Tónlistarkosning á mbl.is
Ég var búinn að haka við Hold með HAM þegar ég sá Trúbrot diskinn, og var fljótur að skipta honum út. Valdi frekar Lifun… en Undir áhrifum með þeim. Annars finnst mér vanta mikið af nýrri diskum þarna, t.d. Musick með Maus frekar en diskar sem eru eldri en tíu ára. Mér finnst Musick bara miklu betri. Ég skil samt ekki hvernig Moggamenn geta horft fram hjá meistarastykkinu, Masterpiece of Bitterness með Sólstöfum. Diskurinn hefur nær eingöngu fengið góða dóma út um allan heim. Það er samt hægt að bæta við diskum þarna sem manni finnst vanta á listann en ég nennti ekki að standa í því, ég held líka að enginn nenni heldur að standa í því þannig að eitt atkvæði skiptir ekki svo miklu. En svona burtséð frá því lítur val mitt svona út:
Emilíana Torrini – Fisherman’s Woman
Hjálmar – Hljóðlega af stað
Sigur Rós – Ágætis byrjun
Sigur Rós – Takk
Trúbrot – Lifun
Hvernig kusuð þið, ef þið kusuð eða hvernig mynduð þið kjósa? Hér má nálgast listann og kjósa!
Samkvæmt mbl.is er þegar einn diskur kominn með afgerandi forystu. Ég sé fyrir mér Ágætis Byrjun þar, en ég held að eldri mennirnar muni hafa vinninginn. Hljómar, Megas, Mannakorn og Stuðmenn. Jafnframt mun það sanna sig að Íslendingar fíli ekki Björk Guðmundsdóttur! Gling Gló mun líklegast vera á listanum, en það er bara sökum þess að fólk finnur fyrir skyldurækni að kjósa diskinn.
M-Dawg, aka Pimp Daddy, kveður



Nú er ég stoltur af sjálfum mér. Af 74 diskum á listanum komust allir sem ég kaus á Topp 20 listann, sem var birtur, og lentu þeir í 1., 2., 7., 10. og 11. sæti.
Ég hafði samt rangt fyrir mér varðandi Hljóma og Mannakorn.