Click (2006)

| 10 November 2009 | 8 Comments

Click (2006)

Var að horfa á Click þannig að mér datt í hug að senda inn þessa gömlu gagnrýni sem ég gerði. Betrumbætti hana töluvert enda meira en þrjú ár síðan ég skrifaði hana og greinin í því formi ekki sú besta.

Frank Coraci leikstýrði myndinni. Þetta er þriðja myndin sem hann leikstýrir með Adam Sandler í aðalhlutverki, fyrst voru það The Wedding Singer og The Waterboy. Þær tvær eru fyrir löngu orðar klassískar í sögu grínmynda.

Myndin byrjar á að Michael Newman (Adam Sandler), farsæll arkitekt, reynir að kveikja á sjónvarpinu en eftir að hafa kveikt á viftu, keyrt fjarstýrðan bíl og opnað bílskúrinn segir hann að þegar hann hafi verið ungur hafi bara verið ein fjarstýring á heimilinu – og hún hafi verið að sjónvarpinu. Hann gefst upp á að reyna að kveikja á sjónvarpinu.
Seinna, um kvöldið þegar hann gerir aðra tilraun til að horfa á sjónvarpið, brjálast hann þegar hann nær ekki, aftur, að kveikja á sjónvarpinu. Hann rýkur út til að reyna að kaupa alhliða fjarstýringu (e. universal remote) en aðeins ein vafasam búð er opin sem selur þannig. Þar selur Morty (Christopher Walken) honum fjarstýringuna.
Þegar heim er komið kemst hann að óvæntum hæfileika fjarstýringarinnar. Hún getur stjórnað lífi hans eins og DVD-mynd. Hann getur skipt um kafla, skoðað gamlar minningar og hraðspólað. Meira að segja getur hann skoðað bónusefni!

Click er dæmigerð Adam Sandler mynd. Aulabrandarar eru einkennandi og Adam-Sandler-er-reiður-og-öskrar-alveg-eins-í-öllum-myndum atriðið er þarna. Aulabrandararnir eru reyndar fyndnari í þessari mynd en öðrum myndum hans finnst mér. Brandararnir eru endurteknir nokkrum sinnum í gegnum myndina, en þeir voru alltaf jafn fyndnir. Ég skellihló oftar en einu sinni að sama brandaranum í mismunandi útfærslu.

En svo líður myndin og það sem áður var grínmynd verður skyndilega hádramamynd. Þegar ég sá hana fyrst átti ég í vandræðum með að halda aftur af mér. Svo þegar ég horfði á hana núna vissi ég hverju ég átti von á. Samt, samt, var ég með tárin í augunum seinasta hluta myndarinnar. Þessi breyting á myndinni gerði myndinni samt svo miklu betri en hún hefði annars verið.

Adam Sandler er með sinn vanalega ekki of góða, eða of lélega, leik. Ég fíla hann og myndirnar hans, en ég skil fólk sem gerir það ekki mjög vel.
Álit mitt á Christopher Walken hefur verið hátt allt frá því ég sá A Blast From The Past þegar ég var lítill. Í dag er hann einn af uppáhalds leikurunum mínum. Hann hefur bara allt sem þarf að hafa. Hann er viðkunnanlegur og þægilegur í áhorfi.
Kate Beckinsale er fín í myndinni, það reynir lítið á leik hennar en hún er sæt og fín eins og hún á að vera.
David Hasselhoff er ekkert nema flottur í þessari mynd! Hann er eins og sniðinn að hlutverkinu og því ekki annað hægt en að njóta hans í myndinni.

Click er gæða mynd. Allir ættu að geta notið hennar.

[xrr rating=4/5]

Tags: ,

Category: Kvikmyndir

About the Author (Author Profile)

Comments (8)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Arnar Gísli says:

    Ég vil minna þig á að ég fór með þér á þessa mynd á sínum tíma í Smárabíói… hitti þarna Örnu í fyrsta sinn ef ég man rétt.

    Anywho.. við viðurkenndum báðir að hafa tárast yfir endalokum myndarinnar á meðan Arna var cold as ice! :D

    Gaman að rifja svona upp…

  2. Maggi says:

    Hárrétt. Ég, þú, Arna og Bjarki, frekar en Valdi.
    Ég réð varla við tárin í bíóinu enda með sorglegustu endum sem ég hef séð í kvikmynd,

    Ég vil meina að Ásdís Rán sé rangtitluð sem Ísdrottningin. Arna Vígdögg bæri það nafn með rentu.

  3. skype hack says:

    I do consider all the ideas you’ve introduced to your post. They’re really convincing and can definitely work. Nonetheless, the posts are too brief for newbies. May just you please prolong them a bit from next time? Thank you for the post.

  4. I’ll immediately seize your rss feed as I can not in finding your e-mail subscription hyperlink or e-newsletter service. Do you have any? Please permit me recognize in order that I may just subscribe. Thanks.

  5. Er einmitt a punkta hjá m r lista yfir þa sem g þarf a kenna barninu þarna þennan fyrsta klukkut ma.

  6. Your article contains valid and informative views with which I can relate. You have certainly done your homework which is proven by reading your content. http://www.samsung1080phdtv.net/

  7. And to be fair, so are the crowd A few come up at the end of every gig and there s a quick chat, they re all really supportive.

  8. 99 in stock at CD Universe, When virginal 20 something Mary Elizabeth PARASOMNIAs Alison Brie went to sleep last night, she didnt think.

Leave a Reply