Ferðasaga Dana-Magga

| 11 April 2009 | 2 Comments

Þá er maður kominn heill heim frá Danmörku. Reyndar einhverjum heilasellum fátækari, en það verður bara að hafa það. Ódýr fórnarkostnaður. Ferðin var farin á vegum FB, líffræðiáfanga sem einblínir á loftslagsbreytingar og gróðurhúsaáhrifin.

danmorkVið fórum í loftið um sjö leytið á þriðjudagsmorgni. Við vorum komin til Köben um hádegi að staðartíma. Glampasólskin sem tók á móti okkur. Við tókum leigubíl að gistiheimilinu sem við vorum á, og sjokkið sem ég fékk þegar ég kom þangað. Arna fór með FB til Danmerkur fyrir ári síðan og var á sama heimili, og hún sagði að þetta væri kósý; lítið og heimilislegt.
Ég mætti þangað og þetta var skítugt, subbulegt og þröngt. Mér leist ekkert á blikuna. Þetta vandist þó strax á fyrsta degi og þegar ég var að fara fannst mér ekkert að þessari aðstöðu, í þokkabót gistum við þarna hræódýrt (eigandinn er mamma kennara í skólanum).
Við höfðum alveg frjálsar hendur þennan daginn og við kíktum held ég öll á Strikið. Eyddum bara öllum deginum þar og drukkum okkur svo haugafull um kvöldið heima í húsinu.

Á öðrum degi tók námið við. Við vorum ræst eldsnemma, kl. 6.30 (eftir drykkju kvöldið áður og ekki búin að venjast dönskum tíma!), til þess að fara til Fredericia þar sem FB er í samvinnu við Fredericia Gymnasium (þetta er ekki líkamsræktarstöð, gymnasium er framhaldsskóli á dönsku). Dagurinn var einstaklega leiðinlegur og langur. Við vorum ekki komin til baka fyrr en um 22. Þá drukkum við okkur aftur haugafull. Það var fjör.

RáðhústorgiðÁ þriðja degi komu Fredericia líkamsræktarfrömuðirnir til okkar í Köben, þar sem við kíktum í Kaupmannahafnarháskóla. Þar hlustuðum við á mjög áhugaverðan fyrirlestur frá manni sem fer reglulega til Grænlands og Suðurskautslandsins til að bora í jöklana. Við fengum að sjá hjá honum borkjarna í -28°C köldu herbergi. Við sáum m.a. loftið sem Jesú á að hafa andað að sér og elsta DNA í heimi (Guinnes staðfest). Restin af deginum er ekki alveg ljós, en mig minnir að við höfum eytt henni niðri í bæ á Strikinu.

Fjórði dagurinn fór hjá mér í Bakken-tívolíið. Aðrir vöknuðu eldsnemma um morguninn til þess að fara í dýragarðinn en ég lét mig ekki hafa það enda var drukkið kvöldið áður. Dagurinn var alveg frábær og skemmtum við Arna okkur frábærlega í Bakken. Um kvöldið splæsti Villa, eigandi gistiheimilisins, í pylsupartý handa okkur og haldin var kvöldvaka þar sem hvert herbergi var með skemmtiatriði. Þarf ég að taka það fram að við drukkum? :D

KristjaníaÁ laugardeginum fórum við á safn og sáum þrívíddarmyndina Fly Me To The Moon. Ég var ekki að höndla þrívíddina þar sem þetta dót fer misvel í mig og ég náði engum fókus á tjaldið, þá ákvað ég að reyna að leggja mig þarna, sem heppnaðist. Eftir það fórum við í Kristjaníu í svona korter því ég á svo mikla hetjukærustu sem fannst sér vera ógnað þarna. Ekki var því mikið skoðað þar, en það litla sem ég sá var ótrúlegt. Hasslykt, umhverfið almennt, fólk og bara alltsaman var alveg ótrúlegt. Ég var kominn inn í allt annan heim. Krakkarnir sögðu að ég passaði vel inní; í wife-beater og með bjór í hönd. Við fórum aftur á Strikið eftir að hafa verið í Kristjáníu og átum á Jensens Bøfhus um kvöldið.
Á myndinni hérna til hægri stend ég á tveimur ríkjum, vinstri fóturinn í Kristjaníu og sá hægri í Danmörku.

Seinasti dagurinn var góður. Á föstudeginum hafði ég, ásamt einhverjum fleirum, gengið niður á strönd sem var í ca korters fjarlægð. Þar sáum við þessa þvílíku aðstöðu til að dýfa sér í sjóinn, liggja í sólbaði og éta nesti eða whatever svona 30 metra út í sjónum. Maður komst með því að ganga þangað á viðarbryggju. Við gerðum díl á föstudeginum að við myndum synda í sjónum daginn eftir! Þar sem við komumst ekki á ströndina á laugardeginum ákváðum við að gera það á sunnudeginum. Ath. að það var eini dagur ferðarinnar þar sem var engin sól, þannig að ég var ekki alveg jafn brattur við að fara út í sjóinn. Djöfull var hann kaldur! Meðfylgjandi eru tvö myndbönd af mér í sjónum. Eftir stutt sjósund fór helmingur hópsins í Field’s verslunarmiðstöðina þar sem ég fann mér loksins eitthvað annað en mat og áfengi að versla. Ég gat keypt mér tvær skyrtur!

Við áttum að fara í loftið 00.10 að dönskum tíma, en þegar við komum á völlinn seinkaði fluginu til 01.20. Við drápum tímann með Jungle Speed, þannig að þetta var ekki handónýtt. Fluginu seinkaði ekki meira, en sökum seinagangs einhverra aðila löbbuðum við ekki inn í vélina fyrr en 01.20; þegar við áttum að vera að fara í loftið. Við vorum þess vegna meira en einum og hálfum tíma seinna í loftið en áætlað var.
PS. Ég drakk ekki þetta kvöld. Ótrúlegt.

Allar myndirnar eru komnar á picasaweb.

Hérna er Þorbjörg kennari að synda. Hún synti fyrst okkar og er hér að synda aðra ferðina.

Kiddi, ég og Valdimar að stökkva ofan í. Takið eftir því hvernig Kiddi rétt stekkur ofan í og snýr strax við. Þetta var vel planað hjá stráknum.

Tags: , , ,

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (2)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Arnar Gísli says:

    Gaman að þessari sögu. Myndböndin sérlega skemmtileg. Hló mig alveg máttlausan þegar Maggi var að sýna hversu mikill karlmaður hann væri með að dýfa annarri löppinni ofaní sjóinn :)

  2. Valdimar Örn says:

    Djöfull langar mig aftur þangað bara til að synda. Þetta var snilld.

Leave a Reply