MaggiDan.com

"Vinstri grænir vilja frið á Gaza en ófrið á Íslandi."
  • Blogg
  • Kvikmyndir
  • Um höfund
  • Myndir
  • Uppfærslur
  • Hafa samband

Michelsen 100 ára afmælisúr

4 December 2009 | 0:25

Núna 1. desember síðastliðinn gaf fjölskyldufyrirtækið frá sér úr í tilefni þess að fyrirtækið varð 100 ára 1. júlí á þessu ári. Viðtökurnar sem við höfum fengið eru rosalegar! Allir eru ánægðir með þau og hafa ekkert nema jákvætt að segja um þau. Michelsenarnir eru líka ótrúlega sáttir með þau og eru stoltir af þeim.

Úrin eru hönnuð af pabba og Robba bró í samvinnu við svissneskt fyrirtæki og framleidd þar í landi fyrir okkur. Upphaflega stóð til að koma með sjö týpur en það var alltof mikið, vegna hrunsins og hreinlega er það klikkað að reyna að koma með sjö týpur í einu. Í staðinn komum við með úr sem við erum fullkomlega sáttir með!
Michelsen hafa ekki gefið út úr í 70 ár frá því afi og langafi þurftu að hætta með sín úr vegna erfiðleika að útvega hluti í þau útaf seinni heimsstyrjöldinni.
Í úrinu eiga að sjást 100 ár. Það á að líkja eftir gömlu vasaúrunum sem afi og langafi voru með, en jafnframt vera smekklegt og nýtískulegt. Útkoman er rosalega, rosalega, klassískt úr.

Fyrirtækið sem framleiðir úrin á sér langa sögu, og byrjaði afi að stunda viðskipti við fyrirtækið fyrir tæpum 60 árum síðan og hefur verið samfellt viðskiptasamband síðan! Ótrúlegt.
Úrin eru með ETA sjálftrekktu (automatic) verki, en þeir sem þekkja til, eru þeir með mjög stöðug og traust verk. T.d. nota Breitling, Tag Heuer, Reymond Weil og fleiri þekktir, viðurkenndir úraframleiðendur verkin þeirra.
Ólarnar eru handgerðar í Slóveníu, með stimpluðu “Michelsen Watchmakers” merki innan í þær. Hægt er að fá þrjár tegundir af ólum; brúnt og svartt naut og svartan hákarl.
Í sylgjurnar er búið að grafa Michelsen logoið.

Þess utan komu aðeins 100 úr! 100 úr – 100 ár – 100 þúsund. Úrin ættu að vera umtalsvert dýrari en við ákváðum að hafa þetta táknrænt.
Í verkið er stimplað bæði M-ið okkar og Michelsen Watchmakers fyrir neðan það.Úrin komu í það takmörkuðu upplagi að við ákváðum að hafa þau merkt. Öðru megin megin við M-ið er grafið númer hvað úrið er og svo er 100 grafið hinum megin, sem sýnir númer hvað úrið er af 100. Grafið var í verkin úti í Sviss, þannig að öruggt er að aðeins eitt úr ber hvert númer. Ef einhver hefur t.d. fengið númer 7, og annar vill það og segir “Ef þú átt númer 7 tek ég eitt stykki úr”, getum við ekki sagt “Já, ekkert mál. 7 er laust.” Hvert úr er einstakt.

Þið afsakið ef þetta er leiðinleg lesning. :-) Langaði bara að tjá mig um þetta. Áhugasamir geta kíkt á fleiri myndir af úrinu á facebook síðunni okkar

Michelsen úr

Comments
No Comments »
Categories
Blogg
Comments rss Comments rss

Villandi frétt

30 November 2009 | 16:31

26. nóvember síðastliðinn var fjallað um verðmerkingar í verslunum í kvöldfréttum RÚV. Talað var um að maður ætti að passa sig á að kaupa eitthvað sem auglýst er á tilboði, en er í raun dýrara en eitthvað sem er ekki á tilboði. Þar var umfjöllunarefnið kipputilboð af kóki, þar sem fjórar flöskur eru í kippu. Í því tilboði eru fjórar flöskur á verði þriggja, í þessu tilfelli í Krónunni kostar kippan 699. Fréttamaðurinn segir að í kippunni kosti flaskan 233 kr. meðan stök flaska kosti 146 kr. og því sé stök flaska 87 kr. ódýrari en flaska í kippunni.

En bíðum nú við. Það eru fjórar flöskur í kippunni og því verið aðeins að fela sannleikann til að krydda fréttina. Ef við deilum þessum 699 kr. sem kippan kostar á fjórar flöskur fáum við út á hver flaska er á 175 kr. en ekki 233 kr. Að vísu er þá stök flaska ennþá ódýrari en flaskan í kippunni, en í fréttinni er Coke Zero tekið sem dæmi. Venjulegt coke, með rauðum miða, er dýrari stök en í þessari kippu. Ég veit ekki nákvæmt verð en það er nálægt 200 kr. og langoftast yfir því.

Burtséð frá öllu finnst mér það ómerkilegt hjá RÚV að segja að flaskan kosti 233 kr., þegar RÚV-menn ásamt flestu fólki sér að raunverulegt verð er 175 kr.

Comments
No Comments »
Categories
Blogg
Comments rss Comments rss

« Previous Entries

Dagatal

March 2010
M T W T F S S
« Jan    
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031  

Nýlegar athugasemdir

  • Robbi on Avatar 3D (2009)
  • Stefán Claessen on Avatar 3D (2009)
  • Arnar Gísli on Avatar 3D (2009)
  • Maggi on Click (2006)
  • Arnar Gísli on Click (2006)
  • Steindór Hjartarson on Moon (2009)

Áhugaverðar síður

  • All Music
  • Anna og Robbi
  • ÍXS / X360
  • Facebook
  • Filman – kvikmyndasíða
  • Frank & Almar
  • Frank & Ösp
  • Gemsamyndir
  • IMDB
  • One Click Movies

Flokkar

  • Blogg (62)
  • Kvikmyndir (20)
  • sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Magnús D. Michelsen

Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox