Ojs. Búinn að vinna alltaf klukkan ellefu á kvöldin eftir rúmlega þrettán tíma vinnu seinustu vikuna. Það er frekar þreytandi eins og gefur að skilja, en iSketch og leikjanet hafa verið vinir mínir hérna. Vann til dæmis níu tíma á afmælinu mínu, fékk frí til klukkan tvö í tilefni dagsins.
Annars eru þessar tvær afmælisgjafir sem ég er búinn að fá alveg yndislegar. Fyrst var það
Austin Powers – Shagadelic Box
Allar þrjár myndirnar í einum pakka!
Og svo var það
ISIS – Oceanic: Remixes/Reinterpretations
Endurhljóðblandanir og -túlkanir á lögum ISIS af Oceanic disknum!
Þar að auki er gamla settið eftir og fleiri vona ég.
Jólagjafirnar verða svo líklega snilld líka, aldri þessu vant á ég ekki erfitt með að fylla út jólagjafalistann í ár. Hæst á baugi er líklegast
Draumaeyjan
Spil byggt á bókinni Draumalandið eftir Andra Snæ. Þú átt að byggja upp Ísland, sama hvort það sé stóriðja, ferðamannaiðnaður eða hvað sem þú vilt.
Artemis Fowl – Eyjan týnda
Fimmta bókin held ég.. Þær misstu mojoinn eftir aðra bókina en þrátt fyrir það er þessi samt pottþétt þess virði að lesa.
Svo er, ég veit ekki hvað hún heitir á íslensku, Digital Fortress eftir meistara Dan Brown ofarlega, ógeðslega flotta Nike-peysan frá Örnu ásamt gjafabréfi úr Skífunni.
Category: Uncategorized



Er ekki kominn tími á nýtt blogg eða?
TIL HAMINGJU MEÐ .COM DÆMIÐ!!!!
Howdy! I simply want to give an enormous thumbs up for the good info you have got here on this post. I will probably be coming again to your weblog for extra soon.