Busses!

| 13 September 2007 | 2 Comments

Geggjuð vika. Byrjaði á að fara í Þórsmörk með 70% af busunum, á sunnudaginn og kom heim á mánudag. Þar voru þeir bundnir saman tíu saman á löppunum. Þau duttu svo mikið um hvort annað og öskruðu því að sumir böðlanna bundu þau svolítið fast. :D

Svo var loksins ákveðið í gær að það mætti busa, en það var búið að ákveða að það mætti ekki. Bara formenn nefnda og nemendaráðið mátti busa í ár, og þar sem ég er formaður mátti ég busa! Ekki mátti nota nein efni á þau eða fötin þeirra, ekki einu sinni vatn.. Þannig að við létum þau þar með bara éta ýmislegt. Mysu og hákarl aðallega. Létum þau skríða í gegnum göng, tókum meikið af stelpunum með Euroshopper Baby Wipes rassaklútum og meikuðum strákana, klæddum þau í svarta ruslapoka, þau löbbuðu með nefið upp að veggnum alla leið í mötuneytið, svo þegar þau komu í gegnum göngin beið mysa og hákarl eftir þeim. Svo voru sérstaklega valdnir busar til að takaþátt í kókosbollu áti og að drekka gos með, en það var smá “catch”.. kókosbollurnar voru fullar af hákarli, mysing, tómatsósu og sinnepi. Og kókið var blandað 50/50 á móti mysu.. það var ælt og skyrpt gólfið. Snilld.

Svo er það bara busaballið í kvöld. Ég sem ætlaði ekki á það, skipti snögglega um skoðun þegar ég komst að því að formenn fá ókeypis. :D Geðveikt vika.

Leiter homes.

Tags:

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (2)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Frank M says:

    Það er meira spennandi að fylgjast með flatköku en að bíða efir nýju bloggi hér.

  2. Maggi says:

    Er ad prófa að kommenta með nýja 3G símanum mínum. Sweet.

Leave a Reply