Helgin
Ég tók því rólega um helgina, eftir hressa seinustu helgi. Horfði bara á sjónvarpið á föstudaginn, enda vinna á laugardaginn.
Á laugardaginn hins vegar voru Stebbi (já, the legend) og Aníka hérna. Stebbi búinn að tala um að taka Risk í viku, en enginn gat reddað því þannig að hann kom með spilastokk og við spiluðum póker upp á eina krónur. Það var ekki alveg nógu svalt þannig að Arna kom með spilapeninga úr Take A Gamble, og þá fóru sko hjólin að snúast. Við öll amateurar nema Stebbi. Arna datt fljótt úr, og Aníka nokkrum umferðum seinna. Þá vorum við Stebbi eftir, og við gerðum þetta af frekar frekari alvöru en stelpurnar. Þarna var Stebbi með 3/5 peninganna í spilinu. Mér tókst á undraverðan hátt að koma hlutfallinu í 2/3, mér í hag. Svo tókst mér á jafn undraverðan hátt að tapa því öllu!
Að öðru…
Mamma pantaði far til Spánar á föstudaginn fyrir mig og ég fékk farið á 33 þús. Aníka pantaði farið í gær en fékk það ekki jafn ódýrt, á 48 þús. Arna og Stebbi pöntuðu núna í morgun á fengu það á 37 þús.
Arna, Aníka og Stebbi fara út 30. júlí, en ég kem út þann 9. ágúst. Sá sem veit ekki ástæðuna en nær að gisska, fær hrós. Allavega, þetta var ekkert vafamál fyrir mig hvort ég ætti að velja. Svo komum við öll heim nótt 17. ágústs. Ég leg af stað héðan um 15.30 þann 9. en þó er ég ekki lentur fyrr en klukkan 22 úti þannig af fyrsti dagurinn er algjörlega ónýtur nema kannski í djamm, enda verður klukkan þá bara 20 hjá mér. En á móti förum við ekki í loftið fyrr en um 22 þarna úti, þann 16. þannig að ég tapa ekki alveg heilum degi. Ohhhhhh, hvað ég hlakka til!
Category: Blogg



Vá, Spánn er svo spennandi! NOT. Voða frumlegt! NOT.
Ég er enn á því að þú hefðir átt að koma til mín í staðinn.
Öööööö Robbi þú átt ekki einka sundlaug og það er ekkert áfengi í boði hjá þér….og síðast þegar ég vissi er ekki hægt að fara á ströndina í Sviss =)
Hey já, gleymdi að taka fram það besta við ferðina.
Pabbi Stebba á hús þarna úti með, einmitt einkasundlaug sem Arna benti á, og húsið er átta km frá ströndinni.
Arna: Öööööööööööö Arna, víst er áfengi í boði (áfengi kostar skít og kanil hérna, uppáhaldsvínið hennar Önnu sem er hvítvín kostar t.d. bara einn franka sem er í 70 kr!) og víst er hægt að fara á strönd. Og það eru ekki 8 km þangað heldur bara 4-5 km. Þú getur spilað volleyball þar, synt í vatninu, farið í allskonar leiktæki og leigt bát. Sviss rúlar og kemur endalaust á óvart. Það er nákvæmlega ekkert spennandi við Spán.
Af hverju ekki? Útaf Spánn er útriðin mella en Sviss enn þá hrein og óuppgötvuð?
Af hverju ekki spyrðu. Hmmm, leyfðu mér að hugsa …. Jább, fann ekkert svar enda er ekkert spennandi við Spán, nema fólki finnist gaman að hanga í sól og gera ekki neitt annað.
Sviss er ekki óuppgötvað land, þvert á móti, hingað koma milljónir ferðamanna á hverju ári en bara ekki í sama tilgangi og til Spánar. Hér kemur það til að ferðast um landið, skoða borgirnar, náttúruna, fjöllin og upplifa mismunandi menningu milli landshluta.
Þegar fólk fer til Spánar, liggur það í sól og drekkur bjór. Nema kannski Barcelona enda er það eina borgin sem býður uppá einhverja menningar staði.
Já sæll eigum við að ræða þetta e-ð, hvaða holræsavín drekkuru þarna í sviss á 70 kr. …. ég tel mig vera ekki neitt svakalega fínan en hvítvín á 70kr. comon! hvernig væri aðeins að losa takið á pungnum.
En það sem þú fattar ekki Robbi er að við erum ENNÞÁ UNG!!! sem þýðir að við getum skemmt okkur á útriðnu mellunni sem spánn er!!!
og líka við erum að fara til spánar til að liggja í sólinni,drekka bjór og DJAMMA… ef maður vill menningu þá fer maður til ítalíu eða grikklands jafnvel Færeyja (not)
HOLA .
hahah Þið eruð ótrúleg sko hahah
og maggi auðvitað fékk ég ekki farið á sama verði og þú það er þess vegna ég fer miklu fyrr!! hahah en jabb
þessi umræða er slöpp..
við erum að fara til Spánar …. Djöfulll verður gamann þetta erum við (HALLÓÓÓ) Það fara allir frá sviss þegar þeir frétta að við verðum á Spáni