Ónefnt
The Number 23 er ein hrikalegasta mynd sem ég hef séð. Ég fór á hana um helgina og ég trúi ekki að ég hafi borgað 900 kall fyrir hana. Það er ekki oft sem ég sé mynd og hún fær undir fimm hjá mér. 23 fær þrjá af tíu. Versta mynd ársins og seinasta og þarseinasta og þar á undan. Virkilega. Forðið ykkur frá myndinni.
Bílpróf er æðislegt. Bílleysi er jafn ömurlegt og bílprófið er æðislegt. Kominn með einn eða tvo bíla í sigtið. Fer vonandi að vinna svo í þessu og kaupi einn á kostakjörum.
Skellti inn nýrri plötu mánaðarins. Justin Timberlake – FutureSex/LoveSounds. Sem dæmi um hvað hún er góð sagði annar helmingur Death From Above 1979 að þetta væri besta plata seinasta árs.
Í gær var ég búinn að eyða heilum degi með Örnu þegar hún lítur á mig og segir „vó, til hamingju með átta mánuðina“. Þá var klukkan níu. Hvorugt okkar hafði fattað hvaða dagur var. Já, ég veit hvað þú ert að hugsa. Okkur finnst ennþá kúl þegar 26. hvers mánaðar er. ![]()
PS. Takið eftir ljótum hökutopp ef þið smellið á myndina. Þá kemur stærri mynd. Þessi hökutoppur var einu sinni geggjað töff, fannst mér. /lol.
Nú að spila: N*E*R*D – Provider.
Ööö. Bloggið fyrir neðan þetta hvarf. Veit ekki hvernig eða af hverju.
Category: Uncategorized



Ég elska þig Magnús Daníel =)
Vona til Guðs að við munum ekki gleyma ársafmælinu okkar
Hvernig er hægt að vona til Guðs? Þú biður til Guðs eða vonar innilega. Vonar ekki til Guðs.
Maggi, fokk jú ég má alveg vona til GUÐS
Þú ert bara rindill með fake hökutopp! (djöfull snýtiru þér í mig fyrir þetta skot).
maggi stundum er ekki hægt að taka mark á tónlistarsmekk annara hljómsveita…..t.l.d. uppáhalds hlómsveitin hans jónsa í Sigur Rós er Iron Maiden:)
Æ það er mér að kenna að bílprófsbloggið þitt hvarf, plötudómurinn og öll comment eftir 19. febrúar. Þurfti að láta setja inn backup frá 19. feb vegna smá klúðurs með aðra vefsíðu á sama “hosting-account”. Sorry bró.
Ekki að nokkur verði var við það.
En ég gerði eitt gott. Uppfærði WordPress í útgáfu 2.1
Þessi hökutoppur er hátíð miðað við hárið á þér sem þú varst með 2004-2005. Manstu eftir hvað þér fannst það ógeðslega kúl?? Ég vona það, þú varst sá eini sem fannst það!