Sæludagar

| 1 March 2008 | 5 Comments

Næsta vika í skólanum verður róleg. Skóli á mánudaginn, svo byrja svokallaðir Sæludagar eftir hádegi á þriðjudaginn og standa fram á miðvikudag. Þá á fimmtudaginn er leikritið frumsýnt og árshátíðin um kvöldið og hún verður haldin, held ég, í Keflavík eftir óheppilegar uppákomur á Selfossi á seinustu árshátíð, og mega átján ára og eldri gista ef þeir vilja. Á föstudaginn er frí.

Ég tók þá ákvörðun í vikunni að fara ekki á árshátíðina. Ballið sjálft er ekki svo skemmtilegt, og það skemtilega við árshátíðina er fordjammið og eftirpartýin á hótelinu. Þar sem Arna er ekki átján má hún ekki gista og ég nenni ekki að gista þarna án hennar, og að auki spara ég mér tíu þús kall! Og enn að auki eru einhverjir búnir að plana djamm í Reykjavík.
Í Sæludögunum er dagskrá þar sem þú getur valið milli fjölda hópa sem þú getur farið í. Ég valdi mér billiard-mót á þriðjudeginum, Twister spilið fyrir hádegi á miðvikudeginum og LAN eftir hádegi. Ég valdi LAN líka í fyrra en það endaði fljótt. Dó eftir korter í Warcraft.
Ég ætlaði mér svo að komast í sofa-út hópinn, en það er eftirsóttasti hópurinn jafnframt því að vera sá fámennasti. Fimm manns komast í hann, og það er hringt í fólkið sem fær að sofa út á klukkutíma fresti til að gá hvort það sé ekki örugglega sofandi! :)

Mestu máli skiptir þó árshátíðar-útvarpsstöðin Skank FM 89.0, þar sem mér var boðið að vera með þátt. Ég tók því og hóaði saman nokkra stráka – Gísla, Arnar Gísla og Valda – og við ætlum að vera með þáttinn Testosterón, því var breytt úr 111 Síðdegis. Eins og við er að búast vera strákahlutir þar til umræðu og strákatónlist.
Testosterón verður bara einu sinni á dagskrá, þriðjudaginn 4. mars milli 16 og 18!

Tags:

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (5)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Frank M says:

    Þemavikur eru alltaf skemmtilegar.

    Varðandi útvarpsþáttinn þá tók ég tvisvar þátt í Útvarp versló á sínum tíma, bæði sem tæknimaður og með þætti (nokkra meira að segja!).
    Það sem ég vil ráðleggja ykkur er að skipuleggja þáttinn. Gera án gríns drög að handriti. Ekki orð fyrir orð heldur handrit sem inniheldur tímasetningar, hve lengi þið ætlið að tala milli laga og svona cirka hvað (umræðuefni), hvaða lög þið ætlið að spila og lengd þeirra og reyna þannig að gera þetta nokkuð pró.
    Það er gaman að gera útvarpsþátt en það er leiðinlegt að hlusta á illa skipulagðan útvarpsþátt þar sem 5 vinir eru eitthvað að fíflast. ;-)

  2. Robbi says:

    Það er ekkert vit í því að fara á árshátíð. Allir ógeðslega fullir og ógeðslegir. Ég fór á eina árshátíð í mínum skóla af fjórum og ég sé ekkert eftir því, það var bæði dýrt og svo hafði ég ekki áhuga á því að borða vondan mat, horfa á léleg skemmtiatriði og dansa með fullu fólki (lesist: Standa kyrr á miðju dansgólfinu og hlusta á hljómsveitina).

    Ég hafði líka alltaf góða afsökun fyrir því að fara ekki. Um sumu helgi var alltaf innanhús meistaramótið í frjálsum þannig að ég sagði að ég vildi ekki fara á árshátíðina heldur undirbúa mig fyrir mótið.

    Ég veit ég er félagsskítur, en ég er bara ekki týpan sem hef gaman að svona hlutum.

    Og testesterón? Gott nafn, sérstaklega af því að allir eru uppfullir af testesteróni, eiginlega svo mikið af því að þið eruð að springa! ;)

  3. arnar f says:

    ekki spila neina tónlist sem inniheldur breskum dóphausum s.s amy wænhás eða peter dóhertí

  4. Frank M says:

    F**k. Ég hélt þið væruð á eftir. Þið voruð í gær! :-(

  5. mcgauti says:

    ég fékk einusinni að vera með útvarpsþátt á íslensku stöðinni sem er alltaf í kringum jólin, ég var rekinn út úr stúdíóinu áður en þátturinn var búinn fyrir dónaskap

Leave a Reply