvað sem er ekki á tilboði. Þar var umfjöllunarefnið kipputilboð af kóki, þar sem fjórar flöskur eru í kippu. Í því tilboði eru fjórar flöskur á verði þriggja, í þessu tilfelli í Krónunni kostar kippan 699. Fréttamaðurinn segir að í kippunni kosti flaskan 233 kr. meðan stök flaska kosti 146 kr. og því sé stök flaska 87 kr. ódýrari en flaska í kippunni.

En bíðum nú við. Það eru fjórar flöskur í kippunni og því verið aðeins að fela sannleikann til að krydda fréttina. Ef við deilum þessum 699 kr. sem kippan kostar á fjórar flöskur fáum við út á hver flaska er á 175 kr. en ekki 233 kr. Að vísu er þá stök flaska ennþá ódýrari en flaskan í kippunni, en í fréttinni er Coke Zero tekið sem dæmi. Venjulegt coke, með rauðum miða, er dýrari stök en í þessari kippu. Ég veit ekki nákvæmt verð en það er nálægt 200 kr. og langoftast yfir því.

Burtséð frá öllu finnst mér það ómerkilegt hjá RÚV að segja að flaskan kosti 233 kr., þegar RÚV-menn ásamt flestu fólki sér að raunverulegt verð er 175 kr.

Hringferðin
Miðvikudaginn 8. júlí hélt ég í langferð þvert yfir landið, eða til Egilsstaða. Ástæðan var ættarmót hjá fjölskyldunni hennar Örnu. Í för með mér var Arna, foreldrar hennar, litli bró, amma og afi og tvö frændsystkin Örnu á okkar aldri.

Við keyrðum fyrst til Akureyrar með viðkomu á öllum mögulegum stöðum á leiðinni. Borgarnes, Staðarskáli og Varmahlíð.

Þegar við loksins komum á Akureyri áttum við pantað svefnpokapláss í tvær nætur á Lónsá. Mér brá heldur betur þegar ég sá aðstöðuna, þessu var skipt í herbergi og með rúmum og öllu. Ég sá fyrir mér stóran sal með dýnum og 50 Þjóðverjum. Fyrsti dagurinn fór í lítið og annar svo sem líka. Aðallega spil og dundur.

Þá keyrðum við austur á Ketilsstaði, þaðan sem Arna er ættuð, á ættarmótið á föstudeginum. Arna hefur talað um þetta ættarmót frá því við byrjuðum saman og hversu legendary drykkfelld ættin hennar væri. Ég hafði því býsna háar væntingar. Í ljós kom að ættin var greinilega ekki í stuði þessi tvö kvöld, því aðallega sáu unglingarnir um að drekka.

Ég verð helst, í ljósi fyrri færslu hérna þar sem ég talaði um skap feðginanna Örnu og Einars, að minnast á atvik þegar við vorum að tjalda. Stefý keypti tjald-skjólvegg í Rúmfó fyrir ættarmótið, hræódýrt. Algjört drasl. Eftir að hafa snúið honum á alla mögulega kanta fundum við loksins út hvernig hann átti að snúa (ég reyndar fann strax út úr því, en mjeh, tölum ekki meira um það). Helvítis skjólveggurinn varla hélst uppi, með plastfestingar, sem halda tjaldinu uppi (sést smá á myndinni, reyndar önnur tegund). Auðvitað brotnuðu festingarnar þegar vindurinn fór á vegginn. Ég fann leið til að halda tjaldinu uppi: stinga tjaldhælum í gegnum plastið efst og binda böndin við það. Ég sem sagt, afsannaði kenningu allra um að skjólveggurinn félli eftir fyrsta daginn. Sérstaklega þau feðgin, sem kepptust við að tala um að hann myndi falla. Snillingur er ég.

