Köld Slóð (2006)
Ég fílaði Kalda Slóð. Myndin í heildina er góð, ef svo má að orði komast. Leikurinn er slappur hjá mörgum leikurum hennar; aðallega hjá Þresti Leó Gunnarssyni, aðalleikara myndarinnar. Þó held ég að það sé útaf handritinu sem byggir upp léleg samtöl sem gefa of mikið upp – ég meina, það talar enginn svona á Íslandi. Handritið er eins og enskt handrit hafi verið þýtt yfir á íslensku af þýðendunum hjá RÚV, ekki beint gömul íslenska heldur bara mál sem enginn talar nema þýðendurnir.
Leikararnir hafa sem sagt ekki mikið til að byggja á, en þar vega hæfileikar á móti. Enginn í myndinni nema Hjalti Rögnvaldsson, sem leikur Pétur, og hugsanlega Elva Ósk Ólafsdóttir, sem leikur Freyju, eru sannfærandi í hlutverkum sínum. Ekki einu sinni hin alþekkta Hollywood leikkona Aníta Briem stendur sig í sínu litla hlutverki.
Leikurinn er það sem dregur myndina niður, en það sem er best við myndina er að hún er íslensk. Myndin er mun íslenskari en Mýrin og það fílaði ég. Yfirlitsmyndir af Reykjavík, snjósleðar og jöklar, dauð hreindýr og mátulega lítil virkjun er það sem gerir myndin að því sem hún er.
Plottið er heldur ekki slæmt, Mýrin er of flókin og erfið að kvikmynda enda fannst mér erfitt að fylgja henni eftir en Köld Slóð er mátulega létt.
– Maður finnst látinn í virkjun fyrir norðan og er dauðsfallið stimplað sem slys, sonur mannsins sem deyr kemst að því að þetta er faðir sinn daginn eftir að hann deyr og hann rannsakar þetta því honum finnst málið eitthvað gruggugt og fer norður í virkjunina. Þar kynnist hann starfsfólki virkjunarinnar, sem virðist hafa sitthvað óhreint í pokahorninu og reynir að grennslast fyrir um það hvort faðir sinn hafi verið myrtur.
Allan tímann þóttist ég viss um hvernig þetta vildi til en vildi ekki viðurkenna að ég væri það ekki, og ef hann hefði verið myrtur hver morðinginn væri – starfsmaður eða einhver utanaðkomandi. Ef það var starfsmaður, hver þeirra gerði það?
Leikstjóri myndarinnar er Björn Björnsson en hann hefur nánast enga reynslu af leikstjórn. Tvær kvikmyndir; þessa og Njálssögu, einn þátt af Sönn íslensk sakamál og svo nú nýlegast þættina Mannaveiðar, sem verða næstir á dagskránni hjá mér.
[xrr rating=3.5/5]
Category: Kvikmyndir


