MaggiDan.com

"Vinstri grænir vilja frið á Gaza en ófrið á Íslandi."
  • Blogg
  • Kvikmyndir
  • Um höfund
  • Myndir
  • Uppfærslur
  • Hafa samband

SMÁÍS = Fávitar

9 November 2007 | 18:47

Bahhh. Ég fór inn á IsTorrent áðan til að sjá hvort eitthvað spennandi væri þar inná, þegar ég rak augun í frétt á forsíðunni hjá þeim. Fréttin fjallar um skýrslu sem comScore gerði um nýjustu plötu Radiohead, In Rainbows. Radiohead ákvað, fyrst hljómsveita, að bjóða áðdáendum sínum að ná sér á nýjan hátt í plötu sína. Þú getur farið inn á InRainbows.com og náð þér þar í plötuna, ókeypis eða borgað fyrir hana jafn mikið og þú vilt.
Samkvæmt comScore náðu 62% aðdáenda Radiohead í plötuna ókeypis, þar á meðal ég, en 38% sem borguðu borguðu að meðaltali 350 krónur fyrir plötuna. Þarna ákváðu SMÁÍS að hamra járnið meðan það væri heitt og drulla yfir þessa aðferð Radiohead, og sanna að „þjófarnir á netinu, og aðrir“ myndu ekki borga fyrir efni sem hægt væri að fá ódýrt á netinu, heldur niðurhala því ólöglega eða borga ekkert.
Mér finnst þetta gjörsamlega fáránleg frétt hjá SMÁÍS, sem ber titilinn „Eru aðdáendur Radiohead nýskari en aðrir neytendur?“. Ég er svo drullupirraður núna bara við að lesa fréttina aftur yfir. Ég er ekki tilbúinn að borga fyrir tónlist á netinu. Ég hefði ekki borgað meira en 350 kall fyrir diskinn af netinu, en ef ég fíla tónlist kaupi ég hana á 1.999 krónur hjá Skífunni þegar ég er búinn að niðurhala henni, löglega eða ólöglega. Ég er bara svo hneykslaður á SMÁÍS, og orðbragðinu sem þeir nota í fréttinni að ég get ekki vonað annað en að fréttahöfundurinn muni eiga ömurlegt líf það sem eftir er.
Einnig er þess vert að taka fram að talsmaður Radiohead er alls ekki sáttur með könnun comScore og sagði m.a. þetta um hana: However, they can confirm that the figures quoted by the company comScore Inc are wholly inaccurate and in no way reflect definitive market intelligence or, indeed, the true success of the project.
Og talandi um verð á geisladiskum. Fyrir ári síðan kostaði DVD- og geisladiskur vanalega 1.999 krónur hjá Skífunni, nema um væri að ræða tilboð eða sérstaka útgáfu á geisladisknum. Svo voru tónlist og kvikmyndir gerðar skattfrjálsar hjá ríkinu, og lækkaði verðið þá niður í 1.834 krónur, minnir mig, og hélst þannig í einhverja mánuði. Hvað kostar DVD- og geisladiskur núna? 1.999 krónur! SMÁÍS, Skífan og allir sem koma nálægt þessu, fokking hoppið upp í rassgatið á ykkur. Ég er hættur að kaupa tónlist hérlendis.

Categories
Blogg, tónlist
Tags
torrent
Comments rss
Comments rss
Trackback
Trackback

« Tónlistarkosning á mbl.is American Gangster (2007) »

6 Responses to “SMÁÍS = Fávitar”

  1. arnar f says:
    10 November 2007 at 16:36

    ég er hjartanlega sammála þér í þessu :)

    Reply
  2. Þorsteinn says:
    11 November 2007 at 3:07

    “Já, ungir menn sem höfðu setið árum saman, fyrir framan tölvuna, bólugrafnir með bremsufar í nærbuxunum heima hjá foreldrum sínum, sannfærðir um að þeir væru Hrói Höttur nútímans höfðu loksins fengið tækifæri til að sanna að þeir vildu sko alveg borga fyrir hluti og það sem þeir höfðu talað um árum saman á spjallrásum, væri rétt!!” – SMÁÍS

    Maður vill svosem halda að þessir menn viti eitthvað í sinn haus, sama hversu ósammála maður er þeim. Þeir misstu þó alveg þann snefil af virðingu sem ég bar fyrir þeim eftir að þeir birtu þessa frétt með þessu orðalagi formlega á heimasíðu sinni. Að þeir leyfi sér það er fáránlegt.

    Reply
  3. Robbi says:
    11 November 2007 at 11:12

    SMÁÍS hálfvitarnir gátu ekki einu sinni skrifað titilinn án þess að koma með málfarsvillu.

    Eftirfarandi málsgrein sýnir svo að ekki verður um villst að mennirnir sem þarna starfa eru algjörlega óhæfir til starfsins: “Núna loksins gætu þjófarnir á netinu, og aðrir, sannað að þeir væru sko alveg til í að borga fyrir hluti og að þetta væri sko framtíðin. Já, ungir menn sem höfðu setið árum saman, fyrir framan tölvuna, bólugrafnir með bremsufar í nærbuxunum heima hjá foreldrum sínum, sannfærðir um að þeir væru Hrói Höttur nútímans höfðu loksins fengið tækifæri til að sanna að þeir vildu sko alveg borga fyrir hluti og það sem þeir höfðu talað um árum saman á spjallrásum, væri rétt!!”

    Halló!! Er ekki allt í lagi? Það þarf ekkert að útskýra þetta nánar, þetta segir sig sjálft.

    SMÁÍS ætti að skammast sín!

    Reply
  4. Þorsteinn says:
    19 November 2007 at 18:58

    Jæja. Þá lokaði torrent. Andskotans helvítis andskoti.

    Reply
  5. Maggi says:
    20 November 2007 at 15:46

    Til hamingju Þorsteinn. Þú átt þúsundasta kommentið á síðunni minni. :D

    Reply
  6. Þorsteinn says:
    20 November 2007 at 18:14

    Naunau! Hvað er í verðlaun?

    Reply

Leave a Reply

Click here to cancel reply.

Nýlegar athugasemdir

  • Hlynur on Avatar 3D (2009)
  • Robbi on Avatar 3D (2009)
  • Stefán Claessen on Avatar 3D (2009)
  • Arnar Gísli on Avatar 3D (2009)
  • Maggi on Click (2006)
  • Arnar Gísli on Click (2006)

Flokkar

  • Blogg (61)
  • Kvikmyndir (20)
  • sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Áhugaverðar síður

  • All Music
  • Anna og Robbi
  • ÍXS / X360
  • Facebook
  • Filman – kvikmyndasíða
  • Frank & Almar
  • Frank & Ösp
  • Gemsamyndir
  • IMDB
  • One Click Movies

Tags

60 Minutes Aaron Eckhart Batman Bourne Christian Bale Christopher Nolan Chrome Clapton Danny Boyle Death From Above 1979 Denzel Washington Dorrit Eric Clapton FB ferðalög Google Heath Ledger heimskt fólk iPod Kenny vs. Spenny Kvikmyndir Lord of the Rings MSTRKRFT mótmæli Nætur-Dagvaktin Pink Floyd podcast PSP póker Retarded Policeman Risk RÚV Samskip sci-fi Sebastien Grainger Silence of the Lambs sketch Skjár 1 Spider-Man Spánn spænska torrent tónlist Vestmannaeyjar Óskar

Lifestream

  • Unlocked Istari Power in Lord of the Rings: The Battle for Middle-Earth II.
    — 1d ago via Raptr
  • Played Lord of the Rings: The Battle for Middle-Earth II.
    — September 5th via Raptr
  • Listened to So Deep (Feat. Jahmal Of The Carps) - MSTRKRFT.
    — July 20th via Last.fm
  • Listened to Fist of God - MSTRKRFT.
    — July 20th via Last.fm
  • Listened to Bangla Desh - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Think for Yourself - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Something - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Taxman - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Spleen; Lucy In The Sky With Diamonds - William Shatner.
    — June 17th via Last.fm
  • Listened to Common People - William Shatner.
    — June 17th via Last.fm
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox