À l’intérieur (Inside) (2007)
17 October 2009 | 13:58À l’intérieur er ein ógeðslegasta mynd sem ég hef séð. Ekki veit ég af hverju horfi á svona myndir. Ég veit að þær eru ljótar, vondar og láta mér líða illa. Samt hafa þær eitthvað aðdráttarafl á mig. Látum þetta vera viðvörunina ef þú ert ekki hrifin af blóði, drápum og pyntingum.
Myndin er frönsk framleidd fyrir lágmarks fjármagn og er henni leikstýrt a Alexandre Bustillo og Julien Maury. Þetta er fyrsta og eina mynd þeirra félaga þannig að að öllum líkindum hefurðu ekki heyrt um þá. Nema þú auðvitað hafir séð þessa mynd. Með aðalhlutverk fara tvær konur, Béatrice Dalle og Alysson Paradis. Þær hafa nær eingöngu leikið í frönskum myndum, en sú fyrrnefnda lék í mynd með Nick Nolte, Clean (2004). Allir aðrir fara með smáhlutverk.
Í upphafi myndarinnar lendir Sarah (Alysson Paradis) í bílslysi, komin fimm mánuði á leið. Maðurinn hennar deyr í árekstrinum ásamt farþegum hins bílsins, þannig að Sarah er eini eftirlifandi slyssins. Fjórum mánuðum seinna, eða á jóladag, á Sarah að eiga. Á aðfangadag bankar ókunnug kona á dyrnar hjá Söruh sem er ein heima, enn syrgjandi manninn sinn. Ókunnuga konan biður hana um að fá að nota síma Söruh þar sem bíllinn hennar bilaði skammt frá og síminn hennar batteríslaus. Þegar Sarah neitar að hleypa henni inn hitnar í kolunum. Konan ætlar sér að fá barnið hennar Söruh.
Antichrist vakti mikla athygli fyrir pyntingar og viðbjóð; menn ældu á frumsýningunni og gengu út. Ekki skil ég alla fjölmiðlaumfjöllunina sem sú mynd fékk. Ég er búinn að horfa á hana og hún er léleg. Kannski ekki en mér fannst það. Hún var ofbeldisfull, já. Ógeðsleg, jaaa… á köflum. Góð, nei. À l’intérieur er allt ofangreint. Af hverju fékk hún ekki umfjöllun? Nú geri ég mér grein fyrir því að það er framleitt ógrynni af hryllingsmyndum sem þessari. Oft eru þær japanskar og fara ekki út fyrir Asíumarkað. Þessi mynd er frönsk. Það á að ná athygli fjölmiðlanna. Í þokkabót vann hún þrjú verðlaun á kvikmyndahátíðum!
À l’intérieur er góð. Hún hefur allt sem svona mynd þarf. Hún er spennandi, ógeðsleg – en ekki of, hefur fínan söguþráð og öflugan endi. Leikararnir skemma ekki fyrir heldur. Alltof oft í hryllingsmyndum eru lélegir leikarar, það á ekki við hérna.
Rating: 












Nýlegar athugasemdir