Sparks
Laganafnið Sparks kemur fyrir fjórum sinnum fyrir í iPodnum mínum og það skemmtilega við það að þetta eru allt saman mismunandi lög í flutningi mismunandi hljómsveita.
Fyrst er það lag Coldplay. Rólegt og dramatískt lag eins og flest lögin á disknum, Parachutes. Ákaflega niðurdrepandi lag. Léti mig örugglega gráta ef ég væri leiður.
Hægt er að nálgast lagið hérna.
Næst er hardcore sveitin I Adapt. Eina lagið sem eitthvað áhlustanlegt er með þessari hljómsveit. Þó ekki gott. Hægt er að nálgast lagið hérna.
Röyksopp á auðvitað heiðurinn af besta Sparks laginu. Rólegt, töff og yndislega gott lag. Hægt er að nálgast lagið hérna.
Sparks lag The Who er varla lag, það er frekar bil milli laga. Nær ekki þremur mínútum að lengd, ekkert sungið og er eiginlega sett þarna sem framhald af laginu á undan. Hægt er að nálgast lagið hérna.
Afsakið ef þetta er leiðinleg lesning. Ég er að prófa eitthvað nýtt og mér leiðist.
Category: tónlist



Sæti minn, farðu að blogga. Til dæmis um hvað við skemmtum okkur vel í London ástin mín.
Elska þig =)
Já ástin mín. Ég er sammála örnu.
Þetta blogg er álíka spennandi og úldin skinka.
heyr! heyr!
Og það skemmtilega við þetta er að þetta eru bara góð bönd!