Veikur
24 June 2006 | 5:05Þá er ég loksins að ná mér eftir viku veikindi. Byrjaði útfrá 17. júní en eftir tveggja daga þynnku þar sem seinni dagurinn var verri datt mér í hug að þetta væri kannski ekki þynnka. Þökk sé sumum gleymdist þrisvar sinnum að sækja jakkann minn. Ég var sem sagt á bolnum frá því um hálf átta til ca ellefu þangað til örlátur Hagkaupsstarfsmaður lét mig fá peysuna sína. Sem var alltof alltof lítil. En hlý var hún, mhmm. Svo vildi hún fá peysuna sína aftur og þá var ég aftur fastur á bolnum. En stuttu eftir það fór ég heim.
Svoooo í vinnunni daginn eftir var engin matarlyst til staðar, ég náði að klára vínarbrauðið en helv… kleinuhringurinn vildi ekki fara niður. Náði þó að borða kvölmat.
Farmhaldið er hundleiðinlegt, hápunktur veikindanna:
Hálft leiktímabilið í FIFA 2005 klárað! September að febrúar. Það eru um þrjátíu leikir, með eru taldir allir þeir leikir fyrir utan deilarinnar, League Cup, English Cup og einhver einn í viðbót sem ég veit ekkert hvað heitir. Varúð, eftirfarandi er bara fyrir FIFA nörda. Gosh, ég vinn stórlið eins og Tottenham, Chelsea og Real Madrid sem fyrstu deildarlið (vann mig upp í hana, btw) og svo kem ég í fyrstu deildina og skíttapa á móti einhverju skítaliði í 19. sæti! Svo fáránlega ógeðslega svekkjandi að mest af öllu langaði mig til að brjóta fjarstýringuna. Varúð búið.
Svo gerðist eiginlega ekkert annað skemmtilegt meðan ég var veikur nema það að ég hafði nægan tíma til að hugsa um að festa kaup á tvær til þrjár aðrar xbox fjarstýringar stefni ég að því eftir útborgun.
Mig langar þvílíkt að segja frá einhverju öðru merkilegu sem gerðist.. eða nánast bara hverju sem er því ég er í þvílíku bloggstuði. En þar sem ég hef engu að segja frá neyðist ég til að hætta. Þó getið þið skemmt ykkur á einu, ég var að vafra á netinu og fann þetta á einni síðu, undir nafninu Hið ódauðlega MC Gauta pwn. Rifrildi milli Gauta og vinar eins vinnufélaga míns, frekar ógeðslega fyndið.
Nú að spila: Massive Attack - Man Next Door.







Ég las þetta MC Gauta pwn en skildi það ekki
Frank M | 25 June 2006 | 14:46Ég las þetta MC Gauta pwn en skildi það ekki alveg. Var MC Gauti að reyna að drulla yfir einhvern en fékk allt yfir sig aftur?