MaggiDan.com

  • rss
  • Blogg
  • Kvikmyndir & tónlist
  • Um mig
  • Myndir
  • Hafa samband

Dorrit

26 ágúst 2008 | 21:12

Hingað til hef ég ekki kippt mér upp við lætin í Dorrit, en þegar ég las þessa frétt hjá Vísi.is blöskraði mér svo svaðalega. Hvernig getur konan leyft sér þetta?

Þar segir meðal annars:

Eins og komið hefur fram dró Dorrit Moussiaeff, forsetafrú, bandaríska blaðamanninn Dan Steinberg hjá stórblaðinu Washington Post út á leikvöllinn í kjölfar sigurs íslenska handboltaliðsins á Spánverjum í undanúrslitum síðastliðinn föstudag. [...]
„Dorrit Moussaieff spurði mig [Dan Steinberg] hvernig hún kæmist inn á leikvöllinn til að samfagna ótrúlegum sigri þessarar smáþjóðar í undanúrslitaleik gegn Spáni.”
Í framhaldinu vísaði Steinberg forsetafrúnni í rétta átt en þá vildi hún ólm fá hann með sér í fagnaðarlætin. „Ég má það ekki,” svaraði Steinberg en Dorrit gaf sig ekki. „Jú, víst máttu það með mér. Ég er eiginkona forsetans. Þetta er forsetinn,” sagði hún og dró blaðamanninn í gegnum göngin og framhjá öryggisvörðunum.

PS. Lagaði tvær stafsetningarvillur þarna. Hvernig getur blaðamaður leyft sér að gera tvær villur í svona hrikalega stuttum texta?

Categories
Blogg
Tags
Dorrit
Comments rss
Comments rss

« Spánn Retarded Policeman »

4 responses

Já, og allt sem þú lest á netinu maggi er

Arnar Gísli | 27 ágúst 2008 | 21:57

Já, og allt sem þú lest á netinu maggi er heilagur sannleikur.

Annars finnst mér þetta skammarlega stutt bloggfærsla frá manni eins og þér.

Dorrit er frábær. Vekur athygli á landinu, hvortsem hún segir blaðamann forseta landsins eða ekki - ekki erum við að tapa á því.

Mér fannst best þegar hún lét eins og smákrakki

Robbi | 28 ágúst 2008 | 4:57

Mér fannst best þegar hún lét eins og smákrakki þegar Jóakim Krónprins og Mary prinsessa komu í heimsókn til Íslands í sumar. Dorrit fór að klifra í einhverjum kletti og kallaði yfir allan hópinn: “Óli! Óli! Sjáðu mig!”

Já guð, manneskjan er out of control, það verður að

Ösp | 1 september 2008 | 10:23

Já guð, manneskjan er out of control, það verður að gera eitthvað í þessu áður en…. já ég þori bara ekki að hugsa hvað gæti gerst næst!!

Mér finnst hún æði. Uppátækjasöm, óheft, hvatvís, og skemmtileg, og

Hekla Elísabet | 2 september 2008 | 2:44

Mér finnst hún æði. Uppátækjasöm, óheft, hvatvís, og skemmtileg, og það sem henni dettur í hug veldur aldrei neinum skaða. Það þurfa ekki allir sem eru í sviðsljósinu að vera með kústskaft á bólakafi í rassgatinu.

Leave a comment

You can use these tags : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Dagatal

ágúst 2008
M Þ M F F L S
« júl   sep »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Nýlegar athugasemdir

  • Robbi um „[REC] vs Quarantine“
  • Stefán um „Góð tilraun“
  • Hlynur Jón Michelsen um „Góð tilraun“
  • Maggi um „Góð tilraun“
  • Frank M um „Góð tilraun“
  • Arnar Gísli um „Góð tilraun“

Flokkar

  • Blogg (50)
  • Kvikmyndir (13)
  • Sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • Tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (7)

Blogg

  • Anna og Robbi
  • Bjarki
  • Frank & Ösp
  • Frank Gabríel
  • Hekla
  • Hlynur Jón
  • Linda
  • Myndagemsablogg
  • Stebbi
  • Tinna

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Innskrá
  • RSS-veita færslna
  • RSS-veita ummæla
  • WordPress.org

Nýlega hlustað á

Mynd af handahófi

Facebook


Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox