MaggiDan.com

  • rss
  • Blogg
  • Kvikmyndir & tónlist
  • Um mig
  • Myndir
  • Hafa samband

Stöð 2

26 október 2007 | 20:04

Mamma spurði mig í fyrrakvöld hvort ég vildi að við yrðum áskrifendur að Stöð 2, þegar símasölufólk bauð henni Stöð 2 á tilboði, eftir að hafa ekki verið áskrifendur í langan tíma. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um og sagði já, eftir að hafa sagt nei nokkrum sinnum sökum lélegrar dagskrár.
Helsta ástæða þess að ég sagði já var Næturvaktin. Þvílíkur snilldar þáttur. Mér finnst Jón Gnarr ekkert hafa gert af viti seinustu árin, en þarna sýnir hann okkur sínar bestu hliðar. Sama segi ég um Pétur Jóhann. Hann hætti að vera fyndinn eftir að hann varð vinsæll með Strákunum.
Hin ástæðan er Damages með Glenn Close í aðalhlutverki. Lögfræði- og glæpadrama, ekkert í anda Law & Order samt. Ótrúlega góðir þættir.
Svo sakar ekki að fá kvikmyndirnar og fleiri þætti með. Mest af öðru efni langar mig að sjá Tekinn með Audda Blö. Þarf svo að sjá nokkra þætti sem ég missti úr af Two And A Half Man, sem eru í sýningu núna.
Held svo að Sirkus fylgi með í þessum pakka, en ég veit ekkert hvað er verið að sýna þar núna.

Svo er dagskráin líka fín á Skjá Einum. Dr. Phil daglega, House, Ertu skarpari en skólakrakki?, CSI þættirnir, Law & Order þættirnir, America’s Next Top Model getur verið ágætur, ásamt ódýru gamanþáttunum.

Við erum nýkomin með Skjáinn, afruglara Símans, sem býður upp á mun betri möguleika en Digital Ísland, sem við fengum okkur í gær útaf tengivandamálum í gegnum Skjáinn, hann er skráður á einhvern Guðgeir. Ég vil frekar nota Skjáinn en Digital Ísland, en eins og er er Stöð 2 tekin í gegnum Digital Ísland svo það verður að duga í bili. Við erum búin að vera með svarta, gamla afruglarann, sem sendir út í mun verri gæðum en nýju afruglararnir, frá því hann kom út. Spurning um að hafa Digital Ísland stillt á Skjá Einn og Skjáinn á Stöð 2 svo maður fái sem best gæði úr tveimur stöðum fyrst við erum með tvo afruglara?

Comments
4 Comments »
Categories
Blogg, Sjónvarp
Tags
Nætur-Dagvaktin, Skjár 1, Stöð 2
Comments rss Comments rss
Trackback Trackback

Ertu skarpari en skólakrakki?

23 október 2007 | 19:30

Ertu skarpari en skólakrakki?Ég er búinn að bíða eftir þessum þáttum með smá spennu, og horfði á fyrsta þáttinn í gær á VODinu sem við erum nýkomin með.

Mér fannst þátturinn góður. Góð hugmynd bakvið þáttinn, sem byggður er á bandaríska þættinum Are You Smarter Than A Fifth Grader?, og góð framkvæmd á þættinum. Fyrir þá sem ekki vita er hugmyndin svona: Þú færð séns á að vinna tvær milljónir króna ef þú getur svarað ellefu spurningum rétt. Að vísu færðu smá hjálp. Þú ert með krakka hjá þér, sem getur reddað þér ef þú veist ekki svarið. Þú getur kíkt hjá honum, sem virkar þannig að þú ræður hvort þú notfærir þér svarið hans eða ekki, þú getur hermt eftir krakkanum, og þá ertu fastur með svarið sem hann heldur að sé rétt eða þá að krakkinn getur bjargað þér, það er ef þú svarar rangt en hann rétt þá mátt þú halda áfram. Hvert „svindl“ mátt þú nota einu sinni. Krakkarnir eru svo sérhæfðir í einhverjum flokki, eða flokkum. Flokkunum er skipt upp eftir fimm erfiðleikastigum, þar sem tveir flokkar eru í hverju stigi. Svo færð þú spurningu sem grunnskólakrakki ætti að geta svarað. Þegar þú ert svarar fimmtu spurningu rétt ertu öruggur með 200.000 krónur.
Það sem mér finnst helst að þættinum er Gunnar Hansson, þáttastjórnandinn. Hann var með mjög lélega brandara á meðan þættinum stóð, og var það hálfpartinn eins og hann vissi ekkert hvað hann væri eða ætti að gera. Hann hló, því sem mér fannst vera, taugaóstyrkum hlátri og náði litlu sambandi við þátttakendurna. Einnig fannst mér stelpan sem hét, minnir mig, Elínrós virkilega pirrandi. Mjög cocky fimmti-bekkingur sem virtist hafa þörf á að skjóta inn brandara við hvert tækifæri. Verst er bara að hvorki hún né annar krakki á hennar aldri eru fyndin ef þau reyna það.
Annars fannst mér þessir fyrstu tveir þátttakendur frekar fyndnir. Annar var 37 ára, sköllóttur maður sem minnti sláandi mikið á Hómer Simpson, og önnur 29 ára kona sem virti skólakrakkann sinn ekkert og skaut á han nokkrum sinnum.

En þá er það stóra spurningin: Er ég skarpari en skólakrakki.. ? Nei. Ég vissi nú ekki helminginn af því sem spurt var að í þættinum, þ.á.m. hvort það sæist á eyrum hesta hvernig skapi þeir væru í. Ert ÞÚ skarpari en skólakrakki?

Þættirnir eru sýndir á Skjá Einum á sunnudagskvöldum klukkan 20:30.

Comments
4 Comments »
Categories
Sjónvarp
Tags
Sjónvarp, Skjár 1, VOD
Comments rss Comments rss
Trackback Trackback

Dagatal

október 2007
M Þ M F F L S
« sep   nóv »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031  

Nýlegar athugasemdir

  • Robbi um „[REC] vs Quarantine“
  • Stefán um „Góð tilraun“
  • Hlynur Jón Michelsen um „Góð tilraun“
  • Maggi um „Góð tilraun“
  • Frank M um „Góð tilraun“
  • Arnar Gísli um „Góð tilraun“

Flokkar

  • Blogg (50)
  • Kvikmyndir (13)
  • Sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • Tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (7)

Blogg

  • Anna og Robbi
  • Bjarki
  • Frank & Ösp
  • Frank Gabríel
  • Hekla
  • Hlynur Jón
  • Linda
  • Myndagemsablogg
  • Stebbi
  • Tinna

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Innskrá
  • RSS-veita færslna
  • RSS-veita ummæla
  • WordPress.org

Nýlega hlustað á

Mynd af handahófi

Facebook


Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox