Jólafrí

| 7 December 2007 | 6 Comments

Prófin voru fá hjá mér þetta árið, bara eins og frá ég byrjaði í FB. Tók fjögur í vor og fjögur seinastu jól líka, minnir mig. Þó prófin væru fá voru þetta langir dagar fyrir mig. Tók íslensku á mánudaginn, leikfimi á miðvikudaginn og spænsku og sögu í gær. Ég er viss um að ég nái öllu þó íslenskan verði tæp, enda íslenskar bókmenntir frá 1550 að 1900!

Ég er eiginlega búinn að vera að frá morgni til kvölds að læra, finnst mér allavega ;) . Nema kannski þegar ég náði ekki einbeitingu og fór að gera eitthvað annað. Ég var líka að seinustu vikuna fyrir próf að gera eitthvað sem ég hafði frestað fram á seinustu stundu.

Þannig að ég er búinn að bíða spenntur eftir fríinu, sem verður nú ekki mikið frí. Byrjaði að vinna áðan og verða að vinna daglega fram að jólum frá mánudeginum. Ég á eftir að gera mikið í fríinu. Meðal annars þetta: horfa á alla þættina af Næturvaktinni (sem ég „tók upp“……., SMÁÍS ;) ), horfa á seinustu þætti annarrar seríu af Prison Break og nýjustu þættina í þeirri þriðju, horfa á fullt af bíómyndum; þ.á.m. Jesus Camp, lesa Gyllta Áttavitann aftur – svona í tilefni af myndinni sem er að koma eftir bókinni, Eragon og númer 2 og Hitchhiker’s Guide To The Galaxy.
Efast samt um að það verði mikill laus tími milli þess sem ég mun sofa og vinna. Þarf að vinna upp mikinn svefn sem ég tapaði á seinustu tveimur vikum.

Ég er búinn að skima eftir jólagjöfum seinustu daga og reyna að láta mér detta e-ð í hug. Datt svo á eina áðan; lét slag standa og keypti hana – gegn minni betri vitund þó að tilvonandi eigandi verði mjög glaður. Sá í sömu búð ýmislegt sem mig langaði að kaupa í pakkan handa öðrum en sleppti því.

Farinn að leggja mig.

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (6)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Robbi says:

    Heldurðu að þú náir leikfiminni Íþróttaálfur?

  2. Maggi says:

    Já. Núna næ ég henni. Alveg handviss.

  3. Þorsteinn says:

    Sit einmitt sveittur núna að læra um rómantíkina (1830-1880) og fleira skemmtilegt. Án efa óáhugaverðasta námsefni sem ég hef nokkurn tímann þrælað mér í gegnum.

    Jesus Camp er fáránleg.

  4. Hlynur says:

    Skítt með hlv(&/%$&# íþróttirnar.
    Lestu Brennu Njálssögu!!!

  5. Hlynur says:

    Heyrðu frændi.
    Þetta vantar á listan þinn ,,BLOGG”

    http://kolgrimur.blog.is/blog/kolgrimur/

  6. Hlynur says:

    Þetta vita ekki allir

    Óli Palli er sammála breskum gagnrýnendum um að hljómleikarnir með Led Zeppelin í gær hafi tekist afskaplega vel. Það teljast tíðindi. Led Zeppelin var á sínum tíma, 1969 og næstu ár, besta rokkhljómsveit sögunnar. Yfirburðarmaður í hverju rúmi. Þar af John Bonham sennilega besti trommuleikari rokksögunnar. Allir að springa af sköpunargleði og löðuðu fram það besta hver í öðrum.

    Led Zeppelin lagði grunninn að þungarokkinu – þó að liðsmenn hljómsveitarinnar teldu sig vera að flytja framsækinn þjóðlagablús. Led Zeppelin fyllti glæsilega upp í skarðið sem Bítlarnir skildu eftir sig 1969. Varð það viðmið sem aðrar hljómsveitir mældu sig við.

    Fyrstu plötur LZ eru óumdeilanlega 5 stjörnu dæmi. Og hafa staðist tímans tönn með glæsibrag – þrátt fyrir að hafa verið innblásnar og litaðar af tíðaranda hippaáranna.

    Að óreyndu hefði ég ekki veðjað á að Led Zeppelin stæði undir væntingum næstum fjórum áratugum eftir að hljómsveitin lagði heiminn að fótum sér.

    Ég hef grun um að það séu ekki margir sem vita að söngvari Led Zeppelin, Robert Plant, er félagi í íslenska Ásatrúarfélaginu. Hann hefur meira að segja mætt óvænt á blót hjá Ásatrúarfélaginu. Þar kvaddi hann sér hljóðs og sagðist, sem ásatrúarmaður, vera meira en lítið ánægður yfir að á Íslandi sé starfrækt formlegt og skráð ásatrúarfélag.

    mbl.is Flottasti söngvari rokksögunnar

    http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/388958/#comments

Leave a Reply