MaggiDan.com

  • rss
  • Blogg
  • Kvikmyndir & tónlist
  • Um mig
  • Myndir
  • Hafa samband

Ný síða, gamalt blogg

11 January 2007 | 23:18

Kæru lesendur,

Ég býð ykkur velkomna á nýja og glæsilega heimasíðu mína, www.maggidan.com. Því miður verður ekkert innflutningspartý í tilefni síðunnar, en ég mun reyna að vera meira virkur í skrifum en ég hef verið frá lokum júní ;). Ekki endilega í bloggum heldur einnig greinaskrifum, svo sem á kvikmyndir, diska eða hljómsveitir sem ég mun svo birta hér.
Að öðru, nú rétt í þessu var ég að koma heim úr ökuskóla tvö. Hann var alveg heilum helling skemmtilegri en ökuskóli eitt. Vanalega eru u.þ.b. 25-30 manns í tíma, en núna í kvöld var 61 manneskja í tíma og var það víst met. Fljótlega varð ólíft í stofunni sökum hita og lofleysis. Einnig hélt Freysi við manni félagsskap (hann á afmæli í apríl og er ‘89 :)).
Að mínu mati eru góðar blikur á lofti í sambandi við bílprófið, eftir helgi er haldið í ökutíma og svo kemur, vonandi seinna í janúar, bóklega- og verklega prófið sem auðvitað verður vonandi neglt niður. Og auðvitað er planið að vera allavega tveimur mánuðum á undan Möggu að fá bílprófið, en eins og alþjóð veit er hún nýkomin heim úr Nýja-Sjálandi svo hún hefur löglega afsökun fyrir bílprófsleysi.

Ég ætla svo aðeins að tjá mig um skólann. Þessi önn verður snilld. Ég skemmti mér konunglega fyrir jól, en þessi verður betri. Bara árshátíðin og sæludagarnir eru nóg til að gera þessa önn betri. Einnig er ég í fjölmiðlafræði 103 og með einhverri manneskju sem ég þekki eða hef kynnst í skólanum í hverjum einasta tíma, að ógleymdri Örnu sem flúði úr Marmarahöllinni yfir í gasklefamatsalinn.

Einnig vil ég benda á dálkinn „Plata vikunnar“, en honum bætti ég við nýlega. Þó er ég viss um að flestir hafi tekið eftir honum, þarna ætla ég að reyna að vera duglegur að setja inn efni.

Nú í spilun: Pelican - Automn Into Summer .

Categories
Uncategorized
Comments rss
Comments rss
Trackback
Trackback

« Isis & Aereogramme - In The Fishtank 14 The Libertines - The Libertines »

10 responses

það var ö2 enn ekki ö1

arnar f | 11 January 2007 | 23:29

það var ö2 enn ekki ö1

Sko þig maggi, þú kannt þetta enþá. :) Flott þetta..

Anna Birna | 12 January 2007 | 9:17

Sko þig maggi, þú kannt þetta enþá. :)
Flott þetta.. En varstu ekki í ökuskóla 2?

Hvað kostaði .com? Hef lengi verið að pæla í .net.

Bjarki | 12 January 2007 | 15:24

Hvað kostaði .com? Hef lengi verið að pæla í .net.

Ökuskóli tvö var það víst. Búinn að laga það. Bjarki: .com

Maggi | 12 January 2007 | 16:32

Ökuskóli tvö var það víst. Búinn að laga það.

Bjarki: .com lénið er á $7 á ári, svo eru örugglega einhverjar skyldur um að þurfa að vera með hýsingu til að fá þetta svona ódýrt. Ég hýsi þetta hjá pabba :D.

Var eimitt að spá í þessu áðan Ö1, Ö1. Ótrúlegt

Linda | 12 January 2007 | 20:23

Var eimitt að spá í þessu áðan Ö1, Ö1.
Ótrúlegt að þú gerir svona villur eftir allar leiðréttingarnar sem þú hefur gert í gegnum árin.

maggidan.com kostar heila $7,20 dollara á ári. Ekki gerð krafa

Frank M | 12 January 2007 | 22:28

maggidan.com kostar heila $7,20 dollara á ári. Ekki gerð krafa um hýsingu þegar keypt í gegnum godaddy.com. Leitaði á google að afslættar coupon fyrir godaddy og fann einn sem gaf $2 í afslátt (fann líka aðra sem gáfu 15% afslátt) en þessi var sá hagstæðasti m.v. kaupupphæðina. Síðan er hýst hjá hostmonster.com.

Er þetta einhver áskorun Magnús Daníel?

Magga | 14 January 2007 | 17:59

Er þetta einhver áskorun Magnús Daníel?

Feitan. :D Búinn með fyrsta seinni-ökutímana.

Maggi | 14 January 2007 | 18:38

Feitan. :D
Búinn með fyrsta seinni-ökutímana.

Ég er búin að sitja stanslaust við tölvuna í fimm

Tinna | 16 January 2007 | 20:05

Ég er búin að sitja stanslaust við tölvuna í fimm daga og bíða.

Og enn er engin ný færsla.

Ég bíð.

Það er mér að kenna...ég er frekja!

Arna | 17 January 2007 | 11:34

Það er mér að kenna…ég er frekja!

Leave a comment

You can use these tags : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Dagatal

January 2007
M T W T F S S
« Dec   Feb »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031  

Nýlegar athugasemdir

  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Robbi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…

Flokkar

  • Blogg (53)
  • Kvikmyndir (13)
  • Sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • Tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Blogg

  • Anna og Robbi
  • Arna
  • Frank & Ösp
  • Frank Gabríel
  • Hekla
  • Hlynur Jón
  • Linda
  • Myndagemsablogg
  • Stebbi
  • Tinna

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Nýlega hlustað á

Mynd af handahófi

Facebook


Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox