101
12 July 2006 | 7:28Nei, andskotinn. Ég trúi ekki að eitthvað plebbablogg með einhverri ömurlegri sögu hafi verið mitt hundraðasta blogg. Takk Jonni! Þetta er sem sagt blogg númer 101.
Þetta eru rúmlega 270 dagar sem ég hef verið að blogga, miðað við að þetta séu níu mánuðir, byrjaði í lok september, og hver mánuður sé 30 dagar. Það finnst mér ágætis afrakstur. Blogg á einum af hverjum tveimur komma sjö dögum. ![]()
Hahaha. Er að horfa á Skjá Einn og þar er gamalt myndband með Á Móti Sól og Magni RokkStjarna er þar með hár á kollinum. Frekar fyndið að sjá það.
Annars hef ég litlu frá að segja. 99 króna dagurinn í gær í Hagkaup og ég og mamma gerðum okkar besta til að hlaða remi-kexum, kanilsnúðum og möffins á 99 kall í körfuna, þannig að ég mun ekki þurfa að hafa áhyggjur af að eiga ekki næga kanilsnúða. Mmmmm.
Mamma átti afmæli í gær, orðin hálfrar aldargömul plús eitt ár og einn dagur núna. Til hamingju með það.
Einnig dó Syd Barret, mjög fyrrverandi forsprakki Pink Floyd, fyrir nokkrum dögum. Þó svo að ég fíli ekki efnið sem hann samdi fyrir Pink Floyd á hann auðvitað skilið virðingu. Hann „samdi“ einu plötuna sem ég hef heyrt að eigi séns í Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band með Bítlunum í þeim flokki, Psycadelic rock. Einnig tók ég eftir einu sem ég var að skoða núna. Engin af plötum Bítlanna þykir næiglega góð til að vera „AMG Pick“! ![]()
Farinn að borða eina af möffinsunum sem við keyptum í gær.
Nú að spila: Pelican - March Into The Sea.







Aðeins eitt orð til um þetta...PWND!
Jonni | 12 July 2006 | 14:44Aðeins eitt orð til um þetta…
PWND!
Til hamingju með mömmuna.
Bjarki | 12 July 2006 | 18:58Til hamingju með mömmuna.
Kanilsnúðar....Kanilsnúðar....
Frank M | 12 July 2006 | 22:50Kanilsnúðar….
Kanilsnúðar….
ohhhh mér langar í kanilsnúð!!!! Geturu ekki sent einn yfir?
Magga | 13 July 2006 | 9:29ohhhh mér langar í kanilsnúð!!!! Geturu ekki sent einn yfir?
bið að heilsa mömmu þinni… og auðvitað restinni af ‘genginu’
Pelican er yndi.
Þorsteinn | 13 July 2006 | 18:24Pelican er yndi.
Poppland hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að Morrisey, fyrrum söngvari
arnar f | 13 July 2006 | 22:32Poppland hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að Morrisey, fyrrum söngvari The Smiths, sé á leið til landsins í ágúst. Mun hann halda tónleika í Laugardalshöll þann 12. ágúst næstkomandi.
Morrisey hefur verið meðal fremstu tónlistarmanna Bretlandseyja undanfarin 20 ár. Fyrst leiddi hann The Smiths sem hafa gert ódauðlegar plötur á borð við “The Queen Is Dead” en síðar hóf hann sólóferil sem hefur verið sérlega vel heppnaður.
Í upphafi árs sendi Morrisey frá sér plötuna “Ringleader of the Tormentors” sem hefur fengið frábæra um sögn um alla heim. Morrisey kom frá á nýafstaðinni Hróarskelduhátíð og var það mál manna að hann hefði verið á meðal bestu atriða hátíðarinnar þetta árið. Miðasala hefst strax eftir helgina…..það er 2 s í morrissey