Bourne beint í æð

| 27 October 2008 | 2 Comments

Geri aðrir betur. Í gærkvöldi klukkan sex setti ég The Bourne Identity í tækið, klukkutíma eftir hana setti ég Supremacy í og klukkan ellefu byrjaði ég á Ultimatum og kláraði hana. Ég myndi ekkert eftir fyrstu tveimur myndunum, en þeirri þriðju mundi ég vel eftir enda tiltölulega stutt síðan ég sá hana. Það kom mér mjög á óvart hversu lélegri myndirnar voru núna. Í minningunni voru þær Rosalegar, með stóru R-i.

Fyrsta myndin var góð, en eins og gerist stundum með framhaldsmyndir skildi hún mann eftir í lausu lofti. Allar framhaldsmyndir verða að geta staðið sjálfar, það er skilyrði sem ég set.
Önnur myndin var í allt öðrum stíl, enda annar leikstjóri kominn. Hraðari myndataka, örari klippingar og meiri hasar. Það fannst mér draga myndina mest niður.
Sami galli fannst mér á þriðju myndinni, alltof örar klippingar. Myndin er samt svo fáránlega þétt, og atriðið með blaðamanninn á Waterloo stöðinni er svo geeeðveikt!

Mér fannst geðveikt að horfa á allar myndirnar í einu. Söguþráðurinn sjúklega flókinn og oft erfitt að fylgja eftir, en að horfa á þetta allt í röð meðan fyrri myndir voru enn í fersku minni gerðu myndirnar enn betri og heilsteyptari.

Tags:

Category: Kvikmyndir

About the Author (Author Profile)

Comments (2)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Robbi says:

    Bourne myndirnar eru mjög góðar. Myndir 2+3 eru samt betri en fyrsta myndin, því Paul Greengrass er bara miklu öflugri leikstjóri en Doug Liman. Ég fíla einmitt myndatökuna og klippingarnar í seinni tveimur myndunum, gefur þeim skemmtilegan stíl. Bourne er einmitt alltaf á spani, hann er fljótur að hugsa og er alltaf að lenda í einhverjum vandræðum svo mér finnst þessi stíll á myndunum vel við hæfi.

  2. Arnar Gísli says:

    Maggi.. *hóst* fjölmiðlafræðiverkefnið *hóst*

    En já. Mér fanst fyrsta myndin mjög góð. Nr. 2 og 3 eru samt mun betri.

    Ekki oft þannig í svona træalógíum

Leave a Reply