Star Wars jól
Þó ótrúlegt megi virðast, er til Star Wars jólalagadiskur! Lögin sem ég hef heyrt af disknum eru heldur alls ekki slæm. Í fyrra laginu syngur Bon Jovi þegar hann var ungur, og held ég að þetta sé fyrsta lagið sem hann söng inn á plötu. Seinna lagið man ég ekki hvað heitir, endilega segið mér það.



Þú ert algjör lúði en ég elska þig samt !
Maggi… þú ert sorglegur. Ekki af því að þú ert að pæla í þessu, heldur af því að þessi bloggfærsla er styttri en punthárin á mér þegar ég var 10 ára.
Hvernig væri að fara skrifa almennilega fléttu hérna. Eitthvað sem vert er að kommenta á annað en “ÞÚ ERT HÁLFVITI!”
Gleðileg jól sömuleiðis.
Æ nei, þetta var ekki jólakveðja. Þetta er eitthvað blogg um Star wars.
Tonedeaf.