Working Class Hero

| 24 May 2007 | 10 Comments

Vinnan er byrjuð á fullu. Hún er yfirhöfuð léttari en ég átti von á. Það eru fáir gámar sem þarf að tína út úr handvirkt og þá er voðalega lítið sem hægt er að gera nema maður sé með lyftararéttindi, þó maður sé farinn að fikra sig smá áfram á þeim. Tek samt bóklegt lyftarapróf 2. júní á vegum Samskipa. Þó að þetta sé auðveld vinna er hún samt þreytandi þannig að ég sef mikið núna. Það getur samt, ótrúlegt en satt, verið leiðinlegt til lengdar að gera ekki neitt.. þannig að ég er byrjaður að taka iPodinn með mér og get horft á Two And A Half Man þegar rólegt er. :D

Helgarnar eru miklu skemmtilegri. Engin helgarvinna og ég nýt þess. Fór í tvö barnaafmæli á laugardaginn og svo í pylsupartý um kvöldið. Þó að pylsurnar hafi bara verið notuð sem afsökun hjá haldandanum til að drekka? Allavega. Svo var það Meet The Robinsons á hálf tvö-sýningu á sunnudeginum. Þrennt hef ég út á það að segja: Ég hélt að ég væri að fara á þrívíddar mynd, en hún var víst bara í þrívídd í Kringlunni og það var hvergi tekið fram. Hún var með íslensku tali. Það var heldur hvergi tekið fram. Myndin var yfirhöfuð bara leiðinleg.

Prófin.. Ég náði öllu nema leikfimi. Hefði viljað sjá betri einkunnir, en svona er þetta. Gengur betur um jólin. En já, núna geng ég undir gælunafninu Íþróttaálfurinn hjá tengdó.

Tags:

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (10)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Þorsteinn says:

    Haha.
    Ofsaleikfimitímar hjá þér ?
    Gaman að sjá nýtt blogg. Loksins.

  2. Arnar G says:

    Þetta síðasta blogg sumarsins eða?

  3. Magga says:

    Haha, fall í leikfimi!! Meira að segja ég náði og fékk heila áttu í þokkabót! Þú ert nú meiri nördinn :D

  4. Frank M says:

    Jæja… hvað segirðu. Er ekki kominn tími á að þú haldir út hér áhugaverðri bloggsíðu?

  5. gummi halla says:

    bloggaðu!

  6. Robbi says:

    Til hamingju Maggi, þú ert hér með sá allra, allra, allra slakasti bloggari sem ég þekki. Alveg skelfilega óvirkur. Er þá ekki bara skárra að slútta síðunni fyrst þú ætlar ekkert að skrifa á hana.

  7. Hekla says:

    Horfiru virkilega á two and a half man?
    p.s. bloggaðu

  8. Arna says:

    Ég vil benda fólki á það að það er ekki mér að kenna að sumir er latir….ef ég hef tíma til að blogga þá hefur maggi það líka

  9. Þorsteinn says:

    Endilega skrifaðu eitthvað maður. Ég kíki við hérna reglulega og hunskast svo alltaf í burt með skottið á milli lappanna. Svei.

  10. Frank M says:

    Ég trúi ekki að ég hafi keypt þetta lén handa þér, sett upp wordpress og flutt allt gamla draslið þitt af blogspot hingað yfir, fyrir ekki neitt.
    Þú sýgur.

Leave a Reply