Vinnandi utanlandsfari í 100% rétti

| 21 April 2007 | 1 Comment

Jæææja. Í dag er mánuður síðan ég bloggaði. Óvenju mikið hefur gerst á meðan.

Ég fór til London með Örnu. Yndisleg ferð. Bróðir hennar býr í úthverfi borgarinnar og við gistum hjá honum og konunni hans. Það var verslað mikið á þessum sex dögum og skoðað helstu túrista staðina. Buckingham höll er drasl, en Big Ben er alveg jafn kúl og á myndum. Neðanjarðarlestakerfið er snilld, helsti kosturinn við London. Ég náði að fullkomna plötusafn mitt í Virgin Megastore og His Master’s Voice.

Bíllinn minn „eyðilagðist“. Það var keyrt aftan á mig og ég dæmdur í 100% rétti. Það borgaði sig ekki að gera við hann þannig að ég fæ hann borgaðan, þannig að það er bara nýr bíll í næstu viku. Hægt er að sjá myndir HÉR.

Ég var kosinn formaður/ritstjóri Pro Et Contra, sem er skólablað í FB. Einnig er ég í markaðsnefnd með Örnu.

Ég fékk vinnu í Samskip. Verð að taka úr gámum í allt sumar.

Annars hefur ekkert annað gerst. Prófin nálgast og þar með kærkomið sumarfrí.

Eina flotta mynd í lokin. Mér liggur greinilega mikið á hjarta.

Tags: , ,

Category: Blogg

About the Author (Author Profile)

Comments (1)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. arnar f says:

    þetta er nú meiri oyotan

Leave a Reply