MaggiDan.com

"Vinstri grænir vilja frið á Gaza en ófrið á Íslandi."
  • Blogg
  • Kvikmyndir
  • Um höfund
  • Myndir
  • Uppfærslur
  • Hafa samband

3 ár, IKEA, útskrift, …, …

27 June 2009 | 0:38

Í gær (það er víst komið fram yfir miðnætti núna) áttum við Arna þriggja ára byrja-saman afmæli. Við fórum út að borða á American Style (ég veit, rómó), en annar staður átti að vera fyrir valinu. Aumingja Arna tók lokapróf úr eðlisfræði í Sumarskólanum í FB rétt fyrir deitið og gekk víst ekki alltof vel. Við skemmtum okkur þó vel bæði tvö.
Ég var ýkt rómó og gaf henni hjartahálsmen og hring í stíl. Enduðum svo hjá Möggu, Jóu og Bigga þar sem við átum okkur endanlega pakksödd af pönnukökum.

Það hefur heldur mikið gengið á hjá mér seinustu vikur. Við fjárfestum í nýjum skáp úr IKEA fyrir hálfum mánuði, hurðirnar voru ekki til en við fengum þær í dag.
Það er meira djöfulsins málið að setja saman þessi helvítis IKEA húsgögn, sem eiga að vera fíflheld. Miðað við skapsveiflurnar hjá feðginunum þetta kvöld kvíði ég því að setja hurðirnar upp!

Þar á undan gerðist sá merki atburður að ég útskrifaðist frá FB. Í framhaldi af því sótti ég um stjórnmálafræði við HÍ og er kominn inn, enda verðlaunadrengur hér á ferð! Já, ég var kallaður upp fyrir framan allan salinn þar sem mér voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í umhverfisfræði. Ég fékk í verðlaun þessa stóru, fínu bók sem heitir Dýrin.

En áður en ég útskrifaðist dimmiteraði ég. Ég held að orðið “vá” nái ekki að lýsa því hversu vel ég skemmti mér þann daginn og hversu timbraður ég var daginn eftir.

Annars er það kannski nýjast í fréttum af mér að ég gerðist, svona í tilefni af umhverfisfræðinni, umhverfisvænn. Ég keypti mér þriggja mánaða strætókort í fyrradag. Það er óþarfi að keyra alla leið niður í bæ og til baka á hverjum degi. Ég geng núna í tvær mínútur út á stoppistöð, tek einn strætó alla leið niður í vinnu, er ekki hálftíma á leiðinni og er kominn ca. tíu mínútum fyrir opnun. Á þessu græði ég kannski ekki mikinn bensín pening, en ég þarf aldrei að leita að stæði, menga mun minna og get lesið á leiðinni eða horft á bíómynd í iPodnum. Meira að segja stefnir allt í að ég nái að klára A Long Way Down eftir Nick Hornby á næstu dögum vegna þessarra strætóferða, eftir marga mánuði af lestri. Ég gef mér ekki tíma í að lesa þegar ég er hérna heima, tek alltaf sjónvarp eða tölvu fram yfir lesturinn.

Ég fór líka í nískubíó síðasta þriðjudag á hina umtöluðu mynd, The Hangover. Jafn skemmtilega og fyndna mynd hef ég ekki séð í mörg ár. Höfundunum tókst að þjappa öllum fyndnustu og bestu viðbrögðum, atburðum og kringumstæðum sem hægt er að hugsa sér í 90 mínútna mynd. Þó myndin hafi ekki verið jafn fyndin og ég átti von á var hún samt sem áður svo fyndin, skemmtileg og vandræðaleg að hún uppskar hreina tíu hjá mér!

Á morgun (eða í dag) er stefnan sett svo á útilegu með Frank stóra bró og fleirum við Apavatn.

Hægt er að fylgjast með öllum kvikmyndum sem ég horfi á hérna uppi í “Kvikmyndir og tónlist” tabinu.
Myndir úr útskriftinni og dimmiteringunni er hægt að sjá hérna í “Myndir” tabinu.

Comments
2 Comments »
Categories
Blogg
Tags
FB, IKEA, strætó
Comments rss Comments rss

Alveg ótrúlegt

12 June 2009 | 12:30

Í fyrradag hringdi maður í mig frá Vodafone, ekki í fyrsta skiptið. Hann bauð mér 500 króna inneign ókeypis, ókeypis að hringja í fimm númer óháð kerfi (1.000 mínútur og 500 SMS) gegn því að ég færði gemsa-viðskipti mín yfir til þeirra. Ég sagðist vera sáttur með Símann en samþykkti þetta að lokum, því engin skilyrði voru fyrir þessu. Ég mátti skipta eftir mánuðinn. Þannig að ég samþykkti þetta og ætlaði að skipta aftur eftir mánuð yfir í Símann.

Í gær var hringt í mig frá Símanum og ég spurður hví ég væri að skipta. Ég sagði þeim frá tilboði Vodafone og að þeir Símamenn myndu sjá mig aftur eftir mánuð. Honum fannst það ekki nógu gott og vildi ekki að ég skipti, sama hversu stutt ég dokaði við hjá andstæðingnum. Núna fæ ég 500 króna inneign frá Símanum ókeypis næstu fimm mánuðina!

En svo fór ég að hugsa. Af hverju er ég sáttur með Símann? Ég hef verið hjá Símanum frá því ég eignaðist fyrst gemsa, líklega í 8. bekk. Í sjö ár hef ég verið hjá Símanum, undanskildum tveimur mánuðum sem ég var hjá Nova fyrir ári síðan. Á þessum tíma hafa þeir EKKERT gert fyrir mig af viti. Ég hef fengið að hringja ókeypis í einn vin innan kerfis síðasta árið eða svo. Hvernig væri að símfélögin færu að gera vel við viðskiptavini sína sem eru þegar í viðskiptum við þá? Auka ánægjuna svo maður þurfi ekki að skipta yfir í annað símfélag? Síminn reitti mig til reiði með þessu tilboði sínu, líklega væri ég sáttari með þá hefðu þeir ekkert boðið mér, því ég veit að þeir eru að bjóða nýjum viðskiptavinum betri tilboð en þeir bjóða mér, viðskiptavini til sjö ára!

Hver veit, líklega fer ég yfir til Vodafone eða Nova að fimm mánuðum liðnum.

UPDATE: Í dag var hringt í mig frá Vodafone og ég spurður hvort ég væri til í endurskoða ákvörðun mína um að fara aftur til Símans ef ég fengi auk fyrra tilboðs 1.000 krónur í viðbót á mánuði.

Comments
No Comments »
Categories
Blogg
Tags
Nova, Síminn, Vodafone
Comments rss Comments rss

Dagatal

June 2009
M T W T F S S
« Apr   Jul »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930  

Nýlegar athugasemdir

  • Robbi on Avatar 3D (2009)
  • Stefán Claessen on Avatar 3D (2009)
  • Arnar Gísli on Avatar 3D (2009)
  • Maggi on Click (2006)
  • Arnar Gísli on Click (2006)
  • Steindór Hjartarson on Moon (2009)

Áhugaverðar síður

  • All Music
  • Anna og Robbi
  • ÍXS / X360
  • Facebook
  • Filman – kvikmyndasíða
  • Frank & Almar
  • Frank & Ösp
  • Gemsamyndir
  • IMDB
  • One Click Movies

Flokkar

  • Blogg (62)
  • Kvikmyndir (20)
  • sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Magnús D. Michelsen

Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox