MaggiDan.com

  • rss
  • Blogg
  • Kvikmyndir & tónlist
  • Um mig
  • Myndir
  • Hafa samband

Fullt hefur gerst frá því ég bloggaði síðast, en e…

28 November 2006 | 8:49

Fullt hefur gerst frá því ég bloggaði síðast, en ekki margt þess vert að segja frá.
Helst er það að prófin eru meira en mánuði nær en síðast, og það var ca mánuður í þau síðast. Fyrsta prófið mitt, danska, er sem sagt á morgun.

Í morgun vaknaði ég klukkan sjö við að maður var öskrandi og grátandi einhvers staðar rétt fyrir utan húsið. Ég fór út í glugga leitandi að þessum geðveika dópista en fann hann hvergi þannig að ég vakti mömmu og pabbi og sagði að það væri maður öskrandi og grátandi einhvers staðar úti. Loksins fann ég hann þegar ég horfði út um klósettgluggann. Þetta var enginn dópisti heldur hafði blaðburðarmaðurinn, nema hann noti dóp, runnið á svelli í Réttarselinu, greinilega misstígið sig og dottið. Pabbi fór út til hans en þá var hann búinn að hringja á sjúkrabíl. Vinstri löppin á grey manninum stóð út í loftið, í allt aðra átt venjuleg vinstri löpp snýr í.
Sjúkrabíll kom á svæðið og tók manninn sem var víst ökklabrotinn.

Eitt af þessum þrettán veikindum sem ég fæ á ári þurfti akkúrat að herja á mig núna. Í annað skipti meðan það eru próf. Algjörlega típískt að ég þurfi að veikjast á þessum tíma.

Eftir allt of langa bið fór ég loksins á Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan og fagnaði ég fimm mánaða afmæli mínu með Örnu á henni. Myndin var hryllileg… NOT!
Þessi mynd er ein sú fyndnasta sem ég hef séð. Hvergi annars staðar má hlæja að mongólítum, gyðingum, rasistabröndurum eða mannráni. Þessi hittir beint í mark.

James Bond og The Departed eru einnig myndir sem ég hef séð og þurfti ákveðinn 22 ára aðili að leggjast það lágt að fara í bíó með litla bróður og vinum hans, því enginn annar vildi fara með honum.

Einnig get ég kvatt lokaáfanga minn í stærðfræði, STÆ3136, með heilli og fallegri sjöu.
Nú er ég með átta einingar öruggar, Upplýsinga og tæknimennt, enska og stærðfræði, og auðvitað koma hinar tíu líka eftir prófin. Þá er komin 51 eining í hús. Bara 89 eftir. :D
Ég ætla að segja þetta gott núna og halda áfram að læra dönsku.

Categories
Uncategorized
Comments rss
Comments rss
Trackback
Trackback

« Bjarki! Tjútjú! »

6 responses

Æji maggi þú ert aldrei inná msn og ég kemst

Hekla | 28 November 2006 | 21:45

Æji maggi þú ert aldrei inná msn og ég kemst aldrei að því að segja þér að liðið mitt vann FÁ í minni fyrstu morfískeppni GOSH hvar hefuru verið litli kall ?

Þú veist ég er með síma. Geng með hann 24/7.

Maggi | 28 November 2006 | 22:43

Þú veist ég er með síma. Geng með hann 24/7.

Og ég hef ekki átt inneign síðan í Ágúst.:)

Hekla | 29 November 2006 | 16:56

Og ég hef ekki átt inneign síðan í Ágúst.
:)

Ojj hvaða glataði 22 ára aðili þurfti að leggjast svo

Robbi | 1 December 2006 | 11:24

Ojj hvaða glataði 22 ára aðili þurfti að leggjast svo lágt að fara í bíó með litla bróður hans og kærustu?? Aumingja hann! ;-)

Nei nei, þú veist það sjálfur að allir sem ég þekki (og vildi fara með í bíó) voru búnir að sjá þessa mynd - nema þú. Sem sagt, þú varst mitt síðasta val! :-p

En djöfull var The Departed góð mynd, Leo DiCaprio var rosalegur. Það er alveg magnað að sjá hvað hann hefur þróast frá Titanic. Í dag er hann hættur að vera sætabrauðsdrengur, hann er orðinn alvöru leikari. Og það góður leikari.

...fyrir utan það hvað hann er óstjórnanlega heitur... Mmmmmm

tinna | 1 December 2006 | 19:43

…fyrir utan það hvað hann er óstjórnanlega heitur… Mmmmmm

Robbi þú þarft ekkert að afsaka þetta. Það er allt

Frank M | 1 December 2006 | 22:07

Robbi þú þarft ekkert að afsaka þetta. Það er allt í lagi að fara með litla bróðir í bíó. Ég amk fer með þér… ;-)

Maggi af hverju ertu svona oft veikur? Þarftu ekki að éta spirulínu frá Robba?

Dópisti, ef einhver öskrar fyrir utan húsið er það þá dópisti?
Smá info um þetta. Pólverji, Íslendingur, var hálka?

Leave a comment

You can use these tags : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Dagatal

November 2006
M T W T F S S
« Oct   Dec »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930  

Nýlegar athugasemdir

  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Robbi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…

Flokkar

  • Blogg (53)
  • Kvikmyndir (13)
  • Sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • Tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Blogg

  • Anna og Robbi
  • Arna
  • Frank & Ösp
  • Frank Gabríel
  • Hekla
  • Hlynur Jón
  • Linda
  • Myndagemsablogg
  • Stebbi
  • Tinna

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Nýlega hlustað á

Mynd af handahófi

Facebook


Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox