Pro Et Contra
22 April 2007 | 17:04Skella inn smá dagdraumi sem ég er búinn að vera að hugsa um undanfarið.
Pro Et Contra, skólablað FB, sem kom út núna í ár var aumt. A3 blað brotið í tvennt og heftað saman. Prentað í skólanum, auglýsingalaust, fáeinar greinar eftir ritnefnd og þrjár til fjórar aðsendar greinar. Samt var blaðið gott innihaldslega séð, en ekki nógu gott til að vera skólablað – sem kom út einu sinni á öllu árinu. Þó var það öllu skárra en blaðið sem kom út í fyrra. Ég fæ það á tilfinninguna að ég sé að lesa Séð og Heyrt þegar ég les það. Áður hafði Ritnefnd Pro Et Contra legið niðri í ein þrjú ár, en fyrir það hlé var Pro Et Contra “veggblað”; þ.e. greinar voru skrifaðar, harðskeyttar en málefnalegar og hengdar upp á vegg og voru fyrir alla að lesa.
Það sem mig langar að gera á næstar ári er almennilegt skólablað. Leggja mitt að mörkum til að reyna að efla ömurlegt félagslíf skólans. Harðkápa og glanspappír! Taka viðtöl við fræga eldri nemendur skólans, fá sponsora til að gera almennilegt blað mögulegt, leggja virkilegan metnað í þetta.
Ég held að þetta sé virkilega möguleiki. Ef ritnefnd verður virkilega dugleg og hefur áhuga og metnað munu FB-ingar sjá alvöru skólablað á næsta ári.






Ég sé fram á að verða að bjóða mig fram sem formann Verzlunarskólablaðsins miðað við metnaðinn í ykkur bjarka…
Þú ert náttúrulega ekki maður meðal manna nema þú stjórnir skólablaði.
Ég blotna bara við tilhugsunina maggi!
Til er ég…
Maggi þetta er ultra gay útlit.
Þessi síða er álíka súr og gömul skinka. Aldrei neitt nýtt hér.
Ég er í prófum. Þú ert náttla of gamall til að muna hvernig það var, Frank.
Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá slóðina á þessari síðu var: Hver annar en MaggiDan mundi fá sér slóð með nafninu sínu.COM! hehe… Þú hefur greinilega ekkert breyst (and it’s a good thing)
Mér var huxað til þín um daginn þegar ég fór á línuskauta. Vakti ýmsar minningar.
Ég vona að þér eigi eftir að ganga vel með þetta skólablað
Over
það er komin tími á nýtt blogg
Prentaða símaskráin sem kemur út einu sinni á ári uppfærist oftar en þetta blogg… Er ekki kominn tími á að blogga af alvöru eða hætta þessu?