Óskarinn 2009
Seinustu vikurnar hefur verið í gangi “Project February”, en það gengur út á að horfa á 28 myndir á jafnmörgum dögum. Ég horfði gagngert á allar myndirnar sem tilnefndar eru til bestu myndar á Óskarnum núna (fyrir utan Slumdog Millionaire sem ég sá í janúar). Niðurstaðan er þessi, besta mynd efst, versta mynd neðst.
Hægt er að fylgjast með Project February hér.
Besta mynd:
Frost/Nixon
![]()
Frost/Nixon er ógeðslega góð mynd. Besta myndin af þeim sem tilnefnd er til bestu myndar, en þó ekki best af öllum þeim myndum sem komu út á seinasta ári.
Myndin sýnir mannlega hlið á Nixon sem ég vissi ekki að væri til, ég hef alltaf séð hann í slæmu ljósi (sbr. Futurama) og að hann væri heilalaus maður. Það kemur í ljós að svo er ekki; hann virðist hafa átt erfiða æsku og unglingsár og að hann var virkilega, virkilega kappsamur. Anywho, besta myndin sem var tilnefnd.
The Curious Case of Benjamin Button
![]()
Ég veit ekki alveg hvað skal segja varðandi þessa mynd. Rosaleg sérstök, ruglingsleg á tíðum og full af einhverjum táknum. Fyrir mig, sem bara-aðeins-fyrir-ofan-meðal-áhuga-kvikmyndanörd, var myndin ekki jafn rosaleg og allir vilja meina. Ef ég myndi nenna að spá í öllum táknunum; m.a. kólibrífuglinn og klukkan, væri myndin eflaust miklu betri og dýpri, en ég nenni ekki að kafa ofan í það þannig að myndin fær “bara” 7. Eins og það sé ekki gott?
Milk
![]()
Sko. Er þetta I Am Sam: Or, How I Traveled Back To The Future And Became A Gay Supervisor? Maðurinn var hommi, ekki þroskaheftur. Hommataktarnir hjá Penn mistókust svo svaðalega. Hann kom því alveg til skila að hann væri hommi, en fokk hvað hann stóð sig illa í því.
Eitt sem var sérstakt við myndina að mér fannst hún ekkert sérstaklega skemmtilega og hvað þá Penn sannfærandi í sínu hlutverki, en ég fékk trekk í trekk gæsahúð yfir ræðunum sem hann hélt í myndinni. Þær voru ekkert sérstaklega góðar, en þeim var komið einstaklega vel til skila.
The Reader
![]()
Þessi olli mér töluverðum vonbrigðum. Ég átti von á einhverju stórkostlegu, einhverju “mindblowing”. Það eina sem ég fékk var meðaldrama mynd, með (já, ég ætla að hætta mér út á hálan ís) engu sem ég hef ekki séð áður í leik. Kate Winslet sýndi að mínu mati ekki brilliant takta, því miður.
Ég lifði mig þó nokkuð inn í myndina og var ýmist spenntur og svekktur eftir því hvaða stefnu myndin tók.
Slumdog Millionaire
![]()
Ég ætla ekki að tjá mig frekar um þessa mynd. Ég er svo svekktur að hún hafi unnið öll þessi verðlaun, og ég er svo svekktur að flestir spá henni Óskar í öllum tilnefndum flokkum! Ef þessi er nógu góð í þennan flokk af hverju er The Dark Knight ekki hér?!?!
Varðandi einkunnagjöf á myndunum, mæla stjörnurnar ekki endilega það hversu góðar þær eru. Myndir geta verið rosalega góðar, en djöfull leiðinlegar. Sbr. The Reader og Milk. Röðin á þessum myndum fer aðallega eftir hversu skemmtilegar mér fannst þær, frekar en eftir hversu góðar þær voru. Það spilar samt væntanlega stóran hluta líka.
Besti leikur:
Af hverju skiptir kynið einhverju máli í leik? Ég sameina þetta í einn flokk og tvö efstu sætin taka verðlaunin.
Angelina Jolie í Changeling
Changeling er rosa, rosa, rosaleg mynd! Að mínu mati ætti hún að vera í flokknum hér að ofan og sigra hann. Angilega sýnir frábæran leik í myndinni.
Frank Langella í Frost/Nixon
Hann sýnir svo sannfærandi leik að mér finnst hálf svekkjandi að Angelina hafi staðið sig best, svo vel stóð hann sig og svo litla virðingu ber ég fyrir Angelinu sem leikkonu.
Ekki sakar það að hann er sjúklega líkur sjálfum Nixon í útliti, og röddin er alveg eins.
Brad Pitt í The Curious Case of Benjamin Button
Brad hefur vaxið rosalega í áliti hjá mér seinasta árið. Fyrir mér var hann alltaf eitthvert módel sem villtist inn í kvikmyndir. Leikur hans í þessari mynd á þó ekkert í leik hans í Burn After Reading.
Mickey Rourke í The Wrestler
Ekkert nema rétt yfir meðalleik hjá honum. Sorglegt að hugsa sér að þessi mynd endurspeglar að ýmsi leyti líf hans, og það hefur örugglega ekki verið auðvelt að leika þetta.
Já, svona fannst mér hún standa sig í leiknum. Af sex myndum sem ég hef séð þar sem er tilnefnt til besta leiks, lendir hún í fimmta sæti.
Ég er ekki dómhæfur á tilnefningar í hinum flokkunum.
Vanmetið:
Burn After Reading
![]()
Besta mynd.
Besti leikur. Brad Pitt. ‘Nuff said.
The Dark Knight
![]()
Besta mynd. Þarf ég virkilega að koma með rök?
Besta leikstjórn. Halló?
Changeling
![]()
Besta mynd.
Besti leikur. Angelina Jolie.
In Bruges
![]()
Besta mynd. Er reyndar mega sáttur með að handritið sé tilnefnt. Plííííís, vinntu það!
Ég geri mér grein fyrir því að þessar myndir myndu aldrei taka Óskarinn fyrir bestu mynd, en þar sem SM er á listanum er þetta frekar hugsað sem myndir sem gætu komið í stað hennar.
Ég nenni ekki að taka besta leikstjóra núna. Á morgun horfi ég á The Wrestler og mun bæta henni við inn í þar sem á við og kannski bæti ég við leikstjóra þá. Þetta er komið fínt.
Category: Kvikmyndir



This is your official notice that Dustin has opened registration for TradeVantage,
Many of our clients ask us to recommend local Estate Attorneys.
but all of the Traders who got on the “cut-in-line” list took advantage of their early access yesterday,
We are open to forming relationships where we refer you our clients and ask you do the same.
Wonderful website. A lot of helpful info here. I am sending it to several pals ans also sharing in delicious. And obviously, thanks to your effort!
I am sure Facebook site’s owners also did not expect this much creativity when they designed the web site
of course like your website however you have to check the spelling on several of your posts Many of them are rife with spelling problems and I find it very troublesome to inform the reality on the other hand I¡¦ll surely come back again
Great! I am bookmarking this site for sure. Lots of knowledge here.
It’s best to take part in a contest for one of the best blogs on the web. I’ll advocate this website!
Oh my favorite running toy is definitely my Garmin. Ever since Ive gotten it, I cant run without it! I love all the data!
Great photos! Totally takes me back to when I lived there and ran on the charles all the time!
I view something truly interesting about your web blog so I saved to fav.
You have noted very interesting points! ps decent site.