MaggiDan.com

"Vinstri grænir vilja frið á Gaza en ófrið á Íslandi."
  • Blogg
  • Kvikmyndir
  • Um höfund
  • Myndir
  • Uppfærslur
  • Hafa samband

American Gangster (2007)

21 November 2007 | 15:44

Bara svo það fari ekki milli mála, þá er American Gangster fullkomin mynd. Allt við hana er fullkomið. Ekki of mikið af neinu og ekki of lítið af neinu. Ridley Scott, leikstjórinn, bjó til meistaraverk. Hann hefur leikstýrt myndum sem ég hef séð, á borð við Matchstick Men, Gladiator, Hannibal og Kingdom Of Heaven. Mjög misjafnar myndir alltsaman, bæði að efni og gæðum.

American GangsterTrailerinn heillaði mig ekki þegar ég sá hann fyrst og átti ég ekki von á neinu meira en meðalmynd, þrátt fyrir gulldóma sem myndin var búin að fá. Ég ætlaði ekki einu sinni á hana í bíó, þannig að ég þarf varla að taka það fram að hún kom þægilega á óvart.
Myndin er róleg alla leiðina í gegn, og finnst mér hún helst líkjast Eastern Promises. Aðalpersónan yfirveguð og lætur ekkert koma sér á óvart. Hann er tilbúinn í allt, hræðist ekkert og er líka hógvær. Eins og hann sagði þegar frændi hans klæddist mjög áberandi fötum: Hvað er málið með fötin? Veistu hvað þau segja? Viltu vita hvað þau segja? Handtakið mig!
Allavega, ég nenni ekki að rekja söguþráðinn öðruvísi en að sögusviðið er Harlem á seinustu árum sjöunda áratugarins og fyrstu árunum á þeim áttunda. Myndin fjallar um Frank Lucas sem er stærsti heríóninnflytjandi Harlem og stjórnar öllu þar. Skyndilega fer nýtt heróín að flæða um göturnar, nefnt „Blue Magic“. Löggan veit ekkert hver stendur bak við það, en það er helmingi hreinna og helmingi ódýrara en heróínið sem var verið að selja á sama tíma. Því verði nær Frank með því að sleppa öllum milliliðum. Lögguna fer þó að gruna ýmislegt þegar líður á, og aðrir dópsalar í borginni verða reiðir út í Frank fyrir að hafa sett sig á hausinn.

Denzel Washington er geggjaður í myndinni. Ég finn lykt af mörgum verðlaunum merktum honum. Hann er gjörsamlega sniðinn í hlutverkið og svo ótrúlega svalur í þessari mynd. Þótt mér finnist það ótrúlegt hef ég séð skammarlega fáar Denzel myndir, eða bara sex, og hefur hann bara verið meðalleikari í minningunni þannig að þessi hífir hann aðeins upp metorðastigann.
Russel Crowe, sem ég held mikið upp á, féll í skuggann af öðrum betri leikurum. Leikur hans í þesari mynd á ekki möguleika á móti þeim sem hann sýnir í Cinderella Man, sérstaklega í 3:10 To Yuma og A Beautiful Mind, en hún á sérstakan sess í huga mínum. Persónan sem hann leikur í myndinni, Richie Roberts, er frekar pirrandi. Persónan er alveg heiðarleg; þáði ekki mútur og stal ekki dópi, eins og flestar löggur á þessum tíma. Ridley Scott lét mig fá samúð með Frank, sama hvort það var viljandi eða ekki, og ég þoldi ekki þegar Richie náði að tengja milli punktanna og fá út Lucas. Þar sem myndin er byggð á sönnum atburðum, hlýtur þetta mál að hafa leitt eitthvað af sér, og raunin varð sú að Richie Roberts náði að handsama þrjár af hverjum fjórum löggum í sérstökum eiturlyfjasveitum sem störfuðu á þessum tíma, fyrir lögbrot og þjófnað tengdum dópi.
Mest kúl persónan í myndinni er samt klárlega Detective Trupo, leikinn af Josh Brolin. Hann er með flottustu mottu sem ég hef séð!
Í heildina stóðu aukaleikararnir sig alveg jafn vel og aðalleikararnir. M.a. leikur Cuba Gooding Jr. aukahlutverk, og rappararnir T.I. og RZA.

