Bahh. Ég hef engu að segja frá. Seinustu viku verð…
3 July 2006 | 10:59Bahh. Ég hef engu að segja frá. Seinustu viku verður líst svona. Ég vaknaði. Horfði á sjónvarp. Fór í vinnuna. Hitti krakkana. Fór að sofa. Helgin var þó öllu skárri. Vann að vísu en skemmtileg var hún eftir vinnu. Hitti krakkana á föstudagskvöldið. Þá var rúntað og sparkað í fólk. Hitti krakkana á laugardagskvöldið í afmæli hjá Lindu sem fór svo út í tívolíferð. Þar varð fólk veikt og ældi og það var ælt á suma. Svo í gærkvöldi var hóað í billiard kvöld meðal starfsfólks Hagkaups. Af fjórum leikjum sem ég keppti vann ég þrjá. Af þeim þremur vann ég þá alla þrjá á heppni. Annað hvort var svörtu skotið í rangt horn eða ég fékk óvenjulega hittnikrafta. Eftir það var labbað. LAAAAAAAAAANGT. Frá Faxafeni að Álfheimum. Frá Álfheimum í Fossvog, lengra en Pizza Hut er á Sprengisandi.
Haha. Ég var að gera mér grein fyrir hvað þetta er ógeðslega leiðinlegt blogg. Afsakið það.
Annars er ég í atvinnuleit, ef þið hafið eitthvað í huga fyrir mig hafið samband.
Og eitt enn. Hvert farið þið yfir Verslunarmannahelgina?
Nú að spila: The Libertines - Up The Bracket.







Nýlegar athugasemdir