Prófin búin

| 17 December 2007 | 4 Comments

Jájá. Var að sækja einkunnirnar mínar áðan og náði öllu. Ég tók fjögur próf og kláraði þau öll á fyrstu fjórum prófdögunum. Meðan Arna tók fimm próf og var viku lengur en ég, þannig að ég var heppinn í meira lagi.  Hérna eru einkunnirnar:

Fjölmiðlafræði 203: 8
Enska 403: 8
Íþróttir 242: 7!!! :o
Íslenska 403: 6
Saga 103: 5
Spænska 203: 5

Ég er sáttur með þetta, enda þarf ég á öllum mínum einingum að halda eigi ég að klára á réttum tíma. Er núna búinn að klára 85 einingar af 140, en ég er held ég fimm einingum eftir á.
Ég tók tvö próf eitt daginn og var í fríi einn af þessum fjórum dögum. Prófin tvö sem ég tók sama daginn fékk ég fimm í sitthvoru.

Þannig að ég er búinn að vera að vinna í rúmar tvær vikur og er byrjaður að vinna jólavaktirnar; 12 tíma. Mér finnst það fínt, les eða eitthvað þegar það er rólegt að gera en þegar það er brjálað að gera er það best. Allir á fullu og búðin pökkuð af fólki.

Er að lesa Gyllta Áttavitann núna í annað skiptið, í tilefni myndarinnar sem byggð er á bókinni sem kemur út á annan í jólum. Alveg mögnuð bók, nýti hvert tækifæri sem ég fæ til að lesa í henni. Stíluð sem barnabók, og er það eflaust. Ég og pabbi lásum hana þegar ég fékk hana og þó ég sé að lesa hana aftur, rúmur þremur árum seinna; nokkrum skeggbroddum og punghárum fleiri, er hún alveg jafn góð! Ætla svo að lesa líka hinar tvær bækurnar í þrennunni; Lúmska Hnífinn og Skugga Sjónaukann þegar ég klára allt sem ég ætlaði að klára að gera í jólafríinu, sem ég er ekki byrjaður á.

Tók strætó áðan í fyrsta skipti frá því að það var klesst á gamla bílinn minn. Að þurfa að labba niður á Lækjargötu í flauelsjakka, skyrtu og með fkn silkibindi í rigningu og þurfa að bíða þar eftir strætó, var ömurlegt og hálfgerð niðurlæging fyrir mig. Ég hlæ yfirleitt þegar ég sé busana í strætóskýlinu á leiðinni heim úr skólanum og keyri framhjá þeim, hugsandi til baka hvað var svekkjandi að horfa á bílastæðin hjá MS tæmast þegar ég þurfti að labba rúmlega km leið út að strætóskýlinu á Miklubrautinni.

Jólakveðjur frá Magga “gáfaða” Dan.

Tags:

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (4)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Linda says:

    Ég er búin að sjá The Golden Compass!!:)

  2. Maggi says:

    Woot? Hvar og hvernig? Er hún góð?

  3. Linda says:

    Gott að vera með réttu samböndin.
    Fékk að fara á for-forsýningu í boði MEST í Laugarásbíó.
    Já, hún var fín sko. Ekki búin að lesa bókina reyndar.

  4. Gunni says:

    hey ég klessti líka bílinn minn um dagin við erum áreksta bræður :D

Leave a Reply