Stöð 2
Mamma spurði mig í fyrrakvöld hvort ég vildi að við yrðum áskrifendur að Stöð 2, þegar símasölufólk bauð henni Stöð 2 á tilboði, eftir að hafa ekki verið áskrifendur í langan tíma. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um og sagði já, eftir að hafa sagt nei nokkrum sinnum sökum lélegrar dagskrár.
Helsta ástæða þess að ég sagði já var Næturvaktin. Þvílíkur snilldar þáttur. Mér finnst Jón Gnarr ekkert hafa gert af viti seinustu árin, en þarna sýnir hann okkur sínar bestu hliðar. Sama segi ég um Pétur Jóhann. Hann hætti að vera fyndinn eftir að hann varð vinsæll með Strákunum.
Hin ástæðan er Damages með Glenn Close í aðalhlutverki. Lögfræði- og glæpadrama, ekkert í anda Law & Order samt. Ótrúlega góðir þættir.
Svo sakar ekki að fá kvikmyndirnar og fleiri þætti með. Mest af öðru efni langar mig að sjá Tekinn með Audda Blö. Þarf svo að sjá nokkra þætti sem ég missti úr af Two And A Half Man, sem eru í sýningu núna.
Held svo að Sirkus fylgi með í þessum pakka, en ég veit ekkert hvað er verið að sýna þar núna.
Svo er dagskráin líka fín á Skjá Einum. Dr. Phil daglega, House, Ertu skarpari en skólakrakki?, CSI þættirnir, Law & Order þættirnir, America’s Next Top Model getur verið ágætur, ásamt ódýru gamanþáttunum.
Við erum nýkomin með Skjáinn, afruglara Símans, sem býður upp á mun betri möguleika en Digital Ísland, sem við fengum okkur í gær útaf tengivandamálum í gegnum Skjáinn, hann er skráður á einhvern Guðgeir. Ég vil frekar nota Skjáinn en Digital Ísland, en eins og er er Stöð 2 tekin í gegnum Digital Ísland svo það verður að duga í bili. Við erum búin að vera með svarta, gamla afruglarann, sem sendir út í mun verri gæðum en nýju afruglararnir, frá því hann kom út. Spurning um að hafa Digital Ísland stillt á Skjá Einn og Skjáinn á Stöð 2 svo maður fái sem best gæði úr tveimur stöðum fyrst við erum með tvo afruglara?



Sæll,
Ég á Canon EOS Rebel XTi/400d [http://www.canon.nyherji.is/html/eos-400d.html]
Ég er svo með Canon EF 28-135mm USM linsu á henni.
Ágætis pakki.
Sendu mér fæðingardag og fæðingarár Örnu
Kv.
Hlynur
Sæll,
Ég á Canon Ixus 500 og ég hef ekki hugmynd um hvernig linsa er á henni en ég veit að það er aukabatterí sem virkar í 5 mín. Fínn pakki.
Sæll,
Ég á mér líf. Held að það sé engin linsa á því.
En hvernig datt þér í hug að borga þennan brjálaða pening fyrir stöð 2???
Bara rusl! Styður þú við bakið á SMÁÍS? þú talar bara í hringi við rök þín Magnús.
Its like you learn my mind! You appear to grasp a lot about this, like you wrote the ebook in it or something. I believe that you simply can do with some percent to power the message home a little bit, however instead of that, that is excellent blog. A great read. I’ll certainly be back.
just check out the breaking world page to learn something about the man doing peacemaker and maybe visit the www.
You have an impeccable way with words. This becomes evident when reading this article. I am impressed with your abilities and I like your point of view. I hope to read more of your articles. http://www.samsung1080phdtv.net/