Bensín
Ég er búinn að vera að spá í þessu seinustu daga.
Bensínstöðvarnar eru með 2ja og 3ja krónu afslátt, ef þú ert með kort eða dælulykil. Ég nýti mér það, og er með Orkukort og Atlantsolíulykil. Fyrir fáum mánuðum kostaði bensínlítrinn 130 krónur, núna kostar hann 160 krónur. Eflaust eru einhverjir búnir að fatta hvert ég er að fara með þetta.
Þegar bensínlítri kostar 130 krónur eru 3 krónur 2.3% af hverjum lítra. Ég þykist nokkuð viss um að Robbi hafi verið með Orkukort þegar lítrinn kostaði 100 kall. Þá var það væntanlega 3% aflsáttur.
Núna kostar lítrinn 160 krónur. Það þýðir að afslátturinn er kominn niður í 1.9%.
Ef þeir gátu boðið upp á 3% afslátt fyrir kannski tveimur til þremur árum ættu þeir að geta það núna. Þá færi afslátturinn úr 3 krónum í 4.8!
Ég hef ekki hugmynd um stærð bensíntanksins míns, en ætli hann sé ekki um 40 lítra.
160 kr. lítrinn, 40 l tankur: 6.400 kr.
Með 3ja kr. afslætti: 6.280.
Með 3% afslætti: 6.208.
Ugh, langar að kaupa mér vespu.
PS. Lítri eða líter?
Category: Blogg



Allt er gert til að græða á okkur sauðunum. En meh, maður getur ekki verið að naga sig í handabökin yfir þessu bensínverði. Varst þú ekki annars hættur að keyra?
Maggi hætti að keyra á sínum bíl en svo brunaði hann á mínum bíl útum allt =) hahaha