Ókeypis tónlist og kvikmyndir
Ég las grein í einhverju af fréttablöðunum um helgina um Netið. Umræðefnið var síður eins og YouTube, og niðurhal. Talað var um að kvikmynda- og tónlistargeirinn væri nú endanlega að tapa badaganum langa um ólöglegt niðurhal. Uppi eru núna hugsanir um það hjá plötufyrirtækjunum að “gefa” alla sína tónlist á Netinu. Semsé að bjóða upp á ókeypis löglegt niðurhal allra nýjustu platanna, sem og gömlu skildist mér, á Netinu. Eini hængur málsins er að til að geta hlustað á tónlistina þarftu að hlusta á auglýsingar á undan, eflaust á milli og eftir á líka, og græða þannig á þessu. Ekki “taka” peninginn okkar, heldur auglýsenda.
Kvikmyndafélögin eru í svipuðum hugleiðingum. Til að mynda eru Universal Studios með þrjá menn í fullri vinnu við að leita á síðum eins og YouTube og DailyMotion að höfundalagavernduðu efni frá þeim. Þeir sögðu að um leið og aðstandendur síðanna tækju myndböndin niður væri kominn annar notandi með þau seinna um daginn á síðuna. Fá þessar síður ásamt fleirum, fleiri en þúsund beiðnir á mánuði um að taka út myndbönd sem þeir eiga höfundarrétt á. Þetta sýnir bara að baráttan við almenninginn er að tapast.
Mér persónulega finnst þetta vera frábær leið til að selja margmiðlun. Séu hljómsveitirnar sjálfar þegar farnar að gera þetta ókeypis með fáein lög á MySpace er kominn tími breytinga. Þetta hvetur fólk til þess að ná í tónlist á löglegan hátt, þetta gerir manni auðveldara með að uppgötva hljómsveitir þegar það getur oft verið strembið að ná í eitthvað efni með sveitinni, þetta kerfi væri hreinlega snilld.
Og já, það er komin ný plata vikunnar. MSTRKRFT – The Looks.
Nú að spila: Derek And The Dominos – Keep On Growing.
Category: Uncategorized



Sammála, öll tónlist sem ég hef keypt seinustu ár og bíómyndir sem ég hef keypt á DVD er eithvað sem ég upprunalega kynntist gegnum “ólöglegt” niðurhal. Kynnist flestu í gegnum það.
Já, mest öll tónlistin sem ég á kemur upprunalega frá einhverjum sem hefur downladað henni. Og ef ég fíla hana kaupi ég hana.
HVERNIG FÓR PRÓFIÐ!!!!!!!!!!!!!!!!
Fallinn með fjóra komma níu… Eða svona næstum.
Hey Maggi. No harm. Allir töffarar falla á fyrsta skriflega bílprófinu. Ég féll líka.
En náði svo í annarri tilraun. Þú verður að passa þig bara á að falla ekki oftar en einu sinni.