Fjölmiðlar
Í vikunni las ég pistil í Blaðinu um Morgunblaðið. Þarlendur blaðamaður birti pistil með titlinum „Er Mogginn götublað?“ sem fjallaði um grein Moggans um mildun Hæstaréttar á dómi barnaperra. Þar skrifaði hún um hvað henni fyndist um rekstur Morgunblaðsins og kallar það „mjög undarlegt“ og segir að „hrekklaus kona eins og hún sé ekki best til þess fallin að lesa inn í hugarheim þeirra Moggamanna“. Jafnframt segir hún að eftir að hafa lesið greinina sagðist hún halda að Mogginn væri meðvitað að reyna að breyta sér í götublað, og reyna með því að rétta af slæman hluti sinn á fjölmiðlamarkaði. Hún segðist halda að það væri leið til glötunar, ekki leiðin uppá við.
Mér fannst þetta fyndið. Að blaðamaður hjá Blaðinu hafi gagnrýnt Moggann fyrir framkomu sína. Fyrir að vera götublað, þegar Blaðið er hvað? Næst lélegasta blað Íslands og götu-slúður-plebbablað út í eitt. Þó held ég að götublaðamennska gæti legið ágætlega fyrir Mogganum, slúðurfréttir Mbl.is fá hvað mesta athygli allra frétta vefsins. Allavega gætu þeir sett það út sem aukablað, og vonandi gert þannig endanlega útaf við DV.
Mér finnst líka fyndið hvernig áhugi fjölmiðlanna breytist. Fyrir einhverjum vikum síðan var það Guðmundur í Byrginu og leiddi Stöð 2 þá herferð. Vikuna eftir voru það barnaperrar, sem einnig voru leiddir af Stöð 2. Svo er það núna Breiðavík. (Meira að segja verið að tala um það núna í sjónvarpinu!
)
Það sem er fyndnast við það er að núna er öllum skítsama um fjármálaóreiðu Byrgisins og áhuga forstöðumannsins á BDSM-kynlífi. Allir eru hættir að hugsa um barnaperra og eftir mánuð verða fyrrum vistmenn Breiðavíkurheimilisins gleymdir. Hvernig verður skandall næstu viku, eða verður þá fjallað um saumaskap á elliheimilum eins og var gert þegar ekkert kom uppá þann daginn?
Einnig er nýtt myndband vikunnar.
Nú að spila: Daft Punk – Technologic (Peaches cover).
Category: Uncategorized



Líka fyndið að þeir sem eiga Moggann eiga Blaðið, eða áttu það seinast þegar ég gáði. En þó svo að mál sem eru tekin fyrir eina vikuna í fjölmiðlum séu gleymd almenningi næstu viku þá eru ennþá stofnanir að rannsaka þessi mál og eftir nokkra mánuði munum við sjá fréttaskot með úrlausn þessara mála, en það er bara ekki hægt að fókusa á einhvern einn hlut í fjölmiðlum þangað til hann er búinn, of mikið að gerast til þess.
Já, ég held að Mogginn eigi Blaðið.
Ég vissi reyndar að væri verið að vinna í málum Gumma, en þetta var meira svona miðað við augu almennings.
Mogginn á 50% hlut í Blaðinu. Ég les aldrei Blaðið, það er lélegur skyndibiti. Eins og Aktu Taktu hamborgari. Það borgar sig ekki að éta svoleiðis hamborgara því hann er svo mikill svampur. Það sama á um Blaðið.
Guðmundur í Byrginu er ekki gleymdur, ég get lofað þér því. Það er enn mikil umræða um hann í þjóðfélaginu þótt fjölmiðlarnir séu ekki að missa sig yfir honum. Það þýðir bara ekki endalaust að fjalla um sama hlutinn aftur og aftur, ný mál þurfa einfaldlega sitt pláss. Byrgið er eitt af skandölum ársins og verður minnst í Áramótaannál sjónvarpsstöðvanna.
Og vonandi Skaupinu líka. Það yrði kryddandi.
Ekki hef ég tekið eftir miklu tali um Breiðavíkurmálið fyrir utan fjölmiðlana. Hinsvegar eru barnaperrar enn í milku umtali…