Ég man nú alltaf nafnið þitt, lítur út eins og…
17 October 2006 | 13:33Ég bara verð að viðurkenna að ég skil ekki hvað málið er í sambandi við þessar hvalveiðar? Hvernig í ósköpunum getur fólk verið á móti þessu? Skv Wikipedia eru til yfir milljón Hrefnur í öllum heiminum, þar af 56.000 í íslenska landgrunninum. Veiðar á 39 Hrefnum í ár setur varla strik í reikninginn, og heldur ekki þessir rúmlega fimmhundruð sem voru drepnir af Norðmönnum í fyrra. Það eina sem ég gæti hugsanlega séð á móti þeim er að það var eða er fáránlega kvalarfull leið sem er notuð til að drepa þá, en mig minnir að ég hafi lesið grein einhvers staðar sem sagði að þeir væru fylltir af deyfilyfjum eða eitthvað sem gerði þetta ekki kvalarfullt fyrir þá.
Persónulega held ég að það séu sömu lúðar sem mótmæla þessu og mótmæltu Kárahnjúkavirkjun, bara til að mótmæla. Það er í rauninni ekkert sem mælir á móti hvalveiðum.
Hver er ykkar skoðun? Ef þið eruð á móti komið með ykkar rök - ef þið eruð með komið með ykkar rök. Mig langar bara að sjá hvorir aðilarnir hafa betri rök.
Nú að spila: Peaches - Downtown.







Næstum alveg sammála þér, ég vil leifa veiðar á smáhveli
Bjarki | 17 October 2006 | 21:35Næstum alveg sammála þér, ég vil leifa veiðar á smáhveli og þessum miðlungsstóru eins og hrefnunni því það er komið miklu meira en nóg af honum, og er þetta farið að bitna á þorskstofninunm sem íslenskur efnahagur byggist mestmegnis upp á. Einnig er talið að stækkun hvalastofnanna sé orsök á minnkandi stofni sandsíla sem er uppistaða í fæði sjófugla við íslandsstrendur og hefur t.d. lunda stofninn minnkað töluvert seinustu ár. En veiðar á stórhveli vil ég hafa bannaðar lengur því ég tel þá ekki vera orðna nógu margir. En með þessa vitleysinga sem eru að mótmæla, þá er þetta mestmegnis sama fólkið, að ég held og er að mótmæla öllu hér á landi. Hér með líkur lengsta kommenti mínu.
Nú líst mér á frænda. Hættur að hugsa um koktelsósur.
Hlynur | 18 October 2006 | 1:00Nú líst mér á frænda. Hættur að hugsa um koktelsósur.
Að beiðni stjórnvalda gerði Hafrannsóknastofnunin veturinn 2002-2003 rannsóknaáætlun sem fól
Hlynur | 18 October 2006 | 1:01Að beiðni stjórnvalda gerði Hafrannsóknastofnunin veturinn 2002-2003 rannsóknaáætlun sem fól í sér veiðar á 200 hrefnum, auk flugtalninga og gervitunglamerkinga. Í ágúst 2003 hófust sýnatökur samkvæmt áætluninni. Á tímabilinu 18. ágúst til 30. september voru veiddar 37 hrefnur, á tímabilinu 4. júní til 5. júlí 2004 voru veidd 25 dýr og á tímabilinu 4. júlí til 17. ágúst 2005 voru veidd 39 dýr.
Sjávarútvegsráðuneyti hefur nú ákveðið að veiddar skuli allt að 50 hrefnur árið 2006.
Hrefna er algengasta tegund skíðishvala hér við land. Samkvæmt talningum sem fram fóru árið 2001 voru um 44 þúsund hrefnur á landgrunnssvæðinu við Ísland. Afar takmarkaðar rannsóknir hafa verið gerðar á líffræði og vistfræði hrefnu hér við land, en öflun slíkrar þekkingar er mjög nauðsynleg þar sem hinn mikli lífmassi tegundarinnar gefur til kynna að hún skipi veigamikinn sess í lífkerfi íslenska landgrunnssvæðisins.
Meginmarkmið rannsóknanna er að afla grunnþekkingar á fæðuvistfræði hrefnu hér við land en auk rannsókna á fæðusamsetningu með greiningu magainnihalds verður aflað annarra gagna sem nauðsynleg eru til að meta afrán tegundarinnar á hinum ýmsu fæðutegundum. Þar má nefna rannsóknir á orkubúskap, árstíðabundnum fjölda- og útbreiðslubreytingum og fæðuþörf. Þá verður unnið að þróun fjölstofnalíkans stofnunarinnar sem þegar tekur til þorsks, loðnu og rækju svo meta megi vistfræðilegt samspil hrefnu og þessara tegunda.
Auk þessa meginmarkmiðs hefur rannsóknin eftirfarandi markmið:
• Að kanna stofngerð hrefnu í Norður Atlantshafi með erfðafræðilegum aðferðum og gervitunglamerkingum.
• Að kanna sníkjudýr og heilsufar dýra í hrefnustofninum.
• Að safna upplýsingum um lífsögulega þætti; s.s. aldur og viðkomu hrefnu hér við land.
• Að kanna magn lífrænna og ólífrænna mengunarefna í hinum ýmsu líffærum hrefnu.
• Að meta gagnsemi ýmissa nýrra rannsóknaaðferða með samanburði við hefðbundnari aðferðir.
Hafrannsóknastofnunin hefur yfirumsjón með rannsóknunum en einnig koma að þeim sérfræðingar á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og Landspítala Háskólaskjúkrahúsi.
Sjá nánar um rannsóknirnar á upplýsingavef Hafrannsóknastofnunarinnar um hrefnurannsóknir.
Strákar... það er munur á þeim sem mótmæla hvalveiðum og
Magga | 18 October 2006 | 10:32Strákar… það er munur á þeim sem mótmæla hvalveiðum og kárahnjúkavirkjun. En sumir eru einfaldlega á móti öllu og það fólk er kjánalegt.
Annars er ég hlynnt hvalveiðum, í hófi. Ef stofninn er ekki í hættu…
Mér er nú nokkuð sama um nokkrar hrefnur. En Ísland
tinna | 18 October 2006 | 19:41Mér er nú nokkuð sama um nokkrar hrefnur.
En Ísland fær reyndar frekar slæma umfjöllun erlendis út af þessu… sem er kannski ekkert frábært.
Þetta var meira að segja í áströlsku fréttunum.
Ég sé engan mun á hvali, þorsk, sel eða hákarli.
Robbi | 18 October 2006 | 23:23Ég sé engan mun á hvali, þorsk, sel eða hákarli. Þetta er fiskur. Veiða og veiða! Til matar eða rannsókna, I dont care.
Róbert.Þekkir þú mun á póstkassa og gíraffa?
Hlynur | 20 October 2006 | 1:35Róbert.
Þekkir þú mun á póstkassa og gíraffa?
Æi Hlynur, ég var ekki að meina þetta í þeirri
Robbi | 22 October 2006 | 14:25Æi Hlynur, ég var ekki að meina þetta í þeirri merkingu að hvalur væri fiskur heldur í þeirri merkingu að ég sé engan mun á að borða hval eða þorsk, þetta syndir í sjónum og þjónar aðeins þeim tilgangi að halda lífinu í okkur!
Hver er munurinn á kýr og kýr?Enginn fyrir utan að
Frank M | 26 October 2006 | 23:16Hver er munurinn á kýr og kýr?
Enginn fyrir utan að önnur kýrin étur gras og er 500kg en hinn syndir í sjónum og er 60 tonn.
Báðar eru matur og eiga að nýtast þannig.
Skemmtilega hrokafullt viðhorf að allar aðrar lífverur í heiminum séu
Viktor | 27 October 2006 | 1:40Skemmtilega hrokafullt viðhorf að allar aðrar lífverur í heiminum séu til einungis í þeim tilgangi að vera matur fyrir okkur mannfólkið.
Pælingin er sú að hvalir eru í útrýmingarhættu og þess vegna er almennt ekki sniðugt að veiða þá. En við hinsvegar erum að sögn yfirvalda að veiða af stofni sem er æði nóg af í höfum kringum landið svo það ætti ekki að skapa vesen.
Ég er ekki á móti þessum hvalveiðum, mér sýnast helstu mótrök þeirra sem eru það vera þau að þetta skapi slæmt umtal um okkur.
En þegar þetta slæma umtal er ekki á rökum reist og við vitum það, hverjum er ekki skítsama?