Spænska
15 september 2008 | 22:17Eins og flestir sem þekkja mig vita, þá geri ég hluti sem mér finnast ekki skemmtilegir ekki oft eða ekki vel. Þess vegna ryksuga ég afar sjaldan og læri stundum ekkert alltof vel. Ég hef allavega slugsað smá varðandi skólann þannig að núna er ég með smekkfulla stundartöflu og þurfti að taka spænsku í kvöldskóla FB.
Helsti munurinn er sá að það eru meiri en helmingi færri tímar. Á meðan ég var 240 mínútur í viku í fyrra er ég núna 100 mínútur í viku í spænsku. Og það er ekkert smá gott, því þeir sem ekki þekkja til vita ekki hvað spænska er ógeðslega leiðinleg! Það er samt svo skrítið að það er ekki meira heimanám og við förum yfir alveg sama efni og þau sem eru í dagskólanum. Við sleppum bara einhverju tilgangslausu og heimskulegu drasli eins og að skrifa spænskum krökkum bréf.
Ég er yngstur í áfanganum og sá eini sem ég þekki úr dagskólanum. Núna þarf ég heldur ekki að skrifa tímaritgerð, heldur vinn ég hana smám saman heima yfir önnina. Mega sáttur.
Æ, ég veit ekki. Það er mun meira hvetjandi að þurfa bara að sitja í spænsku tíma tvisvar í viku, með helmingi minna heimanám. Það er eitthvað sem virkar betur á mig. SPÆ403 verður líka tekin í kvöldskóla.
En kennarinn sem ég var með í fyrra. Ungur strákur (’87) kenndi hana (og kennir áfram, bara ekki þennan áfanga) og kunni bara ekkert að kenna, ég náði aldrei neinu sem hann sagði. Valdi er hjá honum núna og segir að hann sé algjör horror, sömuleiðis frænka Örnu (sem er btw 55 ára! þannig að þetta er ekki bara unglinaveiki) sem er hjá honum í kvöldskóla lýsti því þannig að hann færi of hratt yfir, flakkaði handahófskennt milli hluta og útskýrði illa.







Betur verið á tölvubraut... ekkert þriðjatungumál þar :)
Arnar Gísli | 15 september 2008 | 22:28Betur verið á tölvubraut… ekkert þriðjatungumál þar