Sumarið
Það er nú komið ágætis sumarfrí hjá mér frá blogginu. Ég hef nú eiginlega ekkert haft til að blogga um í sumar.
Það helsta er að ég sótti um sem lausapenni hjá rjómanum.is, sem er tónlistarsíða, og ég fékk inn. Fjallar um tónleika, tónlistarfólk og geisladiska. Fyrir mér er þetta auðvitað stórt tækifæri. Spurning um að reyna að vera virkari þarna en ég er búinn að vera hérna í sumar?
Næst stærst í sumar var verslunarmannahelgin. Þrátt fyrir smá regn og mikinn kulda var þetta frábær helgi. Við Arna fórum með flugi og gistum í bakgarði bróður hennar. Stórkaup voru gerð fyrir helgina. Áfengi, tjald, stólar, túttur og flug kostuðu sitt í Reykjavík. Svo matur, blöðrur, nammi og aðrir heimskulegir hlutir á Akureyri sem gerðu helgina bara betri. Fórum inn á Allann, þar sem okkur var vísað út eftir smá tíma. Reyndi að fara inn á Café Amour daginn eftir og var beðinn um skilríki. Vörðurinn keypti ekki setninguna; „Nú, svo botoxið hefur virkað?“ og vísaði mér í burtu, Örnu til mikillar hamingju þar sem ég hafði haldið því fram að með þessa mottu kæmist ég inn á hvaða stað sem er.
Það þriðja er mjög líkalega vinnan. Jafn misjafna vinnu hef ég aldrei unnið. Suma daga gerði ég ekki rassgat nema sofa, horfa á iPodinn eða hanga í tölvunni. Kláraði Two And A Half Men, fjórar þáttaraðir. Aðra daga, yfirleitt þrjá daga í viku í mánuð, voru unnar þrettán tíma vaktir.. sem er fáránlega þreytandi eftir annan daginn.
Fjórði hluturinn er ættarmótið sem ég fór á. Frábærlega vel heppnað; skotbolti og sólbað á daginn og drykkja og skemmtun á kvöldin.
Ég er vel sáttur með sumarið. Þó það sé að klárast eftir að ég hefi ekki gert neitt merkilegt er ég mjög ánægður með sumarið. Búinn að byggja upp þykka bankabók. Og svo er ég farinn að hlakka ógeðslega mikið til skólans. Að stýra skólablaðinu og hitta krakkana.
Einnig eru Anna og Robbi bró flutt út til Sviss, lands ostanna og súkkulaðisins. Svo fögnuðum við Arna eins árs afmæli okkar saman, í júní s.l. Mjög gott það.
Held að ég hafi rakið upp sumarið að stærstum hluta hérna.
Category: Blogg



Ég veðja 200 kalli að næsta blogg komi í lok nóvember.
Annars, gott að sjá loksins virkni hérna.
…og til hamingju með rjómann!
Keyptiru þér túttur?
loksins.
hey það er menningarnóttin eftir maggi…og það er big deal!