MaggiDan.com

"Vinstri grænir vilja frið á Gaza en ófrið á Íslandi."
  • Blogg
  • Kvikmyndir
  • Um höfund
  • Myndir
  • Uppfærslur
  • Hafa samband

Fullt hefur gerst frá því ég bloggaði síðast, en e…

28 November 2006 | 8:49

Fullt hefur gerst frá því ég bloggaði síðast, en ekki margt þess vert að segja frá.
Helst er það að prófin eru meira en mánuði nær en síðast, og það var ca mánuður í þau síðast. Fyrsta prófið mitt, danska, er sem sagt á morgun.

Í morgun vaknaði ég klukkan sjö við að maður var öskrandi og grátandi einhvers staðar rétt fyrir utan húsið. Ég fór út í glugga leitandi að þessum geðveika dópista en fann hann hvergi þannig að ég vakti mömmu og pabbi og sagði að það væri maður öskrandi og grátandi einhvers staðar úti. Loksins fann ég hann þegar ég horfði út um klósettgluggann. Þetta var enginn dópisti heldur hafði blaðburðarmaðurinn, nema hann noti dóp, runnið á svelli í Réttarselinu, greinilega misstígið sig og dottið. Pabbi fór út til hans en þá var hann búinn að hringja á sjúkrabíl. Vinstri löppin á grey manninum stóð út í loftið, í allt aðra átt venjuleg vinstri löpp snýr í.
Sjúkrabíll kom á svæðið og tók manninn sem var víst ökklabrotinn.

Eitt af þessum þrettán veikindum sem ég fæ á ári þurfti akkúrat að herja á mig núna. Í annað skipti meðan það eru próf. Algjörlega típískt að ég þurfi að veikjast á þessum tíma.

Eftir allt of langa bið fór ég loksins á Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan og fagnaði ég fimm mánaða afmæli mínu með Örnu á henni. Myndin var hryllileg… NOT!
Þessi mynd er ein sú fyndnasta sem ég hef séð. Hvergi annars staðar má hlæja að mongólítum, gyðingum, rasistabröndurum eða mannráni. Þessi hittir beint í mark.

James Bond og The Departed eru einnig myndir sem ég hef séð og þurfti ákveðinn 22 ára aðili að leggjast það lágt að fara í bíó með litla bróður og vinum hans, því enginn annar vildi fara með honum.

Einnig get ég kvatt lokaáfanga minn í stærðfræði, STÆ3136, með heilli og fallegri sjöu.
Nú er ég með átta einingar öruggar, Upplýsinga og tæknimennt, enska og stærðfræði, og auðvitað koma hinar tíu líka eftir prófin. Þá er komin 51 eining í hús. Bara 89 eftir. :D

Ég ætla að segja þetta gott núna og halda áfram að læra dönsku.

Comments
6 Comments »
Categories
Uncategorized
Comments rss Comments rss
Trackback Trackback

Nýlegar athugasemdir

  • Hlynur on Avatar 3D (2009)
  • Robbi on Avatar 3D (2009)
  • Stefán Claessen on Avatar 3D (2009)
  • Arnar Gísli on Avatar 3D (2009)
  • Maggi on Click (2006)
  • Arnar Gísli on Click (2006)

Flokkar

  • Blogg (61)
  • Kvikmyndir (20)
  • sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Áhugaverðar síður

  • All Music
  • Anna og Robbi
  • ÍXS / X360
  • Facebook
  • Filman – kvikmyndasíða
  • Frank & Almar
  • Frank & Ösp
  • Gemsamyndir
  • IMDB
  • One Click Movies

Tags

60 Minutes Aaron Eckhart Batman Bourne Christian Bale Christopher Nolan Chrome Clapton Danny Boyle Death From Above 1979 Denzel Washington Dorrit Eric Clapton FB ferðalög Google Heath Ledger heimskt fólk iPod Kenny vs. Spenny Kvikmyndir Lord of the Rings MSTRKRFT mótmæli Nætur-Dagvaktin Pink Floyd podcast PSP póker Retarded Policeman Risk RÚV Samskip sci-fi Sebastien Grainger Silence of the Lambs sketch Skjár 1 Spider-Man Spánn spænska torrent tónlist Vestmannaeyjar Óskar

Lifestream

  • Listened to So Deep (Feat. Jahmal Of The Carps) - MSTRKRFT.
    — July 20th via Last.fm
  • Listened to Fist of God - MSTRKRFT.
    — July 20th via Last.fm
  • Listened to Bangla Desh - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Think for Yourself - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Something - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Taxman - George Harrison.
    — June 27th via Last.fm
  • Listened to Spleen; Lucy In The Sky With Diamonds - William Shatner.
    — June 17th via Last.fm
  • Listened to Common People - William Shatner.
    — June 17th via Last.fm
  • Listened to If I Needed Someone - George Harrison.
    — June 14th via Last.fm
  • Listened to Here Comes the Sun - George Harrison.
    — June 13th via Last.fm
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox