Ný síða, gamalt blogg
11 January 2007 | 23:18Kæru lesendur,
Ég býð ykkur velkomna á nýja og glæsilega heimasíðu mína, www.maggidan.com. Því miður verður ekkert innflutningspartý í tilefni síðunnar, en ég mun reyna að vera meira virkur í skrifum en ég hef verið frá lokum júní ;). Ekki endilega í bloggum heldur einnig greinaskrifum, svo sem á kvikmyndir, diska eða hljómsveitir sem ég mun svo birta hér.
Að öðru, nú rétt í þessu var ég að koma heim úr ökuskóla tvö. Hann var alveg heilum helling skemmtilegri en ökuskóli eitt. Vanalega eru u.þ.b. 25-30 manns í tíma, en núna í kvöld var 61 manneskja í tíma og var það víst met. Fljótlega varð ólíft í stofunni sökum hita og lofleysis. Einnig hélt Freysi við manni félagsskap (hann á afmæli í apríl og er ‘89 :)).
Að mínu mati eru góðar blikur á lofti í sambandi við bílprófið, eftir helgi er haldið í ökutíma og svo kemur, vonandi seinna í janúar, bóklega- og verklega prófið sem auðvitað verður vonandi neglt niður. Og auðvitað er planið að vera allavega tveimur mánuðum á undan Möggu að fá bílprófið, en eins og alþjóð veit er hún nýkomin heim úr Nýja-Sjálandi svo hún hefur löglega afsökun fyrir bílprófsleysi.
Ég ætla svo aðeins að tjá mig um skólann. Þessi önn verður snilld. Ég skemmti mér konunglega fyrir jól, en þessi verður betri. Bara árshátíðin og sæludagarnir eru nóg til að gera þessa önn betri. Einnig er ég í fjölmiðlafræði 103 og með einhverri manneskju sem ég þekki eða hef kynnst í skólanum í hverjum einasta tíma, að ógleymdri Örnu sem flúði úr Marmarahöllinni yfir í gasklefamatsalinn.
Einnig vil ég benda á dálkinn „Plata vikunnar“, en honum bætti ég við nýlega. Þó er ég viss um að flestir hafi tekið eftir honum, þarna ætla ég að reyna að vera duglegur að setja inn efni.
Nú í spilun: Pelican - Automn Into Summer .







það var ö2 enn ekki ö1
arnar f | 11 January 2007 | 23:29það var ö2 enn ekki ö1
Sko þig maggi, þú kannt þetta enþá. :) Flott þetta..
Anna Birna | 12 January 2007 | 9:17Sko þig maggi, þú kannt þetta enþá.
Flott þetta.. En varstu ekki í ökuskóla 2?
Hvað kostaði .com? Hef lengi verið að pæla í .net.
Bjarki | 12 January 2007 | 15:24Hvað kostaði .com? Hef lengi verið að pæla í .net.
Ökuskóli tvö var það víst. Búinn að laga það. Bjarki: .com
Maggi | 12 January 2007 | 16:32Ökuskóli tvö var það víst. Búinn að laga það.
Bjarki: .com lénið er á $7 á ári, svo eru örugglega einhverjar skyldur um að þurfa að vera með hýsingu til að fá þetta svona ódýrt. Ég hýsi þetta hjá pabba :D.
Var eimitt að spá í þessu áðan Ö1, Ö1. Ótrúlegt
Linda | 12 January 2007 | 20:23Var eimitt að spá í þessu áðan Ö1, Ö1.
Ótrúlegt að þú gerir svona villur eftir allar leiðréttingarnar sem þú hefur gert í gegnum árin.
maggidan.com kostar heila $7,20 dollara á ári. Ekki gerð krafa
Frank M | 12 January 2007 | 22:28maggidan.com kostar heila $7,20 dollara á ári. Ekki gerð krafa um hýsingu þegar keypt í gegnum godaddy.com. Leitaði á google að afslættar coupon fyrir godaddy og fann einn sem gaf $2 í afslátt (fann líka aðra sem gáfu 15% afslátt) en þessi var sá hagstæðasti m.v. kaupupphæðina. Síðan er hýst hjá hostmonster.com.
Er þetta einhver áskorun Magnús Daníel?
Magga | 14 January 2007 | 17:59Er þetta einhver áskorun Magnús Daníel?
Feitan. :D Búinn með fyrsta seinni-ökutímana.
Maggi | 14 January 2007 | 18:38Feitan.
Búinn með fyrsta seinni-ökutímana.
Ég er búin að sitja stanslaust við tölvuna í fimm
Tinna | 16 January 2007 | 20:05Ég er búin að sitja stanslaust við tölvuna í fimm daga og bíða.
Og enn er engin ný færsla.
Ég bíð.
Það er mér að kenna...ég er frekja!
Arna | 17 January 2007 | 11:34Það er mér að kenna…ég er frekja!