Brjálað

| 24 August 2007 | 1 Comment

Það verður erfitt að koma þessari sögu í gott form á prenti, en ég mun reyna mitt besta.

Í gær var ég á MySpace og hugsaði: “Hmm, ætli það virki að taka viðtal við einhvern frægan í gegnum MySpace?” Og ég spurði Sebastien Grainger, óþekktan heimsfrægan mann – annan helming fyrrverandi hljómsveitarinn Death From Above 1979 sem ég elska svo mikið, hvort ég mætti senda honum nokkrar spurningar fyrir heimasíðu sem ég “starfaði” fyrir, rjómann.is. Ég átti ekki von á svari, en innan við hálftíma seinna var komið svar frá honum á móti þar sem hann sagði mér að senda spurningarnar. Ég ekki með neinar spurningar tilbúnar, átti enda ekki von á svari, trúði ekki að þessi ofursvali maður tæki sér tíma í að svara íslenskum pjakk, fyrir “non-profit” tónlistarsíðu.

Ég byrjaði að semja spurningar og svona einni nóttu og fjórum tímum seinna sendi ég til hans fullbúið viðtal! :D

Veit samt ekki hvort ég eigi að tíma að setja þetta í rjómann eða hvort ég eigi að setja þetta í skólablaðið. Málið er að skólablaðiðkemur ekki strax út, en viðtalið gæti orðið úrelt mjög fljótt, þar sem hann er að fara að gefa út disk og spurði ég m.a. hvenær diskurinn kæmi út. Smá klemma hér.

Anyways. Langaði bara að monta mig að ég hefði “talað” við Sebastien Grainger, ofurtöffara.

www.myspace.com/sebastiengrainger

Category: Blogg, tónlist

About the Author (Author Profile)

Leave a Reply