Margir hafa séð myndina Blow, með Johnny Depp og Penélope Cruz. Hún fjallar um eiturlyfjbaróninn George Jung, sem var í aðeins stærri aðgerðum en Frank Lucas. Að efninu; ég sá fólk bera þessar myndir saman á netinu, og það er alls ekki hægt. Þær eru jafn ólíkar og epli og appelsína. Langaði bara að segja það.

Rating: ★★★★★ 

Comments
1 Comment »
Categories
Kvikmyndir
Tags
Óskar, Denzel Washington
Comments rss Comments rss
Trackback Trackback

SMÁÍS = Fávitar

9 November 2007 | 18:47

Bahhh. Ég fór inn á IsTorrent áðan til að sjá hvort eitthvað spennandi væri þar inná, þegar ég rak augun í frétt á forsíðunni hjá þeim. Fréttin fjallar um skýrslu sem comScore gerði um nýjustu plötu Radiohead, In Rainbows. Radiohead ákvað, fyrst hljómsveita, að bjóða áðdáendum sínum að ná sér á nýjan hátt í plötu sína. Þú getur farið inn á InRainbows.com og náð þér þar í plötuna, ókeypis eða borgað fyrir hana jafn mikið og þú vilt.
Samkvæmt comScore náðu 62% aðdáenda Radiohead í plötuna ókeypis, þar á meðal ég, en 38% sem borguðu borguðu að meðaltali 350 krónur fyrir plötuna. Þarna ákváðu SMÁÍS að hamra járnið meðan það væri heitt og drulla yfir þessa aðferð Radiohead, og sanna að „þjófarnir á netinu, og aðrir“ myndu ekki borga fyrir efni sem hægt væri að fá ódýrt á netinu, heldur niðurhala því ólöglega eða borga ekkert.
Mér finnst þetta gjörsamlega fáránleg frétt hjá SMÁÍS, sem ber titilinn „Eru aðdáendur Radiohead nýskari en aðrir neytendur?“. Ég er svo drullupirraður núna bara við að lesa fréttina aftur yfir. Ég er ekki tilbúinn að borga fyrir tónlist á netinu. Ég hefði ekki borgað meira en 350 kall fyrir diskinn af netinu, en ef ég fíla tónlist kaupi ég hana á 1.999 krónur hjá Skífunni þegar ég er búinn að niðurhala henni, löglega eða ólöglega. Ég er bara svo hneykslaður á SMÁÍS, og orðbragðinu sem þeir nota í fréttinni að ég get ekki vonað annað en að fréttahöfundurinn muni eiga ömurlegt líf það sem eftir er.
Einnig er þess vert að taka fram að talsmaður Radiohead er alls ekki sáttur með könnun comScore og sagði m.a. þetta um hana: However, they can confirm that the figures quoted by the company comScore Inc are wholly inaccurate and in no way reflect definitive market intelligence or, indeed, the true success of the project.
Og talandi um verð á geisladiskum. Fyrir ári síðan kostaði DVD- og geisladiskur vanalega 1.999 krónur hjá Skífunni, nema um væri að ræða tilboð eða sérstaka útgáfu á geisladisknum. Svo voru tónlist og kvikmyndir gerðar skattfrjálsar hjá ríkinu, og lækkaði verðið þá niður í 1.834 krónur, minnir mig, og hélst þannig í einhverja mánuði. Hvað kostar DVD- og geisladiskur núna? 1.999 krónur! SMÁÍS, Skífan og allir sem koma nálægt þessu, fokking hoppið upp í rassgatið á ykkur. Ég er hættur að kaupa tónlist hérlendis.

Comments
6 Comments »
Categories
Blogg, tónlist
Tags
torrent
Comments rss Comments rss
Trackback Trackback

« Previous Entries

Dagatal

November 2007
M T W T F S S
« Oct   Dec »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar athugasemdir

  • Robbi on Avatar 3D (2009)
  • Stefán Claessen on Avatar 3D (2009)
  • Arnar Gísli on Avatar 3D (2009)
  • Maggi on Click (2006)
  • Arnar Gísli on Click (2006)
  • Steindór Hjartarson on Moon (2009)

Áhugaverðar síður

  • All Music
  • Anna og Robbi
  • ÍXS / X360
  • Facebook
  • Filman – kvikmyndasíða
  • Frank & Almar
  • Frank & Ösp
  • Gemsamyndir
  • IMDB
  • One Click Movies

Flokkar

  • Blogg (62)
  • Kvikmyndir (20)
  • sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Magnús D. Michelsen

Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox