Torrent.is

| 9 May 2008 | 5 Comments

Úrskurður Hæstaréttar kveðinn upp

May 9th, 2008
Hæstiréttur kvað upp úrskurð 8. maí í Istorrent-málinu svokallaða (hrd. 194/2008) um að málinu skuli vísað frá. Af því leiðir að Istorrent hefur unnið málið og rétthafasamtökin fjögur skulu því greiða samtals 900 þúsund í málskostnað fyrir héraðsdómi og Hæstarétti. Málið hefur kostað Istorrent yfir 3,5 milljónir fyrir héraðsdómi en ekki liggja fyrir kostnaðartölur vegna rekstur þess fyrir Hæstarétt. Samkvæmt lögbannslögum fellur lögbannið sjálfkrafa úr gildi um miðnætti aðfaranætur föstudagsins 16. maí. Áætlað er að reisa aftur skráardeilihlutann síðar sama dag ef ekkert stendur því að vegi.

Tekið af torrent.is, þann 9. maí 2008.

Hvað get ég sagt?
Í augnablikinu er EEEEKKERT sem kemur í veg fyrir að ég downloadi! Nema pabbi; hann bannar mér að dl heima. :/

Tags:

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (5)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Arnar G says:

    Dánlóda þá bara útá götu?

    Hvernig væri að fara kaupa sér almennilega tengingu sjálfur og hætta að kenna pabba um þetta.

  2. Robbi says:

    Sjitt hvað pabbi þinn er mikill pungur. Er ekki í lagi heima hjá þér? Af hverju bannar pabbi þinn þér að downloada??

  3. Frank M says:

    1) Dómnum var vísar frá á formgalla aðila sem höfðuðu málið.
    2) Það er ekki búið að taka málið til efnislegrar meðferðar.

  4. Hlynur says:

    „Í augnablikinu er EEEEKKERT sem kemur í veg fyrir að ég downloadi! Nema pabbi; hann bannar mér að dl heima. :/“

    Orð og ákvarðanir pabba þíns vega þungt. Svo þungt að hæstvirt stofnun á borð við Hæstirétt Íslands vogar sér ekki að hjóla í hann.

  5. Arnar G says:

    Af hverju þarf Frank M alltaf að vera Mr. Wiseguy…

Leave a Reply