Status
25 March 2009 | 15:48Já, bara að láta í mér heyra. Það er lítið sem ekkert að frétta. Lífið gengur sinn vanagang.
Ég er að fara til Danmerkur á þriðjudaginn með skólanum, og það verður mega fjör. Er að verða spenntur, en það er svo óraunverulegt að hugsa til þess að það eru næstum því fjórir mánuðir síðan ég byrjaði í skólanum og að undirbúa og plana ferðina. Hálf skuggalegt, því það þýðir að það sé einungis mánuður eftir af skólanum… Eftir þessa viku á ég einungis ellefu skóladaga eftir. Pælið í því!
Að öðru. Eftir febrúar hef ég lítið sem ekkert horft á bíómyndir. Ég hef aðallega verið að spila í xboxinu. Þvílík snilld er það. Áhugi minn á tölvuleikjum var farinn að minnka, enda gamla xboxið orðið vel gamalt og engir nýir leikir komið út á það frá því 2005. Ég er og var tölvuleikja amateur og hafði yfirleitt aldrei fyrir því að klára leikina. Í xbox360 var komið upp verðlaunakerfi til að hvetja leikmenn til að spila leikina til hins ítrasta. T.d. fær maður ákveðið mörg stig fyrir hvert “achievement”, að sigra leikinn, klára öll hliðarverkefni, klessa bíl 100 sinnum o.s.frv. Þetta telur svo allt saman og er maður í keppni á netinu um hver er með stærsta e-typpið, þ.e. hver er með flest stig. Þetta kerfi snarvirkar á mig og vil ég helst ekki hætta í leik fyrr en ég er kominn með 100% í honum, en það er hægara gert en sagt.
Núna er alveg brjálað að gera hjá mér þar sem ég þarf að læra fyrir alla næstu viku líka. Er búinn að eyða seinustu tveimur dögunum alveg í að læra og var að enda við að rúlla upp spænsku munnlega núna, fékk 5!






Nýlegar athugasemdir