Spil betri en áfengi?
22 January 2007 | 19:12Þegar maður vinnur á stað með spilakössum sér maður augljóslega hverjir eru meira háðir kössunum en aðrir. Sumir fastagestir spila þarna oftar en aðrir. Aldursdreifingin er svo ótrúleg, ég hélt áður en ég tók eftir aldursdreifingunni að “viðskiptavinir” Háskóla Íslands væru unglingar. Síður en svo, og oftast er það fullorðna fólkið sem stundar þetta á Aktu Taktu, lang oftast meðan er verið að bíða eftir hamborgaranum. Gamlar konur og unglingar spila þetta jafn mikið, og unglingar spila þetta nú ekki lítið.
Einnig hef ég hugsað mjög mikið út í það hvernig þjóðfélagið myndi bregðast við ef Samtök Áhugafólks um Spilafíkn - burtséð frá því hvort þessi samtök séu til - ásamt Háskóla Íslands settu yrði upp áfengissjálfsali í nánast hverja sjoppu landsins. Þar sem einn eigandi spilakassanna er Samtök Áhugafólks um Áfengi finnst mér rétt að bera þetta saman. Hver er munurinn á spilakassa út í sjoppu fyrir spilafíkil eða áfengissjálfsala? Af hverju er áfengissýki mun viðurkenndari sjúkdómur en spilafíkn? Maður spyr sig.







Gamlar konur eru allavegana mjög áberandi í spilakössunum í Suðurveri. Það
Linda | 22 January 2007 | 20:10Gamlar konur eru allavegana mjög áberandi í spilakössunum í Suðurveri.
Það er eins og þær hafi ekkert annað að eyða peningunum sínum í.
Einu sinni horfði ég upp á karl sem var búin að vinna 5000kr bara leika sér að tapa honum því hann NENNTI ekki að fá peninginn!
Ég var í sjoppunni fyrir utan FB eitthvert kvöld í
Maggi | 22 January 2007 | 21:17Ég var í sjoppunni fyrir utan FB eitthvert kvöld í örugglega 20 mínútur, og á þeim tíma komu fimm eldri konur í spilakassana.
Voru það ekki við að kaupa sheik, þegar fullt af
Bjarki | 22 January 2007 | 22:28Voru það ekki við að kaupa sheik, þegar fullt af gömlum konum komu í kassana þar?
Þetta er nú varla sambæri legt, þetta með spilakassana og
Arnar G | 22 January 2007 | 23:23Þetta er nú varla sambæri legt, þetta með spilakassana og áfengið.
Þetta eru tvær mismunandi “fíknir” (ef mér leyfist að segja það). Engar 2 eru eins. Einni er ekki miklar líkur eftir að hafa eytt 5000kr. í kassann að þú farir uppí bíl og akir niður fjölskyldur, eða ælir á gólfið…. jafnvel deyjir í anddyri Aktu taktu. En allavega ef að áfengi væri selt þarna væri allavega mikið um nauðgara sem kæmu og gætu valið úr fjöldanum.
Spilakassar = Leiðinlegir Áfengi = Skemmtilegt Þú vinnur pening í spilakassanum til
Tinna | 23 January 2007 | 8:40Spilakassar = Leiðinlegir
Áfengi = Skemmtilegt
Þú vinnur pening í spilakassanum til að kaupa áfengi.
Þannig fer maður að þessu. Það er ekkert fíkn, það er bara fyrirvnnan til að skemmta sér……..
það getur verið vesen að redda sér áfengi fyrir fólk
mistery man | 25 January 2007 | 18:17það getur verið vesen að redda sér áfengi fyrir fólk á okkar aldri enn ef það auðveldast e-ð verður þá bara ekki “áfengisvandamál unga fólksins” bara meira vandamál….sama gildir um róna
Tinna, þetta var í alvöru það heimskulegasta komment sem ég
Robbi | 27 January 2007 | 11:44Tinna, þetta var í alvöru það heimskulegasta komment sem ég hef lesið á netinu, og ég hef lesið þau mörg.
Ekki vera að rugla um eitthvað sem þú veist ekkert um. Ekki gera lítið úr spilafíkn, án gríns, þá held ég að spilafíkn sé alvarlegra vandamál en áfengisfíkn.
Mistery Man, auðvitað myndi drykkjan aukast en aftur á móti
Maggi | 30 January 2007 | 21:28Mistery Man, auðvitað myndi drykkjan aukast en aftur á móti á líka að vera vesen fyrir ungt fólk að komast í spilakassana. Má unga fólkið nota spilakassa en ekki drekka áfengi, þó það hafi aldur til að stunda kassana?