MSTRKRFT - The Looks
23 January 2007 | 16:30
MSTRKRFT varð til þegar Jesse F. Keeler úr Death From Above 1979 og Al-P, upptökustjóri, ákváðu að búa til danstónlistarhljómsveit.
Al-P var upptökustjóri einu breiðskífu Death From Above, I’m A Woman, You’re A Machine ásamt því að sjá um upptökur fyrir Black Cat 13, raftónlistarsveit sem Jesse var í frá 1998-2000, og Femme Fatele, sólóverkefni Jesses sem hann stofnaði þegar Black Cat 13 var að sundrast. Femme Fetale er augljóslega náskyld DFA1979, en það heyrir maður greinilega.
Ein ástæða þess að DFA1979 hætti var sú að Jesse vildi heldur einbeita sér að MSTRKRFT, en hann sagði einhvern tímann í viðtali að upphaflega hefði hann ætlað að einbeita sér að raftónlist.
Þannig varð MSTRKRFT til.
Raftónlistin virðist renna fyrrverandi DFA1979 meðlimum í blóðinu, en báðir eru þeir tengdir raftónlist núna. Sebastien Grainger er kominn í sólóverkefni sem spilar raftónlist og er ég nokkurn veginn búinn að rekja feril Jesses.
The Looks er fyrsta breiðskífa MSTRKRFT sem kom út 18. júlí 2006. Platan inniheldur átta laga danssprengjulög. Þetta er svo ógeðsega góður diskur að hann er einn sá mest spilaði á árinu 2006; þrátt fyrir það hversu seint ég eignaðist hann, en það var í september eða október.
Helsti galli plötunnar er hversu lík öll lögin eru, en þeir virðast bara fara eftir einni formúlu í lagasmíðum sínum. Öll lögin virðist maður hafa heyrt áður. Oftast er það þannig að svona diskar fá hrikalega útreið tónlistargagnrýnenda, sökum þess að þarna er ekkert nýtt í gangi, en þessi diskur er öðruvísi. Lögin eru öll alltof góð og grípandi. Lögin hafa eiginlega allt sem þarf, en þau vantar persónuleikann. Þó eru lög þarna sem hafa sinn sjarma og tek ég þá sem dæmi Paris og titillag plötunnar, The Looks. Einnig eru lög þarna sem gætu hafa verið samin af vélmennum en það eru lögin Street Justice og Work On You. Því miður er eitt sleppa-lag á disknum. Sleppa-lög eru lögin sem þú skiptir framhjá þegar þú hlustar á diskinn. She’s Good For Business er hreint út sagt óþolandi, ömurlegt lag. Sönglaglínan er einhver mest pirrandi sem ég þekki, þar með talin laglínan sem kórinn syngur í Power To The People með John Lennon.
Hvort sem þú ert hnakki eða rokkari, muntu standa þig að því að fíla þessa plötu ef þú hlustar á hana einu sinni. Það sem meira er að þú munt meira að segja ákveða uppáhaldslagið þitt á plötunni, strax við fyrstu hlustun.
Rating: 











“Einnig eru lög þarna sem gætu hafa verið samin af
arnar f | 23 January 2007 | 22:47“Einnig eru lög þarna sem gætu hafa verið samin af vélmennum”….maggi face it þú dýrkar daft punk