Skóli
21 August 2006 | 6:24Jææææja, meira en mánuður liðinn frá síðasta bloggi og allir dagarnir á þessum mánuði hafa verið eins. Ég vinn, kem heim með Örnu, horfum á sjónvarp eða hittum fólk og förum að sofa. Förum í vinnuna daginn eftir og höldum rútínunni. Þrátt fyrir það er ég ekki kominn með leið á að lifa svona og hefði ekkert á móti því að lifa svona örlítið lengur, í annan mánuð eða svo, því nú er skólinn byrjaður. Mér líst samt ágætlega á FB þrátt fyrir að hafa verið smeykur í allt sumar um hvort ég hafi verið að breyta rétt með því að fara úr MS. Kostir FB eru fleiri en kostir MS, og held ég líka að gallar FB séu færri en hjá MS. Samt sem áður er „nenni ekki í skólann“-syndrómið enn til staðar. það fer þó vonandi að lokum.
Þar sem þetta er það eina sem ég hef að segja frá ætla ég að hætta annars fer ég bara að endurtaka mig.
Nú að spila: David Bowie - Because You’re Young.







Ég skal enn koma til þín og lúlla með þér
Arna/Amy | 21 August 2006 | 23:32Ég skal enn koma til þín og lúlla með þér á daginn ástin mín =)
Ohh krúttlegt.
Robbi | 23 August 2006 | 13:15Ohh krúttlegt.
Minn gubba mikið núna....
Hlynur | 1 September 2006 | 0:49Minn gubba mikið núna….
Þessvegna er maggi hættur að vera á msn eftir skóla
Hekla | 6 September 2006 | 12:12Þessvegna er maggi hættur að vera á msn eftir skóla eins og það reyndist mér nú vel í fyrra… hrmpffff…