Það er mikið um skrítin nöfn í ættinni hjá Örnu. Eins og frægt er heitir hún Arna Vígdögg eftir ömmu sinni. Systir ömmu hennar heitir Fregn, dóttir Fregnar Vordís og dóttir Vordísar Fídes. Svo er fólk sem heitir Karel og Malen. Aldrei hafði ég heyrt þau nöfn. Og já, það eru fjórir bræður í ættinni sem heita Örn, Þröstur, Haukur og Valur! Ætli mamman heiti Lóa og pabbinn Hrafn?

Ættarmótið var vel heppnað. Sé skjólveggs-atvikið ekki talið með var algjör afslöppun í gangi þarna; útilegustólar, bjór, snakk og grill. Reyndar var keppt um Ketilsstaðabikarinn í ýmsum þrautum þar sem Vígdaggar ættleggur skíttapaði. Ég var einn af fjórum keppendum sem héldu heiðri hennar uppi…

Eftir ættarmótið fórum við á Eiða í sumarbústað, þar sem amma og afi Örnu eyddu svo heilli viku eftir að við Arna og tengdó keyrðum í bæinn. Við ákváðum að fara suðurleiðina til baka til þess, eiginlega eins, að ég gæti sagt að ég hefði farið hringinn. Þar stoppuðum við líka alls staðar sem við gátum. Djúpavogi, Höfn, Jökulsárlóni, Kirkjubæjarklaustri, Vík, Hvolsvelli. Ég reyndar vildi stoppa á Jökulsárlóni og Skaftafelli, en við keyrðum óvart framhjá því. Ég neitaði að stoppa í Hveragerði eða Selfossi, enda kominn með ógeð af stoppum og frostpinnum, sem óhjákvæmilega fylgdu stoppunum.

Í heildina keypti ég bensín fyrir 20.000 krónur í ferðinni. Það er ansi sárt í ljósi þess að við vorum á þremur bílum, og væntanlega borguðu þau það sama í bensín. Það er heldur ekkert djók að ferðast innanlands.

En þar sem keyrslan var virkilega löng hugsaði ég út í það og bjó til geðveikan lagalista sem átti að halda mér í góðu skapi allan tímann meðan ég væri að keyra. Það heppnaðist fullkomlega, enda er ég með geðveikan smekk á tónlist. (Tölum ekki um það hvernig Arna og frændi hennar skemmtu sér.) Ég reyndar klúðraði “Popp” hlutanum þegar ég brenndi hann á disk. Hann fór á tvo diska og uppröðunin í fokki.

3 ár, IKEA, útskrift, …, …
Í gær (það er víst komið fram yfir miðnætti núna) áttum við Arna þriggja ára byrja-saman afmæli. Við fórum út að borða á American Style (ég veit, rómó), en annar staður átti að vera fyrir valinu. Aumingja Arna tók lokapróf úr eðlisfræði í Sumarskólanum í FB rétt fyrir deitið og gekk víst ekki alltof vel. Við skemmtum okkur þó vel bæði tvö.

Ég var ýkt rómó og gaf henni hjartahálsmen og hring í stíl. Enduðum svo hjá Möggu, Jóu og Bigga þar sem við átum okkur endanlega pakksödd af pönnukökum.

Það hefur heldur mikið gengið á hjá mér seinustu vikur. Við fjárfestum í nýjum skáp úr IKEA fyrir hálfum mánuði, hurðirnar voru ekki til en við fengum þær í dag.

Það er meira djöfulsins málið að setja saman þessi helvítis IKEA húsgögn, sem eiga að vera fíflheld. Miðað við skapsveiflurnar hjá feðginunum þetta kvöld kvíði ég því að setja hurðirnar upp!

Þar á undan gerðist sá merki atburður að ég útskrifaðist frá FB. Í framhaldi af því sótti ég um stjórnmálafræði við HÍ og er kominn inn, enda verðlaunadrengur hér á ferð! Já, ég var kallaður upp fyrir framan allan salinn þar sem mér voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í umhverfisfræði. Ég fékk í verðlaun þessa stóru, fínu bók sem heitir Dýrin.

En áður en ég útskrifaðist dimmiteraði ég. Ég held að orðið “vá” nái ekki að lýsa því hversu vel ég skemmti mér þann daginn og hversu timbraður ég var daginn eftir.

Annars er það kannski nýjast í fréttum af mér að ég gerðist, svona í tilefni af umhverfisfræðinni, umhverfisvænn. Ég keypti mér þriggja mánaða strætókort í fyrradag. Það er óþarfi að keyra alla leið niður í bæ og til baka á hverjum degi. Ég geng núna í tvær mínútur út á stoppistöð, tek einn strætó alla leið niður í vinnu, er ekki hálftíma á leiðinni og er kominn ca. tíu mínútum fyrir opnun. Á þessu græði ég kannski ekki mikinn bensín pening, en ég þarf aldrei að leita að stæði, menga mun minna og get lesið á leiðinni eða horft á bíómynd í iPodnum. Meira að segja stefnir allt í að ég nái að klára A Long Way Down eftir Nick Hornby á næstu dögum vegna þessarra strætóferða, eftir marga mánuði af lestri. Ég gef mér ekki tíma í að lesa þegar ég er hérna heima, tek alltaf sjónvarp eða tölvu fram yfir lesturinn.

Ég fór líka í nískubíó síðasta þriðjudag á hina umtöluðu mynd, The Hangover. Jafn skemmtilega og fyndna mynd hef ég ekki séð í mörg ár. Höfundunum tókst að þjappa öllum fyndnustu og bestu viðbrögðum, atburðum og kringumstæðum sem hægt er að hugsa sér í 90 mínútna mynd. Þó myndin hafi ekki verið jafn fyndin og ég átti von á var hún samt sem áður svo fyndin, skemmtileg og vandræðaleg að hún uppskar hreina tíu hjá mér!

Á morgun (eða í dag) er stefnan sett svo á útilegu með Frank stóra bró og fleirum við Apavatn.

Hægt er að fylgjast með öllum kvikmyndum sem ég horfi á hérna uppi í “Kvikmyndir og tónlist” tabinu.

Myndir úr útskriftinni og dimmiteringunni er hægt að sjá hérna í “Myndir” tabinu.

Alveg ótrúlegt
Í fyrradag hringdi maður í mig frá Vodafone, ekki í fyrsta skiptið. Hann bauð mér 500 króna inneign ókeypis, ókeypis að hringja í fimm númer óháð kerfi (1.000 mínútur og 500 SMS) gegn því að ég færði gemsa-viðskipti mín yfir til þeirra. Ég sagðist vera sáttur með Símann en samþykkti þetta að lokum, því engin skilyrði voru fyrir þessu. Ég mátti skipta eftir mánuðinn. Þannig að ég samþykkti þetta og ætlaði að skipta aftur eftir mánuð yfir í Símann.

Í gær var hringt í mig frá Símanum og ég spurður hví ég væri að skipta. Ég sagði þeim frá tilboði Vodafone og að þeir Símamenn myndu sjá mig aftur eftir mánuð. Honum fannst það ekki nógu gott og vildi ekki að ég skipti, sama hversu stutt ég dokaði við hjá andstæðingnum. Núna fæ ég 500 króna inneign frá Símanum ókeypis næstu fimm mánuðina!

En svo fór ég að hugsa. Af hverju er ég sáttur með Símann? Ég hef verið hjá Símanum frá því ég eignaðist fyrst gemsa, líklega í 8. bekk. Í sjö ár hef ég verið hjá Símanum, undanskildum tveimur mánuðum sem ég var hjá Nova fyrir ári síðan. Á þessum tíma hafa þeir EKKERT gert fyrir mig af viti. Ég hef fengið að hringja ókeypis í einn vin innan kerfis síðasta árið eða svo. Hvernig væri að símfélögin færu að gera vel við viðskiptavini sína sem eru þegar í viðskiptum við þá? Auka ánægjuna svo maður þurfi ekki að skipta yfir í annað símfélag? Síminn reitti mig til reiði með þessu tilboði sínu, líklega væri ég sáttari með þá hefðu þeir ekkert boðið mér, því ég veit að þeir eru að bjóða nýjum viðskiptavinum betri tilboð en þeir bjóða mér, viðskiptavini til sjö ára!

Hver veit, líklega fer ég yfir til Vodafone eða Nova að fimm mánuðum liðnum.

UPDATE: Í dag var hringt í mig frá Vodafone og ég spurður hvort ég væri til í endurskoða ákvörðun mína um að fara aftur til Símans ef ég fengi auk fyrra tilboðs 1.000 krónur í viðbót á mánuði.

Ferðasaga Dana-Magga
Þá er maður kominn heill heim frá Danmörku. Reyndar einhverjum heilasellum fátækari, en það verður bara að hafa það. Ódýr fórnarkostnaður. Ferðin var farin á vegum FB, líffræðiáfanga sem einblínir á loftslagsbreytingar og gróðurhúsaáhrifin.

Við fórum í loftið um sjö leytið á þriðjudagsmorgni. Við vorum komin til Köben um hádegi að staðartíma. Glampasólskin sem tók á móti okkur. Við tókum leigubíl að gistiheimilinu sem við vorum á, og sjokkið sem ég fékk þegar ég kom þangað. Arna fór með FB til Danmerkur fyrir ári síðan og var á sama heimili, og hún sagði að þetta væri kósý; lítið og heimilislegt.

Ég mætti þangað og þetta var skítugt, subbulegt og þröngt. Mér leist ekkert á blikuna. Þetta vandist þó strax á fyrsta degi og þegar ég var að fara fannst mér ekkert að þessari aðstöðu, í þokkabót gistum við þarna hræódýrt (eigandinn er mamma kennara í skólanum).

Við höfðum alveg frjálsar hendur þennan daginn og við kíktum held ég öll á Strikið. Eyddum bara öllum deginum þar og drukkum okkur svo haugafull um kvöldið heima í húsinu.

Á öðrum degi tók námið við. Við vorum ræst eldsnemma, kl. 6.30 (eftir drykkju kvöldið áður og ekki búin að venjast dönskum tíma!), til þess að fara til Fredericia þar sem FB er í samvinnu við Fredericia Gymnasium (þetta er ekki líkamsræktarstöð, gymnasium er framhaldsskóli á dönsku). Dagurinn var einstaklega leiðinlegur og langur. Við vorum ekki komin til baka fyrr en um 22. Þá drukkum við okkur aftur haugafull. Það var fjör.

Á þriðja degi komu Fredericia líkamsræktarfrömuðirnir til okkar í Köben, þar sem við kíktum í Kaupmannahafnarháskóla. Þar hlustuðum við á mjög áhugaverðan fyrirlestur frá manni sem fer reglulega til Grænlands og Suðurskautslandsins til að bora í jöklana. Við fengum að sjá hjá honum borkjarna í -28°C köldu herbergi. Við sáum m.a. loftið sem Jesú á að hafa andað að sér og elsta DNA í heimi (Guinnes staðfest). Restin af deginum er ekki alveg ljós, en mig minnir að við höfum eytt henni niðri í bæ á Strikinu.

Fjórði dagurinn fór hjá mér í Bakken-tívolíið. Aðrir vöknuðu eldsnemma um morguninn til þess að fara í dýragarðinn en ég lét mig ekki hafa það enda var drukkið kvöldið áður. Dagurinn var alveg frábær og skemmtum við Arna okkur frábærlega í Bakken. Um kvöldið splæsti Villa, eigandi gistiheimilisins, í pylsupartý handa okkur og haldin var kvöldvaka þar sem hvert herbergi var með skemmtiatriði. Þarf ég að taka það fram að við drukkum?

Á laugardeginum fórum við á safn og sáum þrívíddarmyndina Fly Me To The Moon. Ég var ekki að höndla þrívíddina þar sem þetta dót fer misvel í mig og ég náði engum fókus á tjaldið, þá ákvað ég að reyna að leggja mig þarna, sem heppnaðist. Eftir það fórum við í Kristjaníu í svona korter því ég á svo mikla hetjukærustu sem fannst sér vera ógnað þarna. Ekki var því mikið skoðað þar, en það litla sem ég sá var ótrúlegt. Hasslykt, umhverfið almennt, fólk og bara alltsaman var alveg ótrúlegt. Ég var kominn inn í allt annan heim. Krakkarnir sögðu að ég passaði vel inní; í wife-beater og með bjór í hönd. Við fórum aftur á Strikið eftir að hafa verið í Kristjáníu og átum á Jensens Bøfhus um kvöldið.

Á myndinni hérna til hægri stend ég á tveimur ríkjum, vinstri fóturinn í Kristjaníu og sá hægri í Danmörku.

Seinasti dagurinn var góður. Á föstudeginum hafði ég, ásamt einhverjum fleirum, gengið niður á strönd sem var í ca korters fjarlægð. Þar sáum við þessa þvílíku aðstöðu til að dýfa sér í sjóinn, liggja í sólbaði og éta nesti eða whatever svona 30 metra út í sjónum. Maður komst með því að ganga þangað á viðarbryggju. Við gerðum díl á föstudeginum að við myndum synda í sjónum daginn eftir! Þar sem við komumst ekki á ströndina á laugardeginum ákváðum við að gera það á sunnudeginum. Ath. að það var eini dagur ferðarinnar þar sem var engin sól, þannig að ég var ekki alveg jafn brattur við að fara út í sjóinn. Djöfull var hann kaldur! Meðfylgjandi eru tvö myndbönd af mér í sjónum. Eftir stutt sjósund fór helmingur hópsins í Field’s verslunarmiðstöðina þar sem ég fann mér loksins eitthvað annað en mat og áfengi að versla. Ég gat keypt mér tvær skyrtur!

Við áttum að fara í loftið 00.10 að dönskum tíma, en þegar við komum á völlinn seinkaði fluginu til 01.20. Við drápum tímann með Jungle Speed, þannig að þetta var ekki handónýtt. Fluginu seinkaði ekki meira, en sökum seinagangs einhverra aðila löbbuðum við ekki inn í vélina fyrr en 01.20; þegar við áttum að vera að fara í loftið. Við vorum þess vegna meira en einum og hálfum tíma seinna í loftið en áætlað var.

PS. Ég drakk ekki þetta kvöld. Ótrúlegt.

Allar myndirnar eru komnar á picasaweb.

Hérna er Þorbjörg kennari að synda. Hún synti fyrst okkar og er hér að synda aðra ferðina.

<object width="425" height="350" type="application/x-shockwave-flash" data="http://www.youtube.com/v/83wlpgWzwVQ"> <param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/83wlpgWzwVQ" /><param name="wmode" value="transparent" /></object>

Kiddi, ég og Valdimar að stökkva ofan í. Takið eftir því hvernig Kiddi rétt stekkur ofan í og snýr strax við. Þetta var vel planað hjá stráknum.

<object width="425" height="350" type="application/x-shockwave-flash" data="http://www.youtube.com/v/Q4cL3byyIzY"> <param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Q4cL3byyIzY" /><param name="wmode" value="transparent" /></object>

Status
Já, bara að láta í mér heyra. Það er lítið sem ekkert að frétta. Lífið gengur sinn vanagang.

Ég er að fara til Danmerkur á þriðjudaginn með skólanum, og það verður mega fjör. Er að verða spenntur, en það er svo óraunverulegt að hugsa til þess að það eru næstum því fjórir mánuðir síðan ég byrjaði í skólanum og að undirbúa og plana ferðina. Hálf skuggalegt, því það þýðir að það sé einungis mánuður eftir af skólanum… Eftir þessa viku á ég einungis ellefu skóladaga eftir. Pælið í því!

Að öðru. Eftir febrúar hef ég lítið sem ekkert horft á bíómyndir. Ég hef aðallega verið að spila í xboxinu. Þvílík snilld er það. Áhugi minn á tölvuleikjum var farinn að minnka, enda gamla xboxið orðið vel gamalt og engir nýir leikir komið út á það frá því 2005. Ég er og var tölvuleikja amateur og hafði yfirleitt aldrei fyrir því að klára leikina. Í xbox360 var komið upp verðlaunakerfi til að hvetja leikmenn til að spila leikina til hins ítrasta. T.d. fær maður ákveðið mörg stig fyrir hvert “achievement”, að sigra leikinn, klára öll hliðarverkefni, klessa bíl 100 sinnum o.s.frv. Þetta telur svo allt saman og er maður í keppni á netinu um hver er með stærsta e-typpið, þ.e. hver er með flest stig. Þetta kerfi snarvirkar á mig og vil ég helst ekki hætta í leik fyrr en ég er kominn með 100% í honum, en það er hægara gert en sagt.

Núna er alveg brjálað að gera hjá mér þar sem ég þarf að læra fyrir alla næstu viku líka. Er búinn að eyða seinustu tveimur dögunum alveg í að læra og var að enda við að rúlla upp spænsku munnlega núna, fékk 5!

Veðurspá dagsins: 99° C
Í dag hefði verið heitt, heitt, heitt hefði þessi spá gengið eftir. Í ljós kom að það var skítkalt eins og síðastliðna daga.

The Wall
Ég hef lítið hlustað á tónlist undanfarið ár, af einhverri ástæðu. iPodinn sem ég var alltaf með á mér tók að gleymast öðru hvoru og svo var ég farinn að skilja hann eftir heima.

Nýlega hef ég aftur farið að hlusta á tónlist eins mikið og ég get. Ég hlusta mest á tónlist sem ég kynntist núna þegar ég eltist, t.d. Elton John (já, ég kynntist honum fyrst núna fyrir svona fimm mánuðum), ISIS, Amy Winehouse, Emiliana Torrini, Justin, DFA1979, The White Stripes og sérstaklega Derek And The Dominos ásamt einhverjum lögum völdum af handahófi.

Þarna í listanum er ekki Pink Floyd og ekki solo Eric Clapton. Seinustu tvö árin hef ég lítið sem ekkert hlustað á þessa tvo flytjendur, og það er alveg að fara með mig. Ég veit ekki af hverju ég hef vaxið svona frá þeim. Þeir voru nánast þeir einu sem ég hlustaði á þegar ég var lítill þangað til ég náði 14 ára aldri. 24 Nights og The Wall eru líklega þeir diskar sem ég hef mest spilað. Þegar ég fór til útlanda tók ég með mér geislaspilarann minn, þessa tvo diska með og einhverjar bækur. Meira þurfti ég ekki til að lifa af þriggja tíma flugferðir. Ég hef ekki hlustað á 24 Nights í einhver ár.

Núna sit ég í tíma að skrifa ritgerð með The Wall í eyrunum (er reyndar að hlusta á Is There Anybody Out There? útgáfuna, tónleikaútgáfu). Mikið djöfull er þessi diskur sjúklega fokking geðveikur. Þetta er minn all-time uppáhaldsdiskur. In The Flesh, The Thin Ice, Run Like Hell, Mother, Goodbye Blue Sky, Comfortably Numb, Vera, Nobody Home,  Hey You og Is There Anybody Out There? láta mig fá gæsahúð við nánast hverja einustu hlustun, Það sem mér finnst svo skrítið er hvernig lög eins og Bring The Boys Back Home, jafnléleg og þau eru, hljóma vel í samhengi við í hin lögin á disknum. Hlustaðu á þau stök og þú hugsar, “hver semur svona vitleysu?” en um leið og þú heyrir allan diskinn skilurðu það. Þú… frelsast. Vá hvað þetta er góður diskur.